Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 33

Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 33
31 sérsviða iðjuþjálfunar. Þessi þróun á sér aðallega stað í Bandaríkjunum og við iðjuþjálfanámsbrautina í háskólan- um í Chicago er nú rekin sérstök stofnun, "Clearinghouse", sem fæst eingöngu við að þróa aðferðir innan líkansins og að halda utan um allar rannsóknir og skrif því tengd. Vísir að samskonar stofnunum er einnig í Svíþjóð, Bretlandi og Japan. Líkanið um iðju mannsins byggir á kerfiskenningunni (General Systems Theory), en þar er litið á manninn sem opið kerfi í stöðugum samskipt- um við umhverfi sitt. Aðalhugtök kerfiskenningarinnar eru inntak (input), úrvinnsla (throughput), út- koma (output) og svörun (feed-back), en þessi fyrirbæri mynda stöðuga hringrás. Fyrir manninn sem opið kerfi er inntakið í formi orku og upp- lýsinga frá umhverfinu (t.d. að borða, að lesa). Úrvinnslan á sér stað í kerf- inu sjálfu þar sem kerfið umbreytir orku og upplýsingum til að viðhalda sjálfu sér og til að breyta/aðlaga sjálft sig (t.d. melting, hugsun um það sem lesið var). Útkoman er atferli manns- ins þar sem hann hefur áhrif á um- hverfi sitt (t.d. að nota orku frá fæð- unni til að vera virkur, að tala af þekkingu um það sem lesið var). Svörunin er upplýsingar sem koma til baka til kerfisins um afleiðingarnar af atferli þess (t.d. "ég borðaði of mikið áður en ég fór á fótboltaæfingu, næst aetla ég að borða minna" eða "það var góð tilfinning að hafa þekkingu á efni því sem rætt var um, kannski ég und- irbúi mig á svipaðan hátt eftirleiðis"). Heildarkerfið, maðurinn, á sér þrjú undirkerfi (subsystems), sem er raðað á stigskipta vísu (hierarchialli arrang- ed). Stigskipt kerfi eru hvert öðru háð þannig að efsta kerfið stýrir þeim neðri sem á hinn bóginn takmarka gerðir þeirra efri. Undirkerfin þrjú eru viljakerfið (volition subsystem), vanakerfið (habituation subsystem) og framkvæmdakerfið (performance subsystem). Viljakerfið er fulltrúi fyrir hina innri þörf mannsins til að kanna og hafa vald yfir umhverfi sínu. Það er æðst undirkerfanna og stýrir þar með aðgerðum hinna tveggja. Vilja- kerfið er áhugahvöt (motivation) mannsins sem er orðin til úrgildismati hans (values), áhuga (interests) og trúnni á eigið áhrifavald (personal causation). Vanakerfið er næstæðst undirkerfanna þriggja og lýsir hegðun- armynstri einstaklingsins. Hugtökin hlutverk (roles) og venjur (habits) tilheyra þessu undirkerfi. Hvert það hlutverk (kennari, faðir, fiðluleikari) sem einstaklingurinn er í gerir kröfur til hans um ákveðið hegðunarmynstur. Venjur eru meira og minna sjálfkrafa "rútínur" sem auðvelda daglegar at- hafnir og gefa þeim stöðugleika. Framkvæmdakerfið er lægst undir- kerfanna og er fulltrúi fyrir huga og líkama mannsins. Frá þessu undirkerfi kemur færni mannsins þ.e. hreyfifærni (motor skills), úivinnslu- og skipulags- færni (process skills) og samskipta- færni (communication-interaction skills). Útkoman frá kerfinu er atferli mannsins eins og það birtist í daglegri iðju hans (occupation). Iðja mannsins er eigin umsjá (ADL), störf (work) og tómstundaiðja/leikir(leisureactivities). Þessari iðju er hrint af stað af vilja kerfinu, vanakerfið sér um að koma henni í skipulagt form og setja henni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.