Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Síða 7
Þátttakendur á Nor-
rænum formannafundi.
Frá vinstri: Virpi Aral-
inna formaður og Kari
Carlberg varaformaður
frá Finnlandi, Hope
Knútsson frá íslandi,
Inga-Britt Lindström frá
Svíþjóð, Karin Liabö frá
Noregi og Tina Vol-
telen frá Danmörku.
Norrœiat samstarf
Hope Knútsson segir frá
I 17 ár hafa formenn Norrænna
iöjuþjálfafélaga hist einu sinni á
ári. Fyrsti fundurinn var áriö
1981 í tengslum viö „Nordisk
Seminar" sem þá var haldiö
fyrsta sinni, reyndar á íslandi.
Formennirnir hittust í þetta
skipti dagana 28. og 29. ágúst í
sumar sem leiö, í miöaldaþorp-
inu Visby á eyjunni Gautlandi í
Svíþjóö. Viö vorum sex manns
sem sóttum fundinn, fimm for-
menn og einn varaformaöur.
Stiklað á stóru
Markmið fundanna er að bera saman
bækur um félögin og starf þeirra, taka
ákvörðun um samvinnu Norræna iðju-
þjálfa t.d. „Nordisk Kongress" sem áður
hét „Nordisk Seminar", samhæfa af-
stöðu okkar innan Heimssambands iðju-
þjálfa og Evrópunefndar iðjuþjálfa, auk
þess að fylgjast með útgáfu Scandinavi-
an Journal of Occupational Therapy. Eg
vil hér á eftir miðla helstu atriðum er
varða starfsemi hjá hinum Norrænu fé-
lögunum.
Danmörk
Dönskum iðjuþjálfum þykir nýja launa-
kerfið í Danmörku krefjast meiri tíma og
krafta en áður. Jafnframt finnst þeim það
nýja réttlátara að mörgu leyti. Félagið
samdi bækling fyrir meðlimi sína þar
sem finna má leiðbeiningar um hvernig
semja á um laun þegar skipt er um starf.
Gerð var könnun á því hvar iðjuþjálfar
störfuðu og 92% félagsmanna svöruðu
könnuninni.
Danska iðjuþjálfafélagið gekk nýverið
í heilbrigðisdeild regnhlífarsamtaka
ásamt átta öðrum fagstéttarfélögum.
Þessi deild talar fyrir hönd 100.000
manns. Formenn aðildarfélaga heilbrigð-
isdeildar hittast mánaðarlega og eru ný-
búnir að semja drög að endurbættri
grunnmenntun hjá þeim stéttum sem
eiga aðild. Stungið er upp á að stofna
heilbrigðisskor við þá fimm háskóla í
Danmörku sem bjóða upp á nám í grein-
unum. Danska félagið hefur einnig stað-
ið að upplýsingaherferð um álagsein-
kenni hjá börnum og ungmennum sem
nota tölvur.
Noregur
Norska félagið heldur nú aðalfundi á
þriggja ára fresti og er almenn sátt um
þetta fyrirkomulag. Það þykir vera tíma-
sóun að undirbúa aðalfundi árlega. Nú
semur stjórnin mjög vandaða starfsáætl-
un og hefur svigrúm til að fylgja henni
eftir. Stjórnarmenn eru þá kosnir til
þriggja ára í senn. Stjórn norska iðju-
þjálfafélagsins kemur saman mánaðar-
lega og fundar í heilan dag og stundum
tvo daga. Þess má geta að stjórn IÞI kem-
ur saman hálfsmánaðarlega í a.m.k. 2
klst. í senn. Norska félagið hefur ekki
lengur fastar nefndir en í stað þeirra
starfa vinnuhópar, hver með sína vinnu-
áætlun og markmið.
Norskir iðjuþjálfar héldu sitt fyrsta
landsþing fyrir ári síðan og 400 af 1700
starfandi iðjuþjálfum í Noregi tóku þátt.
Þema ráðstefnunnar var „Vinna og
heilsa". Unnið er að því að stofnaður
verði einn eða jafnvel tveir skólar í við-
bót við þá fjóra sem fyrir eru. Vonast er
til að stofnaðir verði skólar í Stavanger
og annað hvort í Álesund eða Hedmark.
í dag eru 178 pláss fyrir iðjuþjálfanema
og vill félagið gjarnan sjá að þau verði
300 á ári. Norska þingið hefur beðið um
samræmda áætlun um endurhæfingar-
þjónustu.
Finnland
Innan iðjuþjálfafélags Finna eru 20
svæðisfélög sem fá fjármuni frá aðalfé-
laginu. Sum þeirra eru óformleg eins og
leshringir, sum starfa sem stéttarfélög og
önnur sem fagfélög. Nú eru 20 finnskir
iðjuþjálfar í nýju mastersnámi í Finn-
landi sem Barbara O'Shea og Gary Kiel-
hofner hafa aðstoðað við að koma á fót.
Grunnmenntun iðjuþjálfa í Finnlandi er
að breytast. Áður voru iðjuþjálfa- og
sjúkraþjálfaranemar saman í upphafi
námsferilsins en fóru aðskildar leiðir
seinna í náminu. Þetta reyndist ekki vel
þannig að nú er menntun þessara
tveggja greina að fullu aðskilin. I finnska
launakerfinu eru einungis tveir launa-
taxtar, fyrir almenna iðjuþjálfa og yfir-
iðjuþjálfa.
Svíþjóð
í Svíþjóð eru átta iðjuþjálfaskólar með
samtals 440 nema. Nú er sú hugmynd
uppi að betra væri að hafa sex skóla með
fleiri nemum í hverjum skóla. Sænskir
iðjuþjálfar eru loksins að fá löggildingu!
í nóvember halda þeir upp á 20 ára af-
mæli sameiningar fags- og stéttarfélags.
Félagið sendir fulltrúa í iðjuþjálfaskól-
ana sem fræða nemendur um hvernig á
að sækja um vinnu og semja um laun að
loknu námi. I október ár hvert heldur
sænska félagið iðjuþjálfadaga. Þá leggja
öll svæðisfélögin sem eru 31 talsins fram
vinnu í því tilefni. Félagið velur þema og
í ár er þemað „öldrun". Gefin eru út
IÐJUÞJÁLFINN 2/98 7