Tölvumál - 01.11.2011, Blaðsíða 26

Tölvumál - 01.11.2011, Blaðsíða 26
2 6 | T Ö LV U M Á L öllum hinum. Einnig var færsla notendagagna eða stillinga á vinnuumhverfi oft erfið. Eitt af lykilatriðum við aðskilnað þessara fjögurra laga (e. Layers) er sýndarvæðing (e. Virtualization) á öllum stigum. Seinustu ár hafa orðið stórstígar framfarir í sýndarvæðingu þannig að nú er mögulegt að keyra sýndarvæddar útstöðvar sem notandi getur ræst af netþjónum, sýndarvæddan hugbúnað sem færist á milli véla eftir því hvar notandinn er, ásamt færslu á gögnum og stillingum milli véla eftir því hvar notandinn er skráður inn. Notandinn verður því lítið eða ekkert var við breytingar á vinnuumhverfi þótt skipt hafi verið um vél og skiptir þá ekki máli hvort um sé að ræða sýndarvél eða ekki. Hverju lagi er hægt að stýra óháð hinum. Sem dæmi um hvernig þetta nýtist má nefna verktaka sem vinnur inni í tölvuumhverfi fyrirtækis eða stofnunar. Verktakinn þarf aðgang að vissum kerfum, t.d. til kerfisstjórnunar eða til hugbúnaðarþróunar, en hann þarf einnig að nota sína eigin tölvu. Á sama tíma þarf verkkaupi að koma í veg fyrir að forritunarkódi eða gögn séu geymd á tölvu verktakans. Í slíku tilfelli er upplagt að nota svokallaðan Virtual Desktop sem inniheldur stýrikerfi, hugbúnað og stillingar notenda á sýndarútstöð sem keyrð er á netþjóni og varpað er í glugga á vél verktakans. Verkkaupi getur því hindrað að gögn flytjist til eða frá sýndarútstöð (e. Virtual Desktop Session) og vélar verktakans. Reyndar mætti taka þetta skrefi lengra og streyma hugbúnaði á sýndarútstöðina og vista notendastillingar verktakans á netþjónum í stað sýndarútstöðvarinnar sjálfrar og væri þá búið að aðskilja hin fjögur útstöðvarlög fullkomlega. Nánari tæknilegar útlistanir á því hvernig hægt er að útfæra þetta á hugbúnaði frá hinum ýmsu framleiðendum er síðan efni í aðrar greinar. Niðurlag Það mun verða erfitt fyrir fyrirtæki framtíðarinnar að líta framhjá neytendavæðingu og á sama tíma að halda samkeppnishæfni sinni. Þeir árgangar sem fæðast upp úr 1980 eru mun smærri en þeir sem á undan komu og því verður mun harðari samkeppni um hæft starfsfólk. Þótt nú sé samdráttur í efnahagslífinu víða um heim þá er ekki víst að slík verði raunin eftir fáein ár. Hæfasta fólkið mun því leita til þeirra vinnuveitenda sem bjóða starfsskilyrði og aðstöðu sem mætir kröfum þessa hóps. Val um notkun, stað, tíma og tæki er hluti af þeim atriðum sem eru metin í því samhengi. Sem dæmi má nefna að sumir evrópskir bankar eru þegar farnir að leita leiða til að bjóða starfsfólki að nota sínar eigin fartölvur í vinnunni án þess að auka líkurnar á vírussmiti svo eitt nærtækt dæmi sé nefnt. Af þessu dæmi sést að neytendavæðing er að byrja að hafa áhrif og besta leiðin til að mæta þessum fyrirsjáanlegu breytingum er að mæta þeim af ákveðni og setja niður stefnu sem miðar að því að hagnýta sér breytingar sem munu verða. Til dæmis geta stjórnendur leitað leiða til að búa sér til samkeppnisforskot með því að vefa saman samfélags vefi og viðskiptahugbúnað t.d. til samskipta við viðskiptavini. Umfjöllunarefni þessarar greinar hefur snert á mörgum þáttum sem margir hverjir gætu verið efni í greinar eða greinarflokka fyrir sig. Eitt hugtak sem má nefna sem beint framhald neytendavæðingar gengur undir nafninu „New World of Work“ sem enn hefur ekki verið smíðað íslenskt nýyrði fyrir. Það eru þrjú meginatriði að baki hugtakinu: • Fólk: Í nútímasamfélagi er viðhorf til tækni að breytast í takti við að ný tól eru orðin aðgengileg flestum ef ekki öllum sem gefa möguleika til samskipta og samstarfs eftir margvíslegum leiðum. Getur þá verið um að ræða, texta, hljóð og mynd og hvort sem er samstillt (samtal) eða ósamstillt (e. asynchronous) samskipti. • Staðsetning: Meira af vinnu fólks fer fram meðan það er á ferð. Sem dæmi má taka flug, dagleg ferð til og frá vinnu, á mismunandi starfsstöðum vinnuveitenda eða hjá viðskiptavinum. • Tækniþróun: Framþróun í tækni hefur leitt til þess að hugmynd sem við höfum gert okkur af skrifstofu sem fastmótaðs vinnustaðar er óðum að víkja fyrir hugmyndinni um að geta unnið hvar og hvenær sem er. Þetta á ekki við að allar tegundir starfa þar sem sum störf eru óhjákvæmilega bundin við tíma og stað og má þar nefna framleiðslu- og þjónustustörf sem krefjast þess að starfskraftur sé líkamlega til staðar. En þegar kemur að þekkingarstarfsmönnum þá er þróunin sú að krafan um að geta starfað hvar og hvenær sem er verður æ meira áberandi. Það verður því spennandi að fylgjast með þróuninni á þessu sviði á næstu árum. Hæfasta fólkið mun því leita til þeirra vinnuveitenda sem bjóða starfsskilyrði og aðstöðu sem mætir kröfum þessa hóps. Val um notkun, stað, tíma og tæki er hluti af þeim atriðum sem eru metin í því samhengi.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.