Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Page 9

Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Page 9
RANNSÓKNIR í iðjuþjálfiAM þessar mundir er unniö aö al- þjóölegri réttmætingu (validation) a roatstækinu „Occupational Per- f°finance Histroy Interview 11“ (OPhl-||) og er þaö liður í rann- s°kn á þróun og mati á því. Rann- sóknin fer fram viö lllinois háskól- ann í Chicago í Bandaríkjunum og er henni stýrt af Gary Kielhofner. Kr'stjana Fenger, iöjuþjálfi greinir ^er ffá verkefninu. OPHI-II í íslenskri þýðingu Veri3 er að þýða matstækið yfir á ýmiss tungumál, svo sem dönsku, finnsku, flæmsku, frönsku, íslensku, japönsku, íuversku, portúgölsku, spænsku, s*nsku og þýsku. íslenska þýðingin er í öndum Guðrúnar Pálmadóttur, Krist- jonu Fenger og Sigríðar Jónsdóttur. Þær Þ>ka jafnframt þátt í rannsókninni, en Pátttaka í henni stendur öllum iðjuþjálf- um opin. Rannsakendur fá í hendur, sér a<"' kostnaðarlausu nýútkomna handbók niL'ð matinu. Þeirra hlutur í rannsókn- inni er, auk þess að kynna sér handbók- ina og þekkja vel til líkansins um iðju mannsins (Model of Human Occupation) að meta tvo einstaklinga út frá myndböndum sem send eru frá Chicago. Ennfremur þurfa þeir að meta þrjá einstaklinga á sínum vinnustað. Mæli- tækið OPHI-II byggir á líkaninu um iðju mannsins og er bæði eigindlegt, þar sem iðja og líf einstaklingsins er skoðuð frá sögulegu sjónarhorni og megindlegt eða magnbundið, þar sem notuð er stigagjöf. Mælitækið er þrískipt: • Viðtal. í þeim hluta eru spurningar sem spyrjandi getur stuðst við, til að fá fram sögu skjólstæðingsins varðandi fimm þætti: hlutverk, daglegar venj- ur, athafnasvæði, val athafna og iðju og atburði er markað hafa tímamót. • Stigagjöf. Notaður er fjögurra þrepa skali sem metur iðjutengda sjálfsmynd (occupational identity), færni við iðju (occupational competence) og at- hafnasvæði (occupational behavioral settings). • Ævisöguform. Hér er saga skjólstæðings skoðuð út frá tilteknu myndrænu formi. Stefnt er að því að þýðingu ljúki á árinu 1999. Ekki er stefnt að þýðingu á hand- bókinni í bráð. Canadian Occupational Performance Measure (COPM) á íslensku Verið er að gera formlegan samning við Dr. Mary Law, sem er í forsvari fyrir út- gáfu matstækisins „Canadian Occupatio- nal Performance Measure" um endan- lega íslenska þýðingu á eyðublaðinu. Til- raunaútgáfa hefur verið í notkun, meðal annars á Reykjalundi um nokkurt skeið. Stefnt er að því að semja síðar um sölu eyðublaðanna hér á landi. Þýðingin á COPM færnimælingunni er unnin af iðjuþjálfunum Guðrúnu Pálmadóttur, Kristjönu Fenger, Margréti Sigurðardótt- ur og Sigríði Jónsdóttur. KF Af kynmKigarmálum s almennum félagsfundi IÞÍ nýverið voru kynningarmál til umfjöllunar. Rædd var nauðsyn þess að efla kynn- ingu á iðjuþjálfun og hvaða leiðir mætti fara í því sam- andi. Ymsar hugmyndir voru uppi og fundarmenn sammála Ulu að bæði þurfi að gera átak í að kynna námsbrautina og starfsgreinina sem slíka. Stofnaður var starfshópur um al- mannatengsl og markaðssetningu iðjuþjálfunar. í starfshópn- um eru eftirtaldir iðjuþjálfar: Guðrún Pálmadóttir, Þóra Leós- dóttir, Hrönn Birgisdóttir, Björk Pálsdóttir, Guðrún Hafsteins- dóttir og Sigríður Kr. Gísladóttir. ÞL IÐJUÞJÁLFINN 2/98 9

x

Iðjuþjálfinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.