Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Síða 45

Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Síða 45
43 ferlihjálpatækjum fyrir ung fötluð börn eru strax nokkrar spurningar sem vakna, svo sem: Hvort hið fatlaða barn eigi að fá ferlihjálpartæki, hvaða tæki og hvenær (Wright-Ott og Egilson, 1996). Það er ekki alltaf einfalt að svara spum- ■ngunni hvort fatlað barn eigi aðfá ferlihjálpar- tæki og stundum skortir á einingu um þessi mál meðal fagmanna. Þetta á sérstaklega við um notkun göngugrinda og rafknúinna hjálpartækja. Og vissulega er að mörgu að gæta. Ef göngugrind hentar barni ekki nægi- fega vel, þá er hætt við að það noti óæskileg- ar hreyfingar til að knýja hana áfram. Slíkt er gagnstætt meðferðarsjónarmiðum og get- ur í vissum tilvikum seinkað eða dregið úr hreyfiþroska og þar með framtíðarmögu- feikum. í dag eru reyndar flestar göngu- grindur með fjölbreytta stillimöguleika og bjóða upp á betri stöðu en á árum áður. Notkun ferlihjálpartækja getur sannanlega ýtt undir aðra þroskaþætti hjá ungum hreyfihömluðum börnum, s.s. sálfélagslega feerni, málþroska og möguleika á samskipt- um. Rannsóknir Paulsson (1984) og annarra staðfesta engan veginn að notkun rafknú- 'nna hjálpartækja komi í veg fyrir eða seinki hreyfifærni. Niðurstöður sýna, þvert á móti, °ft aukna höfuðstjóm og meiri stöðugleika í hol. Einnig sýna mörg böm aukinn áhuga á líkamlegri þjálfun, sem og aukið þor og sjálfstraust í hreyfingum. - Hvenær ættu fótluð börn að byrja að nota ferlihjálpartæki? í dag er tilhneiging til að byrja fyrr en áður var gert, þ.e. á sama aldursbili og þeg- ar ófötluð börn byrja að fara um. Ýmsir frasðimenn álíta að ef fötluð börn komast ekkert um sjálf, þá eigi að huga að hjálpar- t®kjum þegar á öðru aldursári. Með rann- sóknum á þessu sviði hefur Butler (1988) sýnt fram á að 17 mánaða börn geta komist um örugglega í rafknúnum hjálpartækum. Það er stundum erfitt fyrir þjálfara og lækna að mæla með notkun ferlihjálpar- tækja, sérstaklega hjólastóla, fyrir ung fötluð börn. Foreldrar kunna að taka þessu sem uppgjöf og vísbendingu um að bamið muni aldrei geta farið um sjálft. Það sem ber þó að hafa að leiðarljósi er að öll börn hafa þörf fyrir að fara um sjálf og tilgangurinn með tækinu er að auka sjálfstæði og fæmi barns- ins þangað til og hvort sem það nær að fara um sjálft síðar meir eða ekki. - Hvaða tæki ber að velja? Það er margt sem ber að athuga við val á ferlihjálpartækjum fyrir ung fötluð börn. Til- ganginn með notkun tækisins ræður að sjálfsögðu miklu, en einnig þarf að huga vel að líkamlegri og sálfélagsleg færni barnsins og takmörkunum. Umhverfið þar sem nota á tækið skiptir miklu. Það ber að vega og meta kosti og galla tækisins miðað við fyrir- hugaða notkun, hvernig notkun þess sam- ræmist meðferðarsjónarmiðum og lokum að athuga hvað tækið kostar í peningum miðað við það sem við fáum í aðra hönd. Þar sem ólík tæki gefa ólíka möguleika er oft þörf fyrir fleiri en eitt ferlihjálpartæki. Hvað sem verður fyrir valinu, í öllum tilvik- um er þörf á góðri skipulagningu og náinni samvinnu milli þeirra fagaðila sem með barnið vinna og fjölskyldu þess. Flokkun fatlana og áhrif þessa á val á ferlihjálpartækjum Við val á hjálpartækjum hér á landi hafa hagkvæmnissjónarmið gjarnan verið ríkj- andi, en minna verið hugað að þroskasjón- armiðum. Hér er þó til staðar mikil klínísk reynsla og þvi ætti að vera auðvelt að huga

x

Iðjuþjálfinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.