Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Síða 26
24
mun fjölbreyttari en það sem þekkist hér á
landi.
Heimsókn I iðjuþjálfaskólann I
Kaupmannahöfn, 6. nóvember
1995
Skólastjóri iðjuþjálfaskólans í Kaupmanna-
höfn, Gitten Hammenberg, tók á móti okkur
og sagði frá starfsemi skólans og uppbygg-
ingu námsins og sýndi okkur húsakynni.
Við höfðum þarna 4 klst. viðdvöl og fengum
mikilvægar upplýsingar og ýmis gögn og
greinar. Húsakynni þarna eru hentug og
rúmgóð. Síðastliðið haust voru teknir upp
nýir kennsluhættir sem kallast „Problem ba-
seret læring". Þetta kennsluform byggir á
virkri þátttöku nemanda, en minni áhersla
er lögð á hefðbundna fyrirlestra og upplýs-
ingamiðlun. Fyrirkomulag þetta ryður sér
nú víða til rúms við menntun ólíkra fag-
stétta. Allir iðjuþjálfaskólarnir í Noregi
fylgja þessu líkani ýmist alveg eða að hluta
og ýmsir af dönsku og sænsku skólunum.
Heimsókn í iðjuþjálfaskólann í
Álaborg, 7. nóvember 1995:
í Álaborg tók á móti okkur skólastjórinn,
Karen Plesner Christensen og auk hennar
tveir af reyndustu kennurum skólans. Iðju-
þjálfaskólinn í Álaborg er einn af minnstu
og yngstu iðjuþjálfaskólunum í Danmörku.
Aðstæður og fyrirkomulag kennslu er nokk-
uð ólíkt því sem gerist í Kaupmannahöfn.
Svipaður háttur var á þessari heimsókn okk-
ar og hinni fyrri. Koma okkar var vel undir-
búin og kennarar útveguðu okkur ýmis
konar gögn, allt frá lýsingum á einstökum
námskeiðum til rannsókna á kennsluhátt-
um. Rætt var um fyrirkomulag kennslu og
starfsnáms og húsakynni skoðuð. Við feng-
um þær fréttir að þarna, eins og í Kaup-
mannahöfn, væri áætlað að auka nemenda-
fjölda og því þyrfti fljótlega að huga að nýj-
um húsakynnum.
COTEC fundur, 8. nóvember,
1995
COTEC samtökin voru stofnuð 1986. Hlut-
verk þeirra er að þróa, samræma og bæta
stöðu iðjuþjálfunar í löndum innan Evrópu-
sambandsins. Fagið er í örum vexti og nú
eru u.þ.b. 48.000 iðjuþjálfar í Evrópu og 158
iðjuþjálfaskólar. Á fundinum voru saman-
komnir iðjuþjálfar víðs vegar að úr Evrópu.
Aðalmál fundarins var fyrirhuguð stofnun
ENOTHE næsta dag, en þau samtök eru ætl-
uð fyrir menntunarstofnanir í iðjuþjálfun.
Þátttaka okkar á fundinum varð til þess að
sett var inn ákvæði í drög að lögum ENOT-
HE sem heimilar þeim löndum, sem stefna
að því að koma upp námi, að taka þátt í
starfi samtakanna sem hálfgildir meðlimir.
Auk þessa var á fundinum rætt um gæða-
stjórnun í menntun og starfi og lagðar fram
skýrslur frá aðildarfélögum.
Stofnfundur ENOTHE, 9. nóvem-
ber, 1995
Markmið ENOTHE er að efla samskipti
milli menntastofnana í iðjuþjálfun í þeim til-
gangi að bæta menntun og stuðla að faglegri
þróun innan fagsins. Fluttir voru fyrirlestrar
fyrir alla þátttakendur og einnig skipt í um-
ræðuhópa sem fjölluðu um fyrirkomulag og
uppbyggingu náms. Námið í Evrópu er ým-
ist 3 eða 4 ár og víða er stefnt að því að koma
því á B.S. stig. Þátttakendur voru sammála
um það að yfirferðin væri of mikil miðað við
3ja ára nám. Víða eru þó tæknilegir örðug-
leikar á lengingu, þar eð nám hjá skyldum
stéttum er einnig 3 ár og lenging myndi
kalla á kerfisbreytingar.