Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 39
37
SPELKUR
Eins og áður er getið eru spelkur
mikilvæg hjálpartæki við meðferð
handskaða. Þær hafa það meginhlut-
verk að auka hreyfígetu í lið eða
hindra óæskilegar hreyfingar í lið.
Spelkum er skipt upp í aktífar og
passífar spelkur:
Passífar spelkun
- Hindra kreppur.
- Teygja á kreppum eða viðhalda því
sem upp er náð með æfingum.
- Kyrrsetja einn eða fleiri liði í þeim
tilgangi að auka hreyfígetu í öðrum.
- Kyrrsetja lið eða minnka hreyfingu í
lið vegna sýkingar eða eymsla.
- Setja lið í réttar skorður.
Aktífar spelkun
- Gera deformerandi krafta óvirka.
- Gera vöðvum kleift að viðhalda
krafti og auka styrk veikra vöðva.
- Leiðrétta deformitet vegna vöðva-
lömunar á meðan eðlilegum vöðvum
er gert kleift að viðhalda virkni.
- Hagræða liðum í því skyni að við-
halda eðlilegri virkni handarinnar.
Þegar spelkumeðferð kemur til greina
ber að hafa eftirfarandi í huga:
- Forðast tilbúnar spelkur.
- Spelkan skal leyfa eins og kostur er
að nota höndina við eðlilegar að-
stæður.
- Spelkan á ekki að valda sársauka.
- Hafa auga með þrýstipunktum.
- Hafa auga með bjúgmyndun. Þetta
gerist helst ef spelkan nær fram fyrir
líflínuna í lófa.
- Spelkan er hluti af meðferð.
- Gefa sjúklingnum greinagóðar upp-
lýsingar varðandi notkun.
- Bíómekanik.
Á markaðnum eru til margvísleg
plastefni til að búa til spelkur. Hér
verða nefndar þrjár tegundir sem
reynst hafa vel.
Ortóplast
- Orílt
Plastazote
Ortóplast er þaulreynt efni og hefur
verið erfitt að finna efni sem gæti
komið alfarið í þess stað. Það er hent-
ugt við gerð hvíldarspelkna og í allar
stærri spelkur. Efnið er því miður
mjög dýrt.
Orfit er til í fleiri þykktum og það
aðlagar sig vel að öllum strúktúrum.
Það er sérstaklega hentugt til að gera
litlar spelkur, fyrir börn eða á ein-
staka fíngur.
Bæði ortóplast og orfit eru mýkt í
heitu vatni.
Plastazote þarf að hita í ofni við hita
í kringum 130 gráður.
Plastazote er gott að nota í léttar
hvíldarspelkur sem síðan eru styrktar
með plasti.
HELSTU VANDAMÁL í SAMBANDI
VIÐ HANDSKAÐA
Bjúgur myndast við immobiliseringu.
Bjúgur hefur mikil áhrif á hreyfigetu
þar sem hún hindrar eðlilega hreyf-
ingu milli vöðva, sina og beina. Ef
bjúgur er látinn afskiptalaus getur það
leitt til viðvarandi kreppuástands í
einstökum liðum.
Blóðflæðið til handarinnar skeður
volarmegin og blóðflæðið frá hendinni
skeður dorsalmegin. Þetta blóðflæði
til baka þarfnast aktífrar hreyfingar í
hönd, olnboga og öxl.
Eftirtaldar aðgerðir geta hamlað gegn
bjúgmyndun: