Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 13

Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 13
11 þjálfun á gróf- og fínhreyfingum, gönguþjálfun og teygjur ásamt ADL þjálfun. Nemendur fylgjast hverjir með öðrum og læra hver af öðrum, en geta þeirra er misjöfn og þ.a.l. þarfirnar. Meðferðartíminn verður eðlileg heild af því sem barnið gerir yfir daginn. Barn með c.p. þarf að læra hvernig það á að framkvæma hlutina, sem kemur af sjálfu sér hjá öðrum börn- um. Þess vegna er tíminn mjög mikil- vægur. Petö staðhæfir að enginn einn tími dagsins sé mikilvægari en annar til þess að læra. Allar athafnir daglegs lífs á að nota til þess að læra af þeim. Sérhverjar aðstæður eru námsaðstæð- ur fyrir barn með c.p. Eftir starfið fyrsta veturinn, þ.e. fyrir ári langaði okkur að auka við þekk- ingu okkar á þessari aðferð. Utséð var að þessi þjálfun myndi halda áfram komandi vetur. í fyrrasumar sóttum við, ég og Sigríð- ur Bjarnadóttir þroskaþjálfanámskeið í Englandi sem bar heitið "Promoting the development of children with cerebral palsy". Námskeiðið stóð yfir í 5 daga. Það var ætlað fagfólki sem hefur reynslu í starfi með börnum með c.p. byggða á kenningum Petö. Það var haldið við Percy Hedley school í Newcastle, sem er sérskóli með 120 nemendur þar af 63 með cerebral palsy og 57 með tal- og mál- örðugleika. Námskeiðið byggðist á fyrirlestrum, verkefnum og heimsóknum í skólann og fleiri staði. Á þessum stað er ungverska aðferðin notuð, en aðlöguð að þeirra aðstæð- um og fleiri hjálpartæki notuð en í Ungverjalandi s.s. Rafmagnshjólastólar og tjáskiptatæki. Þetta var námskeið sem við höfðum mjög mikið gagn af. Við fengum staðfestingu á því að við vorum á réttri leið í okkar starfi. Auk þess lærðum við margt nýtt sem hefur nýst okkur vel í vetur og á eftir að gera áfram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.