Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 17

Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Blaðsíða 17
15 Nokkur orð um hreyfmám og hreyfireynslu barna Hreyfifærnin (motorik) hefur mikil áhrif á persónuleika einstaklingsins og það er því mikilvægt að fjölbreytt hreyfinám skipi veglegan sess í upp- eldi barna. Rannsóknir sýna að fjöl- breytt hreyfinám á unga aldri hefur mjög jákvæð áhrif á sálarþroska barna auk þess sem það á mun auðveldara með að laga sig að félagslegu um- hverfi sínu. Hreyfifærnin hefur auk þess áhrif á aðrar þroskabrautir og þróun þeirra. Alhliða hreyfinám barna er því undirstaðan, það stuðlar ekki eingöngu að líffræðilegum, sálfræði- legum og félagslegum þroska heldur einnig að heilsteyptum persónuleika. Vinnuaðferðir Þær vinnuaðferðir sem við höfum notað í íþróttaskólanum eru m.a. leikir af ýmsum toga og gerðum, hreyfingar með og án áhalda, hreyf- ingar með tónlist, stöðvaþjálfun þar sem börnin leysa hinar ýmsu þrautir eða ferðast um litlar þrautabrautir þar sem áhersla er lögð á hinar ýmsu skynstöðvar líkamans. Aðrir þættir sem við höfum unnið með er m.a. að vinna með tjáningu, sköpun og túlkun, hrejfa sig eftir hljóðfalli, ýmsar uppá- komur o.fl. mætti nefna. Upphaf íþróttaskólans Sá sem ^rein þessa skrifar er eins og margir Islendingar uppteknir í vinnu og félagsmálum. Eitt af því sem þess- um hópi Islendinga er sameiginlegt er að gefa börnum sínum ekki nægilegan tíma. Fyrir fjórum árum voru tvö barna minna á aldrinum þriggja og fimm ára. Ég rak mig þá á þann hlut eftir lestur góðrar bókar, að nauðsyn- legt væri fyrir foreldra að gefa börn- unum ákveðinn tíma í hverri viku. Sjálf stungu börnin upp á að fara í íþróttahúsið og "leika sér frjálst". Þá mundi ég eftir mínum eigin draumi sem barn, en hann var sá að vera heilan dag í íþróttahúsinu með öll tæki og tól á gólfinu þar sem enginn kennari væri viðstaddur. Ég var þvi ákveðinn að láta þennan draum minn og barnanna rætast. Við urðum okkur því úti um tíma í íþróttahúsinu snemma á laugardagsmorgni og þann- ig hófst Ieikurinn. Ef við göngum út frá orðum spá- mannsins um að við eigum ekki börn- in, heldur séu þau að láni hjá okkur og það er okkar að annast þau og koma þeim til manns og þroska, var ákveðið að bjóða fleirum að vera með. Hópurinn var fljótur að stækka og vinnan í kringum hinn frjálsa tíma óx. Að vísu tóku foreldrarnir mjög virkan átt í þessu frá upphafi og gera enn, þannig að þetta var mjög skemmtilegur byrjunartími. Nú eru börn mín að verða sjö og níu ára en vilja enn vera með í hinum frjálsa leik. En skólinn hefur haldið áfram að þróast á þann veg sem ég hef lýst hér að framan. Hann hefur eflst, fagþekk- ing þeirra sem við hann hafa starfað hefur aukist og þjónusta við foreldra og börn styrkst. Rannsóknir og þróun skólans Við rannsókn á hreyfiþroska barnanna í skólanum á Alftanesi hefur komið í ljós að skólann sækja nú í auknum mæli börn sem þurfa á sérstakri þjón- ustu að halda í tengslum við hreyfing-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Iðjuþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.