Iðjuþjálfinn - 01.06.1993, Side 52
✓
Guðrún A. Einarsdóttir iðjuþjálfi
50
ÖLDRUNARÞJÓNUSTA í HÁTEIGSKIRKJU
Iðjuþjálfar koma víða við. Síðan í
haust hef ég starfað í Öldrunarþjón-
ustu Háteigskirkju. Blaðanefnd kom
að máli við mig og bað mig að greina
frá því starfi sem þarna fer fram, sem
ég mun nú reyna að gera.
Þessi þjónusta hefur verið starfrækt í
sókninni síðan árið 1987. Nú eru tvær
fullar stöðuheimildir, og erum við
þrjár sem skiptum þeim, ein í fullu
starfi og tvær í hlutastarfi.
En hvers vegna slíkt starf innan
kirkjunnar?
Þjónustu og líknarstörf innan krist-
innar kirkju, eru engin ný tíðindi og
ná allt til frumkristni. Jesús Kristur
flutti boðskap sem grundvallaðist á
kærleika Guðs til allra manna sem
endurspeglaðist í lífi Krists hér á
jörðu. Boðun hans og líf eru sú fyrir-
mynd sem kristin kirkja hefur og í
henni felst hvatning til allra kristinna
manna að reynast hver öðrum með-
bræður og systur í hinu daglega lífi.
I þjóðfélagi okkar í dag, hefur hið
opinbera kerfi tekið við hinum ýmsu
líknar- og þjónustustörfum. En kirkjan
er nú samt þarna enn og verður von-
andi alltaf. Því í gegnum tíðina hefur
hún einmitt oft verið brautryðjandi í
þessum málum og hið opinbera kerfi
svo tekið við. T.d. voru það kvenfélög
hinna ýmsu sókna sem höfðu for-
göngu um fótsnyrtingu, hárgreiðslu og
jafnvel leikfimi fyrir gamalt fólk í
sóknum sínum, áður en farið var að
bjóða upp á þessa þjónustu í þjón-
ustumiðstöðvunum. Og enn í dag
býður kirkjan þessa þjónustu þar sem
ekki eru þjónustumiðstöðvar í grennd-
inni. Það má því segja að það kemur
í hlut kirkjunnar að leita uppi ný
verkefni á hverjum tíma og reyna að
mæta þeim þörfum sem brýnastar eru
í það og það skiptið.
Að mínu áliti er þetta einmitt í mikl-
um samhljóm við boðun Krists sem
sagðist vera kominn til að leita að
hinu týnda og frelsa það. Eða eins og
Hanna Þórarinsdóttir hjúkrunarfræð-
ingur sem hóf starfið í Háteigskirkju
kemst að orði í grein sinni um þessi
mál: "Þrátt fyrir rnargs konar tilboð
þjóðfélagsins hinum öldruðu til handa
eru sumir innilokaðir á heimilum
sínum ýmissa hluta vegna, vanmáttug-
ir, einir og afskiptir, í fjötrum - áunn-
um með eða án vilja. Kærleiksþjón-
usta við þá hlýtur að vera meðal
brýnni verkefna kirkjunnar."
Tilhögun starfsins
Frá byrjun starfsins í Háteigskirkju
hefur þjónustan við hina öldruðu, nær
eingöngu verið bundin við vitjanir í
heimahús og er svo enn. Starfsvett-
vangur okkar er sóknin öll og stór
hluti íbúa hennar er einmitt aldrað
fólk, það eru því næg verkefni. Hvern-
ig við komumst í samband við skjól-
stæðingana er eftir mismunandi leið-