Iðjuþjálfinn - 01.06.1996, Side 49
47
Björk Pálsdóttir iðjuþjálfi
Af erlendu samstarfi
Ég ætla lítil-
lega að
kynna það
erlenda sam-
starf sem ég
hef tekið þátt
í vegna starfs
míns sem
iðjuþjálfi hjá
Trygginga'
stofnun rík-
isins (TR) s.l. 10 ár. Ég var ráðin í
hlutastarf hjá TR 1. aprfl 1986 til að
hyggja upp hjálpartækjaþjónustu
stofnunarinnar, með það í huga að
hæta þjónustuna og að endurnýta
hjálpartæki svo að draga mætti úr
kostnaði. í ársbyrjun 1988 var ég
fastráðin í fullt starf hjá TR.
Strax í upphafi starfs míns hjá TR þurfti ég
að kynna mér hvernig staðið er að hjálpar-
t*kjamálum í hinum norrænu löndunum.
klér var alls staðar tekið mjög vel, en löng
°g góð hefð er fyrir norræna samvinnu á
sviði hjálpartækja. Allir voru ánægðir að fá
fulltrúa frá íslandi í þennan geira og mörg
tengsl mynduðust strax í upphafi. Fljótlega
varð þetta meira og meira og ekki vanþörf á
fyrir okkur hér heima í uppbyggingunni
varðandi hjálpartækjasviðið, að læra af ná-
grannaþjóðum okkar. Miklum fjármunum
er veitt í þennan málaflokk á vegum TR (um
550 milljónir á ári) og því mikilvægt að læra
af nágrannaþjóðum hvernig best er að hafa
þessa starfsemi hér heima. Aðallega voru
tengslin í byrjun við Danmörku, Noreg og
Svíþjóð, en uppbyggingin í Finnlandi er þó
nokkuð öðru vísi en í hinum löndunum.
Fjölmargir fundir/ráðstefnur stærri sem
minni, almennir og sérhæfðir hafa gefið
ómælda aðstoð við uppbygginguna hér
heima og er stöðug enn, því alltaf erum við
að fara inn á ný svið sem nágrannaþjóðirnar
hafa árareynslu af. Má þar nefnda síðast
upplýsingafundir varðandi útboð á hjálpar-
tækjum, en við erum nýlega byrjuð með út-
boð á hjálpartækjum hér á landi.
Ávinningur af þessu erlenda samstarfi
gerir okkur kleift að fylgjast með hvað er að
gerast í kringum okkur, hvaða kröfur eru
gerðar og sparar okkur vinnu við að finna
upp hjólið á ný. Við sækjum styrk og þekk-
ingu sem kemur til góða í hagræðingu og
tryggingu að sem besta kerfi, m.t.t. þjónustu
og gæða. Tengslin tryggja og auðvelda okk-
ur að leita til nágrannaþjóða eftir hvers kon-
ar upplýsingum.
Uppbygging hjálpartækjamiðstöðvar TR
hefur verið mjög skemmtilegt og gefandi