Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Side 32
Helgarblað 7.–10. nóvember 201432 Fólk Viðtal Þ að er skemmtilegt að upp- lifa það, sem gamalt ein- eltistilfelli, að ég ræð alveg við þetta. Tuðið í einhverj- um íhaldsköllum,“ segir Svavar Knútur þegar blaðamað- ur slær á þráðinn til hans og spyr hvernig hann hafi það. Það er mik- ill hiti í honum eftir mótmælin á mánudaginn. Eðlilega, enda var hann einn af skipuleggjendunum og hafði fengið alveg nóg. „Þetta er búin að vera hæg og jöfn uppbygging af vondum ákvörðunum og vondum sam- skiptum þessarar ríkisstjórnar, með hroka og yfirgangi. Það flæddi bara yfir hjá mér. Mér fannst ég verða að segja eitthvað.“ Og það var nákvæm- lega það sem Svavar Knútur gerði. Hann las ríkisstjórninni reiðipistil við upphaf mótmælanna og líkti þeim meðal annars við sóðalegan gaur í partíi sem ber ekki virðingu fyrir neinu. „Mér líður svolítið eins og ríkisstjórnin sé þessi gaur sem kemur í partí og skítur á gólfið hjá þér. Og þegar þú bendir honum á að þetta sé ekki beinlínis í lagi, þá ælir hann yfir skítinn og segir: „ég sé engan skít“,“ sagði Svavar Knútur orðrétt í ræðu sinni. Tekur ummælin ekki nærri sér Þessi myndlíking fór fyrir brjóstið á einhverjum, sem og orðbragð Svavars Knúts í ræðunni. Til að mynda Elliða Vignissyni, bæjar- stjóra í Vestmannaeyjum, sem rit- aði bloggfærslu og tók hann fyr- ir. Sagði hann hafa sett leiðinlegan blett á mótmælin. Þá ýjaði hann að því að Svavar Knútur væri ókurteis og hefði ekki efni á því boða siðbót. Eins og upphafsorð Svavars Knúts bera með sér þá lætur hann þessi orð Elliða ekki á sig fá. Hann þol- ir svona umtal. Enda orðinn sterk- ari en þegar eineltið gekk yfir hann í æsku. „Ég er hættur að taka svona hluti nærri mér. Ég hefði gert það áður en ég með allt annað sjálfs- traust en ég var með áður,“ segir hann hreinskilinn. Unglingsárin voru honum erfið vegna eineltisins og honum finnst augljóslega hálf óþægilegt að rifja upp þann tíma. „Það var ýmislegt sem gerðist sem ég myndi ekki óska neinum að lenda í. Ég lærði samt mikið um sjálfan mig í gegn- um það. Maður lærir líka að þekkja svona eineltishegðun, þekkja þess- ar týpur.“ Svavar Knútur segir ein- eltið vissulega hafa mótað sig, eins og flest önnur lífsreynsla. „En ég lét allavega eineltið ekki gera mig að fórnarlambi, svo mikið er víst. Ég er ekki þolandi, ég er maður sem lifði hlutina af,“ segir hann ákveðinn og keikur. „Ég þekki þessa gerendur. Ég þekki blikið í augunum og tóninn í talinu. Maður þekkir þetta rán- dýrsútlit á þeim. Við sem höfum lent í einelti, við þekkjum það al- veg. En gettu hvað við erum orðin fullorðin, við erum ekki lengur litlu börnin sem níðst var á. Mitt starf sem tónlistarmaður, blaða- maður og margt fleira hefur gef- ið mér sjálfstraust til að standa svona dólgshátt af mér,“ segir hann ákveðinn og lætur engan bilbug á sér finna. „Ég er bara gaur af götunni“ Svavar Knútur segist ekki trúa því að Elliði hafi raunverulega móðg- ast vegna kúkabrandarans sem hann sagði á mótmælunum. Held- ur sé um uppgerð að ræða. „Það er engin alvara þarna á bak við, þetta er bara svona Morfístæki,“ segir hann og líkir þar með skrifum El- liða við ræðu úr ræðukeppni fram- haldsskólanna. „Hrokinn og dólgshátturinn í stjórnmálamönnunum heldur bara áfram. Það er engin auðmýkt. Það er bara rugl að ætla að krefj- ast auðmýktar af mér. Ég er bara gaur af götunni og er ekki að stýra neinu. Ég er ekki með neitt umboð til að ráða neinu í þessu landi. Það er engin krafa á mig að vera kurteis. Það fylgir líka mótmælum að fólk segi sína skoðun umbúðalaust.“ Vill ekki vera reiður Svavar Knútur biðst afsökunar á því hvað hann sé reiður. Hann vill ekki vera reiður, en kemst ekki hjá því þegar hann talar um þessa hluti. „Þetta er leiðinlegasta tilfinn- ing sem ég veit um. Mig langaði til að vera búinn með hana. Ég sjálfur hef það gott og hef yfirleitt nóg fyrir mig, en það gengur ekkert af. Ég á góða konu og góða fjölskyldu en ég horfi upp á fólkið í þessu landi svelta. Það er níðst á þeirra mann- réttindum.“ Hann hittir margt fólk í gegnum starf sitt sem tónlistar- maður og margir nálgast hann persónulegum nótum. Hann veit því töluvert um raunverulega hagi samlanda sinna. „Ég hef verið í ýmsum aðstæð- um, ég finn reiði fólks, en ég hef engan áhuga á því að vera stjórn- málamaður. Ég vil að mér hæfara fólk geri það. En akkúrat núna er þetta fólk ekki að sýna fram á þá hæfni.“ Að þeim orðum sögðum heyrast skyndilega skruðningar í síman- um og símtalið slitnar. Blaðamað- ur reynir nokkrum sinnum að ná í Svavar Knút aftur, án árangurs, en honum tekst þó að hringja til baka að lokum. „Það er örugglega verið að hlera mann, maður er svo hættu- legur þegar maður hefur skoðanir,“ segir Svavar Knútur í gríni og hlær. Við erum þó bæði viss um að það sé þó ekki raunin, heldur hafi símkerf- ið frekar verið að stríða okkur. Alla- vega þangað til annað kemur í ljós. Tónlistarmaðurinn Svavar Knútur Kristinsson er skyndilega orðinn alþýðuhetja eftir að hafa skipulagt mótmæli í vikunni gegn aðgerðum ríkis- stjórnarinnar. Hann er knúsaður úti á götu og fólk þakkar honum fyrir sitt fram- lag. Á mótmælunum hélt hann þrumuræðu sem vakti mikla athygli. Hún fór þó fyrir brjóstið á einhverjum sem hafa sagt Svavar Knút ókurteisan fyrir vikið. Hann lætur þó gagnrýnina ekki á sig fá, enda mun sterkari í dag eftir að hafa orðið fyrir miklu einelti í æsku. Það var alls ekki á döfinni hjá honum að skipu- leggja mótmæli, enda er honum meinilla við að vera reiður maður. En hann ákvað að kveikja í fyrsta kínverjanum, eins og hann orðar það, svo ætlar hann að hverfa á braut og þá geta aðrir tekið við. „Ég er góður kall en líka mjög hrjúfur“ Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrun@dv.is „En ég lét allavega eineltið ekki gera mig að fórnar- lambi, svo mikið er víst. Ég er ekki þol- andi, ég er maður sem lifði hlutina af.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.