Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Side 25

Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Side 25
sem koma fram í fyrsta og þriðja þrepi eru venjulega grunnur þessarar grein- ingar. Skjólstæðingar hafa líkamlega, til- finningalega og hugræna styrkleika og leikni á ýmsum sviðum. Til dæmis er sterk löngun til að snúa til vinnu, eða takast á við heimilisstörf mikilvæg í bar- áttunni við færnivandann. Sjálfstæðis- hugsjón Islendinga, skopskyn og áhugi á að taka virkan þátt í að bæta færni eru frekari dæmi um styrkleika skjólstæð- ings. Skjólstæðingarnir hafa reynslu af að leysa eigin mál og iðjuþjálfar geta nýtt sér reynslu þeirra. Fjölskylda og vinir sem fræðst hafa um vandann geta virkað sem stuðningsúrræði í umhverfi. Sambýli, fjárhagsaðstoð eða önnur að- stoð sem veitt er af samfélaginu eru einnig dæmi um úrræði í umhverfi skjól- stæðingsins. Sá styrkur sem iðjuþjálfinn býr yfir og þau úrræði sem hann þekkir, skipta máli í skjólstæðingsmiðaðri íhlutun að því marki sem það snertir lausn á færni- vanda. Iðjuþjálfinn býr yfir sérfræði- þekkingu til eflingar iðju. Úrræði sem standa iðjuþjálfanum opin geta einnig verið samstarfsaðilar með sérþekkingu og fræðilegt efni sem styrkir iðjuþjálfann í starfi sínu. Starfsumhverfi iðjuþjálfa Reykja- lundar hefur áhrif á hvað hægt er að bjóða skjólstæðingum. Til dæmis getur mikið sjúklingaflæði takmarkað þann tíma sem iðjuþjálfi ver utan stofn- unar með skjólstæðingi. Frekar verður rætt um úrræði innan Reykjalundar í sjötta þrepi þar sem fjallað verður um íhlutun. • Fimmta þrep: Komast að samkomulagi um að hvaða árangursmarki skuli stefnt og móta áætlun þar að lútandi Arangursmark (target outcome) er nám- kvæmara en hugtakið markmið (goal) samkvæmt höfundum líkansins. Arang- ursmark felur í sér sameiginlega áætlun skjólstæðings og iðjuþjálfa um hver geti orðið árangur iðjuþjálfunar, mældur í færni við iðju og ánægju með færnina. Skjólstæðingur og iðjuþjálfi koma sér saman um árangursmark og þróa fram- kvæmdaáætlun. Ákveða þarf fyrirfram hæfilega stór skref sem stigin eru í átt að árangursmarki og tengast færni við þá iðju sem er í brennidepli. Árangursmark þarf að vera mælan- legt þannig að vitað sé hvort og hvenær því er náð. Lýsa þarf nákvæmlega hvernig gögnum verður safnað til að meta árangur. Því er nauðsynlegt að hafa þekkingu á þeirri færni sem skjól- stæðingurinn hefur áður en þjálfun hefst, annars er ekki unnt að mæla ár- angur. Aðferðir til að efla færni skjól- stæðings við iðju eru skoðaðar með hon- um og áætlun gerð. Áætlunin verður að vera í samræmi við gildi, trú og vonir skjólstæðings. Framkvæmdaáætlun get- ur falið í sér aðferðir til að þróa, endur- byggja, viðhalda og efla færni við iðju eða koma í veg fyrir vanhæfni við iðju. í þessu þrepi eru bæði höfð í huga þau úrræði sem Reykjalundur býður upp á og þau sem finna má utan stofn- unar. Út frá úrræðunum fer fram stundatöflugerð með skjólstæðingnum og þá um leið val á þeirri iðju sem þokar honum að árangursmarkinu. Nánar er fjallað um úrræði á Reykjalundi í sjötta þrepi. íhlutun iðjuþjálfans er ekki lokið fyrr en árangur hefur verið mældur. Mælt er hvort færni við iðju hefur aukist og hvort árangursmarki er náð. Þetta þrep er afar mikilvægt til að sýna fram á gildi iðjuþjálfunar. • Sjötta þrep: Hrinda áætlun í framkvæmd með iðju í þessu þrepi er áætluninni hrundið í framkvæmd með iðju. Til að hafa áhrif á færni einstaklings við iðju eru farnar þrjár leiðir: - að hafa áhrif á iðju skjólstæðings, til dæmis með því að skipuleggja daginn með stundatöflu, prófa nýja iðju og æfa sig í nýjum eða gömlum aðferð- um við iðju. - að hafa áhrif á skjólstæðing, til dæmis með fræðslu um streitustjórnun, lík- amsbeitingu, slökun, mataræði, jafn- vægi í daglegu lífi og hreyfingu. - að hafa áhrif á umhverfi skjólstæðings, til dæmis með því að breyta vinnuað- stöðu, fræða fjölskyldu og vini. Hér verða nefnd þau tilboð sem bjóðast við íhlutun iðjuþjálfa á Reykjalundi og nýtt eru af skjólstæðingum geðteymis: l)Tilboð sem geta haft áhrif á iðju skjól- stæðings og þannig bætt færni, eru meðal annars alls kyns handíðir, eld- húsverk og tölvuvinna. Einnig flokkast hér undir verklegar æfingar streitu- stjórnunar, slökunar, neysluhæfingar og bakskólans. Utan iðjuþjálfunar- deildarinnar, er eins og áður sagði boð- ið upp á alls kyns íþróttir og hreyf- ingu. Einnig er möguleiki á vinnuþjálf- un á verkstæðum Reykjalundar og jafnvel verndaðri vinnu í framhaldi af því. Utan staðar er stundum farið í banka og búð eða inn á heimili skjól- stæðinganna. 2) Tilboð sem geta haft áhrif á skjólstæð- inga og þannig bætt færni, er fræðsla af ýmsu tagi og hér skal sagt frá því sem skjólstæðingar geðsviðs nýta sér: • Hugræn atferlismeðferð. Á hana hefur verið minnst áður. Streitustjórnun og slökun er 8 tíma námskeið, 50-60 mín- útur í senn. Þátttakendur eru átta á hverju námskeiði og eingöngu áhuga- sömum skjólstæðingum er boðin þátt- taka. Markmið námskeiðsins er að fólk átti sig á streituvöldum í eig- in lífi, beri kennsl á einkenni streitu hjá sjálfum sér, finni leiðir til að vinna á streitu og æfi sig í einni þeirra, það er að segja slök- un. Kennsluaðferðir eru fyrir- lestrar, heimaverkefni, umræður og verklegar æfingar. • Slökun í hádeginu fyrir alla vist- menn hússins. Þetta er hvíldarstund í 30 mínútur, fjórum sinnum í viku. • Fræðsla fyrir vistmenn, á vegum geðteymis. Þar mæta 20-40 manns og er fræðslan opin öllum, en þátttak- endur þurfa að skrá sig til geta sótt fyrirlestrana. Þetta eru sex sjálfstæðir fyrirlestrar sem fjalla um: Jafnvægi í daglegu lífi, samskipti, áfallahjálp, stjórn á streitu og kvíða, sjálfsmat og fíkn. Fyrirlesturinn um jafnvægi í daglegu lífi er í höndum iðjuþjálfa. Þar er fjallað um hlutverk, venjur og viðfangsefni tengd ólíkum æviskeið- um og þroska. Einnig um það hvern- ig einstaklingurinn aðlagar sjálfs- mynd að eigin þroska og hvernig skyndileg breyting vegna slysa eða veikinda hefur áhrif á færnina til að sinna hlutverkum og takast á við daglega iðju. Þegar færnin minnkar þá dvínar oft sjálfstraustið og sjálfs- myndin breytist til hins verra. Þessar breytingar valda stundum kvíða og depurð. Fjallað er um leiðir til úrbóta. IÐJUÞJÁLFINN 2/98 25

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.