Tölvumál - 01.11.2011, Page 26
2 6 | T Ö LV U M Á L
öllum hinum. Einnig var færsla notendagagna eða stillinga á vinnuumhverfi
oft erfið.
Eitt af lykilatriðum við aðskilnað þessara fjögurra laga (e. Layers) er
sýndarvæðing (e. Virtualization) á öllum stigum. Seinustu ár hafa orðið
stórstígar framfarir í sýndarvæðingu þannig að nú er mögulegt að
keyra sýndarvæddar útstöðvar sem notandi getur ræst af netþjónum,
sýndarvæddan hugbúnað sem færist á milli véla eftir því hvar notandinn
er, ásamt færslu á gögnum og stillingum milli véla eftir því hvar notandinn
er skráður inn. Notandinn verður því lítið eða ekkert var við breytingar á
vinnuumhverfi þótt skipt hafi verið um vél og skiptir þá ekki máli hvort um
sé að ræða sýndarvél eða ekki. Hverju lagi er hægt að stýra óháð hinum.
Sem dæmi um hvernig þetta nýtist má nefna verktaka sem vinnur inni í
tölvuumhverfi fyrirtækis eða stofnunar. Verktakinn þarf aðgang að vissum
kerfum, t.d. til kerfisstjórnunar eða til hugbúnaðarþróunar, en hann þarf
einnig að nota sína eigin tölvu. Á sama tíma þarf verkkaupi að koma í veg
fyrir að forritunarkódi eða gögn séu geymd á tölvu verktakans. Í slíku tilfelli
er upplagt að nota svokallaðan Virtual Desktop sem inniheldur stýrikerfi,
hugbúnað og stillingar notenda á sýndarútstöð sem keyrð er á netþjóni
og varpað er í glugga á vél verktakans. Verkkaupi getur því hindrað að
gögn flytjist til eða frá sýndarútstöð (e. Virtual Desktop Session) og vélar
verktakans. Reyndar mætti taka þetta skrefi lengra og streyma hugbúnaði
á sýndarútstöðina og vista notendastillingar verktakans á netþjónum í
stað sýndarútstöðvarinnar sjálfrar og væri þá búið að aðskilja hin fjögur
útstöðvarlög fullkomlega. Nánari tæknilegar útlistanir á því hvernig hægt er
að útfæra þetta á hugbúnaði frá hinum ýmsu framleiðendum er síðan efni
í aðrar greinar.
Niðurlag
Það mun verða erfitt fyrir fyrirtæki framtíðarinnar að líta framhjá
neytendavæðingu og á sama tíma að halda samkeppnishæfni sinni. Þeir
árgangar sem fæðast upp úr 1980 eru mun smærri en þeir sem á undan
komu og því verður mun harðari samkeppni um hæft starfsfólk. Þótt nú sé
samdráttur í efnahagslífinu víða um heim þá er ekki víst að slík verði raunin
eftir fáein ár. Hæfasta fólkið mun því leita til þeirra vinnuveitenda sem bjóða
starfsskilyrði og aðstöðu sem mætir kröfum þessa hóps. Val um notkun,
stað, tíma og tæki er hluti af þeim atriðum sem eru metin í því samhengi.
Sem dæmi má nefna að sumir evrópskir bankar eru þegar farnir að leita
leiða til að bjóða starfsfólki að nota sínar eigin fartölvur í vinnunni án þess
að auka líkurnar á vírussmiti svo eitt nærtækt dæmi sé nefnt.
Af þessu dæmi sést að neytendavæðing er að byrja að hafa áhrif og
besta leiðin til að mæta þessum fyrirsjáanlegu breytingum er að mæta
þeim af ákveðni og setja niður stefnu sem miðar að því að hagnýta sér
breytingar sem munu verða. Til dæmis geta stjórnendur leitað leiða til að
búa sér til samkeppnisforskot með því að vefa saman samfélags vefi og
viðskiptahugbúnað t.d. til samskipta við viðskiptavini.
Umfjöllunarefni þessarar greinar hefur snert á mörgum þáttum sem margir
hverjir gætu verið efni í greinar eða greinarflokka fyrir sig. Eitt hugtak sem
má nefna sem beint framhald neytendavæðingar gengur undir nafninu
„New World of Work“ sem enn hefur ekki verið smíðað íslenskt nýyrði fyrir.
Það eru þrjú meginatriði að baki hugtakinu:
• Fólk: Í nútímasamfélagi er viðhorf til tækni að breytast í takti við að ný
tól eru orðin aðgengileg flestum ef ekki öllum sem gefa möguleika til
samskipta og samstarfs eftir margvíslegum leiðum. Getur þá verið um
að ræða, texta, hljóð og mynd og hvort sem er samstillt (samtal) eða
ósamstillt (e. asynchronous) samskipti.
• Staðsetning: Meira af vinnu fólks fer fram meðan það er á ferð.
Sem dæmi má taka flug, dagleg ferð til og frá vinnu, á mismunandi
starfsstöðum vinnuveitenda eða hjá viðskiptavinum.
• Tækniþróun: Framþróun í tækni hefur leitt til þess að hugmynd sem við
höfum gert okkur af skrifstofu sem fastmótaðs vinnustaðar er óðum að
víkja fyrir hugmyndinni um að geta unnið hvar og hvenær sem er.
Þetta á ekki við að allar tegundir starfa þar sem sum störf eru
óhjákvæmilega bundin við tíma og stað og má þar nefna framleiðslu- og
þjónustustörf sem krefjast þess að starfskraftur sé líkamlega til staðar. En
þegar kemur að þekkingarstarfsmönnum þá er þróunin sú að krafan um að
geta starfað hvar og hvenær sem er verður æ meira áberandi. Það verður
því spennandi að fylgjast með þróuninni á þessu sviði á næstu árum.
Hæfasta fólkið mun því leita til þeirra vinnuveitenda sem bjóða
starfsskilyrði og aðstöðu sem mætir kröfum þessa hóps. Val um
notkun, stað, tíma og tæki er hluti af þeim atriðum sem eru metin
í því samhengi.