Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Qupperneq 34
Helgarblað 7.–10. nóvember 201434 Neytendur
Arsen í bArnAmAt
Rúmlega helmingur vinsælla matvæla úr hrísgrjónum reyndist innihalda meira en ESB mun mæla með
N
ý rannsókn í Bretlandi hefur
leitt í ljós að rúmlega helm-
ingur vinsælla matvæla á
borð við morgunkorn og
barnamat, sem unnin eru úr
hrísgrjónum, þar í landi inniheldur
umtalsvert meira magn af arseni en
væntanleg hámarksgildi Evrópusam-
bandsins kveða á um. Sérfræðingur
hjá Matvælastofnun segir að enn sem
komið er séu engin hámarksgildi fyrir
arsen í matvælum, hvorki á Íslandi né
í Evrópusambandinu en mjög jákvætt
sé ef þau verði sett svo hægt verði
að bregðast við og stöðva dreifingu
þeirra og sölu. Í nýlegri rannsókn á
þungmálmum og steinefnum í barna-
mat lýsti sænska matvælastofnun-
in Livsmedelsverket yfir áhyggjum á
skaðlegu magni arsens í hrísgrjónum
og vörum framleiddum úr þeim.
Helmingur yfir viðmiðum
Það var breski fréttaskýringaþáttur-
inn Dispatches á Channel 4 sem lét
Institute for Global Food Security
við Queen's-háskólann í Belfast
gera rannsókn á 81 vöru þar sem
magn arsens var mælt. Búist er við
að Evrópusambandið (ESB) festi há-
marksgildi arsens í matvælum í reglu-
gerð næsta sumar, þar sem magn-
ið mun miðast við 200 míkrógrömm
á hvert kíló fyrir fullorðna, en 100
míkrógrömm á hvert kíló fyrir börn
og ungbörn. Niðurstaða bresku rann-
sóknarinnar var að 58 prósent þeirra
matvæla sem skoðuð voru mældust
með hærra magn en það sem búist er
við að ESB muni miða við fyrir börn.
Hið vinsæla morgunkorn frá Kell-
oggs', Rice Krispies, var meðal þess
sem rannsakað var auk barnamats frá
Heinz og Kallo, svo eitthvað sé nefnt.
Þó að til séu strangar takmarkanir
á því magni arsens sem má vera til
staðar í vatni þá eru nú, sem fyrr seg-
ir engin hámarksgildi fyrir matvæli.
Vísindamenn og sérfræðingar hafa
áhyggjur af þessu og óttast langtíma-
áhrif á heilsu fólks. Þó að arsen sé
ekki álitið skaðlegt í smáum skömmt-
un þá segja sérfræðingar að neysla á
ólífrænu arseni í of miklu magni, til
lengri tíma, kunni að vera krabba-
meinsvaldandi og geti leitt til fleiri
illvígra sjúkdóma.
Falleinkunn fyrir morgunkorn
Athygli vekur að í skoðun Dispatches
sýndu niðurstöður ítrekaðra rann-
sókna að morgunkorn frá Kallo
Foods, sem samanstendur af lífræn-
um sprengdum hrísgrjónum, mæld-
ist með 323 míkrógrömm/kíló sem er
61,5% umfram ráðlagðan skammt fyr-
ir fullorðna. Lífrænn heilkorna hrís-
grjónagrautur fyrir ungbörn frá Org-
anix mældist með 268 míkrógrömm/
kíló eða 168% umfram það sem ESB
mun að óbreyttu mæla með fyrir
börn. Lífrænar hrískökur fyrir börn
frá Boots mældust með gildið 162
míkrógrömm/kíló.
A
rsen (As) er frumefni með
sætistöluna 33 en fjallað er ít-
arlega um það í svari við fyrir-
spurn á Vísindavef Háskóla Ís-
lands sem hér er vitnað í. Á nokkrum
stöðum í heiminum má finna mikið
af arseni í berggrunni og er grunn-
vatn þar víða svo megnað að neysla
þess er varasöm. Í Suðaustur Asíu
finnast arsenmenguð svæði en þar er mesta hrísgrjónarækt í heiminum.
Sú rækt er vatnsfrek og safnast arsen fyrir í grjónunum.
Megnið af því arseni sem við fáum í okkur kemur úr fæðu, þó aðrar
leiðir séu færar. Arsenríkasta fæðan sem við neytum eru sjávarafturðir
en þar er það þó í lífrænum efnasamböndum, það er tengt kolefni. Líf-
ræn arsensambönd eru miklu minna eitruð en þau ólífrænu. Hlutfalls-
lega er meira af ólífrænu arseni í korni, eins og hrísgrjónum, og jarðá-
vöxtum, en í sjávarfangi.
Arsen safnast fyrir í hári, húð og nöglum en einnig að nokkru leyti
í nýrum, hjarta, lifur og lungum. Það berst auðveldlega yfir fylgju til
fósturs. Um eitrunaráhrif segir á vefnum:
„Arsen er mjög eitrað efni. Það er þó háð því á hvaða formi það er.
Þrígild arsensambönd eru að jafnaði eitraðri en þau fimmgildu. Líf-
ræn arsensambönd eins og þau, sem finnast í sjávarafurðum eru miklu
minna eitruð en þau ólífrænu. Um 100 mg af ólífrænu, þrígildu arseni
nægja til þess að valda alvarlegri eða jafnvel banvænni eitrun.“
Eitrun við inntöku í minni skömmtum í langan tíma lýsir sér oft með
þreytu slappleika, langvarandi magakveisu með uppköstum, niðurgangi
og gulu auk fleiri kvilla.
Arsen hefur verið tengd krabbameini í húð, lungum, lifur, nýrum
og blöðru og er á lista yfir krabbameinsvalda hjá Alþjóðakrabbameins-
stofnuninni (IARC). Lengi var talið að fullorðnum væri óhætt að neyta
allt að 15 míkrógrömmum af arseni á hvert kíló af líkamsþunga á viku
án skaðlegra áhrifa. Nýjar rannsóknir, einkum á krabbameinsvaldandi
áhrifum þess, hafa þó fengið menn til að efast um réttmæti þeirra
marka. Alþjóðastofnanir í heilbrigðismálum hafa unnið að endurmati á
skaðsemi arsens í matvælum og drykkjarvatni.
Heimild: visindaveFur.is. HöFundur: Jakob kristinsson, próFessor við læknadeild HÍ.*
Hvað er arsen?
Eitrað frumefni á lista yfir krabbameinsvalda hjá IARC
sigurður mikael Jónsson
mikael@dv.is
Hlutfall arsens yfir hámarki ESB
61,5%
168%
88%
62%
yfir ráðlögðu magni fyrir
fullorðna af Kallo - Original
Puffed Rice Cereal
yfir ráðlögðu magni fyrir
börn og ungbörn af Kell-
ogg's - Rice Krispies
yfir ráðlögðu magni fyrir
börn og ungbörn af Boots -
Baby Organic Rice Cakes
yfir ráðlögðu
magni fyrir börn og
ungbörn af Organix -
First Organic Whole-
grain Baby Rice
Rice Krispies innihélt 188
míkrógrömm/kíló eða 88% umfram
það sem mælt er með fyrir börn. Svo
eitthvað sé nefnt. Vísindamenn eru
gagnrýnir á að ESB sé ekki að taka
málið nægilega föstum tökum.
„Þau hámarksgildi sem ESB ætl-
ar að setja eru að mínu mati allt of
há. Fyrir börn sérstaklega ætti há-
marksgildið að vera helmingi lægra
en 0,1 mg/kg. Svo virðist sem þetta
hámark sé þjónkun við hrísgrjóna-
iðnaðinn fremur en að tekið sé tillit til
skaðlegra áhrifa á heilsu fólks,“ segir
Andrew Meharg, prófessor í líffræði
við Queen's-háskólann í Belfast í sam-
tali við Dispatches vegna málsins.
Er bent á í þessu samhengi að
Bretar neyti nú fimmfalt meira af hrís-
grjónum en þeir gerðu fyrir 40 árum.
Fátt sem bændur geta gert
DV bar málið undir Ingibjörgu Jóns-
dóttur, sérfræðing hjá Matvælastofn-
un, sem kveðst hafa séð þessar tillögur
ESB um hámarksgildi fyrir arsen í mat-
vælum og fagni því ef þau verði sett.
„Það komu fyrst fram tillögur um
hærra gildi eða 300µg/kg en í Kína er
hámarksgildi á arsen í hrísgrjónum
sett við 150µg/kg enda eru hrísgrjón
uppistaðan í fæði kínversku þjóðar-
innar. Niðurstaðan varð 200µg/kg en
reynslan mun svo leiða í ljós hvort
þörf er á að lækka það, og hvort það
sé raunhæft, þar sem þetta er frum-
efni sem er til staðar í jarðvegi og fátt
sem bændur geta gert til að lækka
það, nema hætta ræktun hrísgrjóna á
þeim svæðum sem hafa meira magn
arsens í jarðvegi.“
Aðspurð hvaða áhrif þetta kunni
að hafa á þær vörur sem eru á
markaði og hvort einhverjar þeirra
komi til með að hverfa úr hillum mat-
vöruverslana í kjölfarið þá efast Ingi-
björg um það. Venjan hjá ESB sé að
gefa framleiðendum ákveðinn að-
lögunarfrest þannig að vörur sem
framleiddar eru fyrir ákveðna dag-
setningu megi selja þar til birgðir séu
uppurnar. „Framleiðendur þeirra
vara sem reynast innihalda of hátt
innihald arsens munu síðan þurfa
að leita að hrísgrjónum í framleiðslu
sína sem hafa lægra innihald arsens.“
Aðspurð hvort einhverjar mæl-
ingar á magni arsens í matvælum á
íslenskum matvælum hafi verið gerð-
ar segir Ingibjörg að fylgst hafi ver-
ið með arseni í íslensku sjávarfangi
og landbúnaðarvörum árum saman.
„Niðurstöður þeirra mælinga eru inn-
an þessa væntanlega hámarks og ekki
ástæða til að hafa áhyggjur af því, en
arseninnihald í íslenskum jarðvegi er
lágt.“
Áhyggjur af áhrifum á heilsu barna
Sem fyrr segir gerði sænska mat-
vælastofnunin Livsmedelsverket
eigin rannsókn á 92 tegundum mat-
væla þar sem magn þungmálma á
borð við arsen, blý og kadmíum og
nokkurra steinefna var mælt í mat-
vælum sem sérstaklega eru ætluð
börnum. Um var að ræða ungbarna-
og stoðblöndur, korngraut og aðrar
kornvörur ætlaðar ungbörnum, sér-
fæði og ýmis almenn matvæli sem
ætla má að ungbörn og smábörn
neyti, t.d. soja-, hrís-, og hafradrykki
sem sumir neyta í stað kúamjólkur.
Leit sænska matvælastofnunin svo
á að magn þungmálma og stein-
efna væri svo mikið að það gæti leitt
til neikvæðra áhrifa á heilsu barna,
þrátt fyrir að magnið hafi ekki farið
yfir hámarksgildi í reglugerð um að-
skotaefni. Var niðurstaðan að mark-
visst þyrfti að vinna að því að lækka
magnið. Í umfjöllun um niðurstöð-
urnar á heimasíðu Matvælastofnun-
ar hér á landi segir að leggja beri ríka
áherslu á fjölbreytt mataræði ung-
og smábarna t.d. með því að breyta
reglulega til í vali á korngrautum.
Þannig megi forðast þungmálma og
önnur óæskileg efni í matvælum.
brugðist við niðurstöðunum
Niðurstöður sænsku rannsóknar-
innar urðu til þess að Matvælastofn-
un og embætti landlæknis hér á
landi sendu frá sér ráðleggingar til
neytenda og heilbrigðisstarfsfólks
eftir að sérfræðihópur hafði komist
að þeirri niðurstöðu að ráðleggingar
sænsku matvælastofnunarinn-
ar ættu einnig við hér á landi. Þær
ráðleggingar má finna hér á síð-
unni og miða að því að vernda börn
yngri en 6 ára fyrir skaðlegum áhrif-
um arsens. Sem dæmi er nefnt að
börn sem vega minna en 20 kíló
og drekka um 500 ml af hrísgrjóna-
drykk fái það mikið magn arsens að
það geti haft neikvæð áhrif á heilsu
þeirra. Vakin er athygli á því að
arsen finnist aðallega í hrísgrjón-
um og vörum framleiddum úr þeim
og arseninnihald sé óháð því hvort
hrísgrjónin séu úr lífrænni ræktun
eða ekki. Allar hrísgrjónavörurnar
í sænsku rannsókninni innihéldu
arsen, í mismiklu magni þó. Skoð-
aðar voru vörur frá bæði evrópsk-
um framleiðendum og frá öðrum
heimshlutum. n
Ráðleggingar
til neytenda
n Foreldrum er ráðlagt að tryggja fjöl-
breytni í vali á ungbarnagraut með því að
velja graut úr mismunandi korntegundum
og breyta til á milli vörumerkja. Ekki er
nauðsynlegt að útiloka graut úr hrísmjöli
en einnig ætti að velja graut úr t.d. maís,
hirsi eða bókhveiti sem fyrsta graut. Eftir
sex mánaða aldur má byrja að gefa graut
úr höfrum, byggi, hveiti eða rúgi.
n Foreldrum er ráðlagt að gefa ekki
börnum undir sex ára aldri drykki úr
hrísgrjónum, t.d. hrísgrjónadrykk (e. rice
drink) vegna arseninnihalds þeirra.
n Foreldrum er ráðlagt að gefa þeim
börnum undir 6 ára sem fá drykk úr
jurtaríkinu ekki alltaf sams konar drykk
heldur skipta á milli tegunda og vöru-
merkja. Hér er átt við drykki úr höfrum,
byggi, soja og fleiru. Rétt er að benda á
að slíkir drykkir henta ekki börnum undir
tveggja ára aldri, þeim á heldur að gefa
sérstakar ungbarnablöndur.
Sérstaklega ber að nefna að ef grunur
leikur á að ung- eða smábarn sé með
mjólkurofnæmi er foreldrum bent á að
hafa samband við ung- og smábarna-
vernd sem vísa ætti þeim til næringarráð-
gjafa á sviði fæðuofnæmis áður en farið
er að taka út matvæli. Börn á þessum
aldri eru viðkvæmur hópur og eru mjólk-
urvörur mikilvæg uppspretta orku- og
annarra næringarefna. Því er mikilvægt
að fara með næringarráðgjafa yfir hvað
gæti komið í stað mjólkurvöru.
Hér má sjá niðurstöður,
fyrir nokkrar vörur sem
rannsakaðar voru, settar
fram á myndrænan hátt.
58% þeirra vara sem
skoðaðar voru innihéldu
arsenmagn umfram það
sem ESB mun mæla með.
vekur óhug á ný