Iðjuþjálfinn - 01.12.1998, Page 32
Jrá iöjuþjálfunarbraut
Háskólans á Akureyri
Verknám í iðjuþjálfun
Þessari grein er ætlað að
gefa lesendum hugmynd
um tilhögun verknáms-
kennslu í iðjuþjálfun og
þroskaferli nemenda á
mismunandi verknáms-
tímabilum.
Leitast er við að sam-
ræma og flokka kröfur og
væntingar til nemenda og
veita ráðleggingar um
leiðsögn.
Lýsing og markmið
Tilgangurinn greinarinnar er að:
• veita nemendum og verknámsleiðbeinendum lýsingu á mis-
munandi verknámstímabilum og þeim markmiðum sem
fylgja hverju þeirra
• auðvelda leiðbeinendum að skilja til hlítar þarfir nemenda á
hverju tímabili og veita ráðgjöf um tilhögun leiðsagnar
• auðvelda leiðbeinendum að meta hvað vinnustaður þeirra
hefur upp á að bjóða og að skipuleggja aðstæður og vinnu-
brögð í samræmi við þarfir nemenda á mismunandi tíma-
bilum
• leiðbeina um skipulag verknáms í iðjuþjálfunarnámi við há-
skólann á Akureyri
Nemendur á iðjuþjálfunarbraut Háskólans á Akureyri eru
1000 klukkustundir í almennu verknámi og skiptast þær sem
hér segir:
VNI0102 Verknám I
VNI0203 Verknám II
VNI0304 Verknám III
VNI0404 Verknám IV
vorönn 2.árs 160 stundir
haustönn 3.árs 240 stundir
haustönn 4.árs 280 stundir
vorönn 4.árs 320 stundir
Að auki er verknám samþætt við bóklega kennslu í
nokkrum námskeiðum.
I handbók vegna verknáms í iðjuþjálfun er að finna mun
ítarlegri lýsingar á markmiðum hvers verknámstímabils, rétt-
indum og skyldum nemenda, verknámsleiðbeinenda og
kennara, auk annarra hagnýtra upplýsinga. Einnig ber að
hafa til hliðsjónar kennsluskrá Háskólans á Akureyri, en þar
eru upplýsingar um tilhögun náms í iðjuþjálfun. í námskeiðs-
lýsingum kemur fram hvað kennt er á hverri önn og endur-
spegla þær fræðilegan bakgrunn nemenda á hverju tímabili.
2 IÐJUÞJÁLFINN 2/98