Tölvumál - 01.11.2011, Side 2
2 | T Ö LV U M Á L
// Ritstjórnarpistill
Skýrslutæknifélag Íslands, Ský,
er félag einstaklinga,
fyrirtækja og stofnana á sviði
upplýsingatækni. Markmið
félagsins eru m.a. að breiða út
þekkingu á upplýsingatækni og
stuðla að skynsamlegri notkun
hennar og að skapa vettvang
fyrir faglega umræðu og tengsl
milli félagsmanna. Starfsemin
er aðallega fólgin í, auk útgáfu
tímarits, að halda fundi og
ráðstefnur með fyrirlestrum og
umræðum um sérhæfð efni og
nýjungar í upplýsingatækni.
Félagsaðild er þrenns konar;
aðild gegnum fyrirtæki,
einstaklingsaðild og aðild
aðila utan vinnumarkaðar.
Greitt er fullt félagsgjald fyrir
fyrsta mann frá fyrirtæki,
hálft fyrir annan og
fjórðungsgjald fyrir hvern félaga
umfram tvo frá sama fyrirtæki.
Einstaklingar greiða fjórðungsgjald.
Félagsgjöld 2011:
Fullt gjald: kr. 21.500,
hálft gjald: kr. 10.700 og
fjórðungsgjald: kr. 5.400.
Aðild er öllum heimil.
Stjórn Ský:
Formaður:
Sigrún Gunnarsdóttir
Varaformaður:
Ragnheiður Magnúsdóttir
Gjaldkeri:
Guðjón Karl Arnarson
Ritari:
Sigurður Friðrik Pétursson
Meðstjórnendur:
Hjörtur Grétarsson og
Þórhildur Hansdóttir Jetzek
Varamenn:
Bjarni Sigurðsson
Magnús Hafliðason
Nefndir og faghópar Ský eru:
Orðanefnd
Siðanefnd
Ritnefnd
Öldungadeild
Fókus, félag um upplýsingatækni í
heilbrigðisþjónustu
Vefstjórnendur, faghópur um
árangursríka vefstjórnun
UT-konur, félag kvenna í
upplýsingatækni
Fjarskiptahópur, faghópur um
fjarskiptamál
Öryggishópur, faghópur um
öryggismál
Faghópur um rafræna opinbera
þjónustu
Faghópur um hugbúnaðargerð
Persónuvernd, fulltrúi Ský:
Magnús Hafliðason
Sigrún Gunnarsdóttir
Fulltrúi í fjarskiptaráði:
Aðalmaður:
Jón Ingi Einarsson
Varamaður:
Guðmundur Daníelsson
Fulltrúi Ský í nefnd
forsætisráðuneytis um þróun
upplýsingasamfélagsins:
Ebba Þóra Hvannberg
forsætisráðuneytis um þróun
upplýsingasamfélagsins:
Ebba Þóra Hvannberg
Ásrún MatthíasdóttirÁgæti lesandi
Ný ritnefnd Tölvumála hóf störf síðatliðið vor og langar mig til að byrja á fyrir hönd ritstjórnar að þakka
fráfarandi ritstjóra, Þorvarði Kára Ólafssyni, fyrir öflugt starf undanfarin ár og einnig fyrir stuðning og aðstoð við
útgáfu þessa blaðs. Mig langar einnig að þakka þeim Brynjari Smára Bjarnasyni og Helgu Jóhönnu Oddsdóttur
fyrir þeirra störf, en þau gengu úr ritstjórn nú í vor.
Ný ritstjórn ákvað í upphafi að feta nýjar slóðir og færa Tölvumál nær lesandanum með vefútgáfu á síðu
félagsins www.sky.is. Hugmyndin er að birta vikulega nýjar greinar um mál er varða upplýsingatækni í víðum
skilningi. Við hófum útgáfu á netinu nú í vor með því að setja blaðið frá 2010 á netið og síðan reið Áslaug
Friðriksdóttir, framkvæmdastjóri Sjá ehf., á vaðið þann 24. maí með greininni „Hvað vill notandinn geta gert
á vefnum?“ Þegar þetta er skrifað hafa 19 nýjar greinar birst í vefútgáfu Tölvumála og er það von okkar að
félagsmenn og aðrir sem láta sig þessi mál varða í framtíðinni verði virkir í að senda okkur áhugaverðar
greinar til að stuðla að fjölbreytni í efnisvali og umfjöllun.
Menntun í öllu sem snýr að tækni skiptir okkur máli. Við þurfum að huga að því að börn, unglingar og ungt fólk
nýti sér alla þá möguleika sem tækninýjungar bjóða upp á í námi, leik og síðar í starfi. Það er mikilvægt að
þau öðlist færni til að nýta sér upplýsingatæknina á sem fjölbreyttastan hátt sér til gagns og gaman. Líklega
þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að þau kunni ekki á nýjustu viðbæturnar í símann sinn en kannski
þurfum við að leggja áherslu á hvernig þau geta nýtt sér þessa færni til að þroskast sem námsmenn. Það þarf
að aðstoða þau við að þroskað sig í öflun, úrvinnslu og framsetningu á þekkingu með aðstoð tækninnar um
leið og við hvetjum þau til að afla sér menntunar í upplýsingatækni.
Í þessu blaði er lögð áhersla á greinar sem tengjast menntun frá ýmsum sjónarhornum, hvernig leikskólabörn
nýta tölvuna, hvernig myndavél nýtist í námi og kennslu í náttúrufræði og getu sex og níu ára gamalla barna
til að læra forritun. Einnig má lesa um nýtingu upplýsingatækni í kennslu og um tungumál í rafrænum heimi
svo fátt eitt sé nefnt. Það er líka gaman að geta sagt frá því að í þessu blaði eru fjórar greinar sem byggðar
eru á verkefnum háskólanema þar sem þau hafa tekið fyrir ýmsar hliðar þessa að nota tæknina. Með því að fá
nemendur til að skrifa greinar upp úr verkefnum sínum fáum við að kynnast því sem þeim finnst áhugavert og
njótum góðs af fjölbreyttu áhugasviði þeirra. Vonandi tekst okkur að fá fleiri greinar í framtíðinni frá þessum
hóp. Í blaðinu er einnig að finna ýmsar aðrar greinar um áhugaverð efni að vanda.
Ásrún Matthíasdóttir
Ritstjóri
Viltu ganga í Ský?
Skýrslutæknifélag Íslands, í daglegu tali nefnt
Ský, er félag allra þeirra sem vinna við eða hafa
áhuga á upplýsingatækni.
Tilgangur Ský er að miðla þekkingu milli þeirra
sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni.
Hlutverk Ský er að bjóða uppá fjölbreytta og
metnaðarfulla viðburði í formi fræðslufunda og
ráð stefna um upplýsingatækni og hlúa að því
öfluga þekkingar- og tengslaneti sem myndast
hefur innan félagsins og veita þannig félags-
mönnum sínum virðisauka og vegsemd.
Markmið Ský eru:
• að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og
stuðla að skynsamlegri notkun hennar
• að skapa vettvang fyrir faglega umræðu og
tengsl milli félagsmanna
• að koma fram opinberlega fyrir hönd fólks í
upplýsingatækni
• að stuðla að góðu siðferði við notkun upp
lýsinga tækni
• að styrkja notkun íslenskrar tungu í upplýs
inga tækni
Innan Ský starfar ritnefnd, orðanefnd og siða-
nefnd. Einnig eru fjölmargir faghópar innan
félagsins:
• faghópur um árangursríka vefstjórnun
• Fókus, faghópur um upplýsingatækni í heil
brigðis þjónustu
• Öldungadeild, ætlaður þeim sem hafa starfað
lengur en 25 ár við UT
• UTkonur, tengslanet kvenna í upplýsinga
tækni geiranum
• faghópur um rafræna opinbera þjónustu
• faghópur um öryggismál
• faghópur um fjarskiptamál
• faghópur um hugbúnaðargerð
Og af hverju ættir þú að verða félagi?
• Lægri ráðstefnugjöld á ráðstefnur félagsins
fyrir félagsmenn
• Áskrift að Tölvumálum, fagtímariti með efni
tengdu tölvunotkun og upplýsingatækni
• Leið að faghópastarfi innan félagsins. Aðstoð
við stofnun faghóps innan félagsins. Hafi
félags menn áhuga á að stofna faghóp eða
tengslanet myndi félagið aðstoða við það.
• Félagsmönnum er gefið tækifæri til að starfa í/
með undirbúningsnefndum ráðstefna og
funda félagsins
• Tengslanet, tengslanet, tengslanet ...
Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu Ský,
www.sky.is og einnig er velkomið að setja sig í
samband við skrifstofuna ef eitthvað er óljóst.