Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 28
Þóra Leosdóttir iðjuþjálfi
26
FRÁ FRÆÐ SLUNEFND
Annað þeirra tveggja námskeiða, sem
II stóð fyrir í samvinnu við Endur-
menntunarstofnun og haldin voru af
erlendum iðjuþjálfum, var "Gæða-
trygging innan iðjuþjálfunar". Þetta
var þriggja daga námskeið haldið í
Tæknigarði í veðravilltum janúarmán-
uði sl. Leiðbeinandi námskeiðsins var
danskur iðjuþjálfi að nafni Hans Jörg-
en Bendixen. Hann starfar sem fagleg-
ur leiðbeinandi hjá danska iðjuþjálfa-
félaginu og er, ásamt Tinu Voltelen
formanni félagsins, sá sem hefur stuðl-
að hvað mest að útbreiðslu gæðaþró-
unar meðal kollega okkar í Danmörku
og Svíþjóð.
Þátttakendur voru sautján talsins og
ég held að fullyrða megi að almenn
ánægja hafi verið með námskeiðið.
Að vísu hefði fjöldi þátttakenda mátt
vera aðeins meiri, til að þetta stæði
undir sér fjárhagslega.
Hér verður aðeins stiklað á stóru í
efnislegri umfjöllun, en bent skal á að
lesefni frá námskeiðinu er til á bóka-
safni IÍ.
HVAÐ ER GÆÐAÞRÓUN?
Hans Jörgen hóf námskeiðið á að
skilgreina orð og hugtök. Hann benti
á skilgreiningar í ýmsum þeirra greina
er fylgdu námskeiðsgögnum. Það má
segja að markviss umræða og mótun
gæðaþróunar hafi verið við lýði í
danska félaginu allt frá árinu 1988.
Hans Jörgen undirstrikaði að danskir
iðjuþjálfar hefðu kosið að nota orðið
gæðaþróun í stað gæðatryggingar eins
í upphafi. Gæðaþróun fæli í sér þróun
mála og þar af leiðandi tryggingu
gæða og endurskoðun á þeim.
Gæðaþróun er því:
A. Að koma á fót reglum og stöðlum
við endurskoðun á heilbrigðisþjón-
ustu.
B. Ferli sem fela þarf í sér eftirfar-
andi þætti:
- Skilgreining á vandamáli
- Fastsetja viðmiðanir og staðla
- Upplýsingasöfnun
- Gæðamat
- Orsakagreining
- Gæðaumbætur
- Endurskoðun
C. Ferli sem inniheldur mælingar, mat
og aukningu á gæðum eins og þörf
er á.
U PPS PRETTAN í IÐJUÞJÁLFUN
Mótun og vinna ineð gæðaþróun
krefst þess að við skilgreinum iðju-
þjálfun - hin sígilda spurning: "Hvað
er iðjuþjálfun"?