Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.2009, Page 25

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.11.2009, Page 25
Tímarit hjúkrunarfræ›inga – 5. tbl. 85. árg. 2009 21 tengd lungum algengir fylgikvillar aðgerða. Hjúkrunarfræðingar meta stöðugt mikilvæga þætti eins og öndunartíðni með því að horfa og hlusta á sjúklinga en mæla þegar þeir sjá ástæðu til. Það kemur mér ekki á óvart að öndunartíðni er ekki oftar skráð í rannsókninni. Eftir að súrefnismettunarmælar urðu algengari eru mælingar á öndunartíðni sjúklinga ekki gerðar reglulega. Þó að það sé einfalt að telja öndun er það tímafrekara en mettunarmæling. Mæling á súrefnismettun er oft gerð á minni deild og súrefni gefið eftir þörfum enda er er það í samræmi við niðurstöðu rannsóknarinnar. Ég er samt sammála því að hjúkrunarfræðingar geta að einhverju leyti vaktað og skráð betur öndunartíðni alvarlega veikra sjúklinga. Hins vegar tel ég óraunhæft að ætlast til þess að fylgst sé svo nákvæmlega með lífsmörkum allra sjúklinga sem sýna engin klínísk einkenni um versnandi ástand. Stór þáttur í starfi hjúkrunarfræðinga á skurðlækningadeild er að fylgjast með vökvajafnvægi sjúklinga, til dæmis vegna hættu á vökvasöfnun eftir aðgerðir, sérstaklega í lungum. Nákvæmt mat á útskilnaði er venjulega framkvæmt fyrst eftir aðgerð eða meðan sjúklingur er með þvaglegg. Mæling á útskilnaði er reyndar stundum gerð þó enginn þvagleggur sé til staðar ef ástæða þykir til. Í rannsókninni kom líka fram að þvagútskilnaður var mældur í 42% tilvika en þvagleggur var aðeins til staðar hjá 29% sjúklinga. Ekki kemur fram hvort þvagleggur hafi verið til staðar í einhvern tíma, eins og mér finnst líklegt í mörgum tilfellum, eða settur upp stuttu fyrir innlögn. Þvagleggsuppsetning tekur nokkurn tíma og oft liggur meira á annarri meðferð við bráðaaðstæður. Ég leyfi mér að efast um að það sé raunhæft að ætlast til þess að skráning útskilnaðar sé betri en raun ber vitni. Minnkuð eða skert meðvitund sjúklinga er merki um alvarlegt ástand, eins og öndunarbilun. Mat á meðvitund fór aðeins fram hjá 48% sjúklinga. Það kemur ekki á óvart þar sem slíkt mat er að öllu jöfnu ekki skráð nema meðvitund sé skert eða breyting sé á henni. Mér finnst að skráning meðvitundar mætti vera markvissari þar sem ég hef unnið og tel að skortur á notkun matskvarða hafi staðið í vegi fyrir henni. Hjúkrunarfræðingar veigra sér oft við því að skrá þetta mat því það er mjög huglægt og gæta þarf ýtrustu virðingar fyrir þeim sem um er fjallað. Til eru einfaldir matskvarðar sem þarf að hvetja hjúkrunarfræðinga til að nota í meira mæli. GÁT-teymið Í kjölfar rannsóknar Þorsteins og félaga eða árið 2007 var sett á laggirnar gjörgæsluteymi (GÁT) og samfara því innleitt matsblaðið SBS á legudeildum. Ég fagna mjög starfsemi GÁT­teymisins og tel það mikið framfaraspor í meðferð bráðveikra sjúklinga. Mat samkvæmt SBS hjálpar hjúkrunarfræðingum við hlutlægt mat á ástandi sjúklinga og auðveldar samskipti milli starfsfólks gjörgæslu og legudeilda. Það má samt ekki gleymast að stigun samkvæmt mælingum á lífsmörkum er einungis mikilvægt hjálpartæki en klínískt mat hvers hjúkrunarfræðings það sem skiptir mestu. Það kemur því ekki á óvart að langflest útköll teymisins fyrstu starfsmánuði þess voru vegna „óskilgreindra áhyggna starfsmanna“ (Landspítali­háskólasjúkrahús, 2008). Það er styrkur fyrir hjúkrunarfræðinga að geta kallað á faglegt teymi til aðstoðar milliliðalaust þegar þeir telja ástæðu til, sérstaklega á kvöld­ og næturvöktum þegar þeir bera ábyrgð á fleiri sjúklingum og aðgengi að læknum er minna. Ég trúi því að með tilkomu GÁT­teymisins verði dreifing innlagna frá legudeildum á gjörgæslu jafnari yfir sólahringinn, en skv. rannsókn Þorsteins og félaga voru slíkar innlagnir langsamlega flestar á dagvöktum. Á fyrstu 8 starfsmánuðum teymisins voru innlagnir á gjörgæslu í kjölfar útkalla teymisins 55% (Landspítali­ háskólasjúkrahús, 2008). Tilfinning mín er sú að eftir tilkomu GÁT­teymisins hafi bráðveikir sjúklingar oft og tíðum komist fyrr á gjörgæslu en ella hefði orðið og hin sérhæfða meðferð náð að nýtast þeim betur. Það hlýtur að teljast gott að 45% útkalla teymisins hafi leitt til þess að meðferð var haldið áfram á legudeild. Reynslan erlendis sýnir þó að búast megi við að 70% útkalla til sjúklinga leiði til afgreiðslu á deild. Ef slík verður raunin hér þýðir það ekki endilega að mínu mati að færri sjúklingar fari á gjörgæslu heldur frekar hitt að útköllin verði fleiri. Útköllum teymisins hefur efalaust fjölgað mjög síðan á fyrstu starfsmánuðum þess þar sem starfsfólk á deildum var enn að venjast notkun þess. Höfundar greinarinnar benda á að breytingar á starfsemi heilbrigðisstofnana á Vesturlöndum á undanförnum árum hafi leitt til þess að sjúklingar eru sífellt eldri og veikari. Skurðlækningadeildir LSH hafa ekki farið varhluta af þessari þróun með tilheyrandi fjölgun alvarlega veikra sjúklinga sem áður fyrr hefðu jafnvel notið aðhlynningar á gjörgæsludeild. Stundum er líka einfaldlega ekki hægt að veita æskilega hjúkrun á gjörgæslu vegna plássleysis þar. Þá kemur í hlut hjúkrunarfræðinga á almennum legudeildum að sinna nákvæmara eftirliti og veita sérhæfðari hjúkrun þrátt fyrir að þær deildir séu oft og tíðum vanbúnar til þess hvað varðar mönnun, tækjabúnað og vinnuaðstæður. Lokaorð Hjúkrunarfræðingar á legudeildum gegna lykilhlutverki í að greina einkenni bráðveikra og geta með árvekni og þekkingu komið í veg fyrir innlagnir á gjörgæslu. Svo virðist sem þeir fylgist almennt vel með ástandi sjúklinga sinna en skráningu mætti bæta að einhverju leyti. Ég held þó að ef sinna á sífellt veikari sjúklingum á almennum deildum þurfi að bæta vinnuaðstæður til muna. Jafnframt er nauðsynlegt að veita hjúkrunarfræðingum tækifæri til að sækja sér fræðslu og endurmenntun og styrkja þá þannig í sínu mikilvæga hlutverki. Þær umbætur í eftirliti og meðferð, sem fylgt hafa í kjölfar rannsóknar Þorsteins og félaga, eru mikilsverðar og munu eflaust um ókomna tíð bæta horfur bráðveikra sjúklinga sem dvelja á legudeildum. Sesselja Jóhannesdóttir er hjúkrunar­ fræðingur á skurðlækningadeild 13­G á Landspítala og er með diplóma í hjúkrun aðgerðasjúklinga. Heimildir Cretikos, M., Chen, J., Hillman, K., Bellomo, R., Finfer, S., og Flabouris, A.. (2007). The objective medical emergency team activation criteria: A case­control study. Resuscitation, 73, 62­72. McBride, J., Knight, D., Piper, J., og Smith, G.B. (2005). Long­term effect of introducing an early warning score on respiratory rate chart­ ing on general ward. Resuscitation, 65, 41­44. Landspítali­háskólasjúkrahús (2008). Starfsemisupplýsingar LSH janúar­mars 2008. Í brennidepli: Gjörgæsluálit (GÁT). Landspítali, skrifstofa fjárreiðna og upplýsinga.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.