Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 07.11.2014, Page 37
Helgarblað 7.–10. nóvember 2014 Skrýtið Sakamál 37 R étt fyrir áramót 1970/1980, 30. desember nánar tiltek- ið, fannst lík 82 ára konu á heimili hennar í Volusia- sýslu í Florída í Bandaríkj- unum. Líkið var af frú Bowdoin og lá á gólfi svefnherbergis hennar. Rannsóknarlögreglumaðurinn sem var fyrstur á staðinn, Larry Lewis, sá í hendi sér að Bowdoin hafði ekki mætt dauða sínum með eðlilegum hætti. Áverka var að sjá á framhand- leggjum og undir öðru eyra, skrám- ur á mjöðmum og storknað blóð undir nefi hinnar öldruðu konu. Grunur Lewis fékkst staðfestur við líkskoðun; Bowdoin hafði verið kyrkt. Frekari áverkar komu í ljós á höfði hennar og talið að Bowdoin hefði annaðhvort verið barin í höf- uðið með hvössu áhaldi eða ein- faldlega rekið höfuðið í borðbrún við fall. En umfang áverkanna var slíkt að þeir hefðu nægt til að svipta Bowdoin meðvitund. Kynferðisleg misnotkun Konan aldraða hafði sætt kynferðis- legu ofbeldi fyrir dauða sinn, en ekki var hægt að fullyrða með vissu hvort hún hefði verið með eða án meðvitundar í þeim hörmungum. Fingraför fundust við einn glugga íbúðarinnar og lá nokk- uð ljóst fyrir að árásarmaðurinn hefði komið inn um hann. Fingra- förin reyndust tilheyra Kenneth nokkrum Quince sem bjó í tveggja húsalengja fjarlægð og var hann handtekinn á heimili sínu. Kenneth var yfirheyrður og játaði að hafa brotist inn hjá frú Bowdoin í þeirri trú að enginn væri heima. Hann hefði iðulega verið inni hjá Bowdoin nokkrum árum áður, en þá hefði hann oft slegið flötina fyrir hana. Til fárra fiska metið Kenneth komst hins vegar fljót- lega, þar sem hann snuðraði í íbúð- inni, að því að hann var ekki einn. Frú Bowdoin hafði greinilega heyrt einhvern umgang því hún birtist skyndilega í svefnherbergisdyrun- um. Þegar hún sá hann reyndi hún að loka að sér en Kenneth ruddist inn í svefnherbergið og velti henni um koll. Bowdoin stóð upp og tók að öskra og kalla hástöfum. Kenneth hafði reynt að þagga niður í henni með því að taka hana kverkataki og hrista hana til. Síðan fleygði hann gömlu konunni í gólfið. Við yfirheyrsluna sagði Kenneth að hann hefði síðan haldið áfram leit að verðmætum. Af afrakstrin- um mátti ráða að líf Bowdoin var til fárra fiska metið. Kenneth hafði upp úr krafsinu segulbandstæki, út- varp og hring. Kenneth sagðist hafa stigið á kvið Bowdoin þegar hann hraðaði sér á brott. Um kynferðis- legt ofbeldi hafði hann enga vit- neskju og neitaði öllum ásökunum um slíkt. Kynferðisleg örvun Við síðari yfirheyrslur dembdi lög- reglan á Kenneth vísbendingum og rannsóknargögnum og hann sá að um var að ræða gjörsamlega tap- að spil. Hann viðurkenndi að hafa beitt Bowdoin kynferðislegu of- beldi, en harðneitaði að lýsa því í smáatriðum. Enn síðar þegar sálfræðingar ræddu við Kenneth lýsti hann því hvernig náttsloppur Bowdoin hafði færst upp þegar hann hrinti henni í gólfið. Sýnin af fótleggjum hennar og mjöðmum kveikti með Kenneth svo mikla girnd að hann fékk ekki við neitt ráðið og ákvað að nauðga henni. Svo mörg voru þau orð. Kenneth Quince var dæmdur til dauða 21. október, 1980, og bíður fullnustu þess dóms á dauðadeild. n Innbrot, ofbeldI, morð „Af af- rakstrin- um mátti ráða að líf Bowdoin var til fárra fiska metið n Bowdoin átti sér einskis ills von n Hún þekkti morðinga sinn Kenneth Quince Þegar hann sá fótleggi frú Bowdoin fékk hann ekki við neitt ráðið. Myrti vændiskonur Breskur bankamaður er sakaður um að hafa orðið tveimur indó- nesískum vændiskonum að bana í íbúð sinni í Hong Kong. Mað- urinn, Rurik Jutting, er sakaður um að hafa myrt Seneng Muji- asih, 29 ára, og Sumarti Ningsih, 25 ára. Lík hinnar síðarnefndu fannst í ferðatösku á svölum Juttings í Hong Kong. Maðurinn verður að líkindum ákærður fyr- ir grimmileg morð. Hann mun hafa verið þekktur á vændishús- um í Angeles á Filippseyjum þar sem hann var reglulega gestur í rauða hverfinu. Eigendur stað- anna þar lýsa honum sem rausn- arlegum og að hann hafi greitt fyrir kynlíf og nektardansa. Hann átti að auki í sambandi við eina af nektardansmeyjunum. Upp úr sambandinu slitnaði í ágúst á þessu ári. Hellti salernis- hreinsi í börnin Ung bandarísk móðir, Amelia West, stendur nú frammi fyrir ákæru fyrir tilraun til mann- dráps og barnamisnotkun. Hún er sökuð um að hafa síðastliðinn sunnudag hellt salernishreinsi í börn sín tvö, tveggja mánaða og tveggja ára, áður en hún sturtaði sjálf eiturefninu ofan í sig. Lögreglumenn komu á vett- vang vegna tilkynningar um sjálfs- morðstilraun og varð það til þess að konan sem og börn hennar lifðu. Hegðun konunnar var væg- ast sagt sérkennileg. Í aðdraganda sjálfsmorðstilraunarinnar af- klæddi hún börnin og stóð með þau í bakgarði sínum drykklanga stund áður en hún bankaði upp á hjá nágranna sínum og spurði hvort hann þekkti Jesú. GLÆSILEGUR DÖMUFATNAÐUR Seljum fallegan dömufatnað í stærðum 36-54 Bjóðum þig hjartanlega velkomna Ný spennandi merki TÍSKA ER OKKAR FAG Í 40 ÁR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.