Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Page 40
38
Hástaða:
Það vill segja að distali hluti handar-
innar er hærri en proximal hlutinn og
proximal hlutinn er hærri en hjartað.
Kreppuæfingan
Að veifa fingrum gerir ekkert gagn.
Ahrifaríkasta aðferðin er að lyfta
báðum handleggjum hátt upp yfir
höfuð og kreppa fingur kröftuglega
um það bil 20 sinnum í röð helst einu
sinni á klukkutíma fresti.
Aðrar aðferðir sem hafa áhrif
á bjúgmyndun eru:
1. Nudd distalt til proximalt.
2. Taktfastur þrýstingur t.d. blóð-
þrýstingsmanchettur.
3. Vafningur með snæri:
- Fingurnir og höndin vafin með
snæri distalt til proximalt:
- Höndin sett í hástöðu í um það
bil 5 mínútur. Það er æskilegt að
gera þessa meðferð 3 sinnum á dag
ef hún á að hafa tilætluð áhrif.
4. Höndin vafin með teygjubindi í
hvíldarstöðu. Er þá höndin fyllt
með mjúku efni t.d. grisju.
5. Þrýstihanskar t.d. frá Jobst.
6. Gifsvafningar á einstaka fingur.
Fingurinn er þá vafinn með mjóum
gifsræmum. Skipt um daglega eða
þegar sjúklingur getur auðveldlega
tekið hólkinn af.
7. Ulnliðsspelka úr plasti. Spelkan fær
úlnlið í dorsalstöðu og auðveldar
kraftgrip.
þjálfun sem hefst fljótt eftir skaðann
er ætíð vænlegri til að koma í veg
fyrir kreppur. Spelkur með aktífu togi
hafa reynst vel í sainbandi við með-
ferð á kreppum. Skurðaðgerðir eru
sjaldan vænlegar til árangurs því allar
aðgerðir á höndum auka örmyndun
og geta gert illt verra.
Síðast en ekki síst ber að nefna alvar-
legan fylgikvilla eftir handskaða, en
það er reflex sympathetic dystrophy.
Helstu einkennin eru sársauki, bjúg-
myndun, stirðleiki í liðum, breytingar
á litarhætti handarinnar, beinþynning
og atrofi. Þetta ástand er erfitt viður-
eignar og langvinnt og getur leitt til
varanlegrar örkumlunar þrátt fyrir
meðferð. Meðferð við þetta ástand er
áframhaldandi þjálfun. Hér reynist
heimaþjálfun oft árangurslítil og þarf
sjúklingur því iðulega að þjálfa undir
daglegri leiðsögn.
Meðferð eftir aðgerð á flexorisinu
kemur oft til kasta handþjálfarans.
Hér skal því að lokum lýst í stórum
dráttum þeim atriðum sem eru mikil-
vægust í meðferðinni.
Slit á flexorsinu:
Þegar um er að ræða aðgerðir vegna
slita á vöðvasinum þarf að gæta tölu-
verðrar varúðar og fylgja nákvæmri
áætlun þar sem álag er aukið og með-
ferð breytt eftir ákveðinni tímaskipt-
ingu.
KREPPUR eru algengt vandamál eftir
handskaða. Kreppur geta þróast þó að
ýtrustu varkárni sé gætt. Erfiðast
viðfangs eru kreppur í fingurliðum og
þá fyrst og fremst í PIP liðum. Öll
Vika 1-4:
Strax að aðgerð lokinni er lagt á
svokallaða Kleinert tog. Það er spelka
sem er sett dorsalt á hönd strax að
lokinni aðgerð. Togið þarf að vera