Tölvumál - 01.11.2011, Side 30
3 0 | T Ö LV U M Á L
Undanfarin misseri hefur mikið verið rætt um samruna sjónvarps og netsins.
Hafa verið uppi ýmsar tilgátur um hvort muni hafa betur, sjónvarpið eða
netið. Þróun í miðlun lifandi efnis yfir ip net hefur verið hröð og vinsældir
á lifandi efni á vefnum vex hratt. Flestir stærri vefir hérlendis hafa bætt við
sínu eigin lifandi efni til að skoða og hafa notendur tekið þessu mjög vel,
eins og heimsóknartölur sýna.
Símafyrirtækin hafa kynnt IP sjónvarpslausnir sem æ fleiri heimili nota enda
mikill gangur í ljósleiðara og ADSL væðingu hérlendis. Í sjónvarpi er talað
um línulega dagskrá, sem er þegar við setjumst fyrir framan sjónvarpið
og horfum á áður auglýsta dagskrá á þeim tíma sem tilgreindur er og svo
er ólínuleg dagskrá, sem er þegar áhorfandinn velur sjálfur hvenær hann
vill horfa á efnið. Gott dæmi um þetta er aðgangur að tveggja vikna efni
helstu sjónvarpsstöðva á IP sjónvarpskerfum hérlendis. Annað sem mikið
er rætt um í sjónvarpsheimum er sjónvarp númer tvö sem í dag er tölvan/
spjaldatölvan eða snjallsíminn en ekki annað sjónvarp.
Venjur og þarfir
Þegar horft er til baka er ljóst að að allar þessar tæknibreytingar hafa í raun
ekki breytt grunneðli mannsins. Grunnþarfir eru þær sömu, það eru bara
fleiri leiðir til að uppfylla þær. Einnig breytast venjur hægt, það sem þú gerir
í dag mun ekki breytast mikið á næstu árum. Rannsóknir hafa sýnt að 80%
þeirra sem eru eldri en 45 ára horfa á línulega dagskrá á móti 56% þeirra
sem eru yngri en 45 ára. Þessi munur endurspeglar þá þróun sem er að
eiga sér stað meðal yngri áhorfenda að vilja geta ráðið sinni eigin dagskrá.
Gott dæmi um hve hægt venjur breytast þá tilkynnti Sony 26.10.2010 að
þeir væru nú hættir að framleiða Sony Walkman kassettutækið, sem var
kynnt á markað 1979.
Mynd 1, 2 og 3
Augljóslega eru miklir hagsmunir í húfi þegar sjónvarp er annarsvegar, má
þar nefna sem dæmi höfundarétthafa, tækjaframleiðendur, efnisveitur og
dreifiveitur sem hafa lagt mikla fjármuni í að framleiða, gera umgjörð um
og svo að lokum að byggja upp dreifikerfi sem tryggja afhendingu í góðum
gæðum hjá sjálfum áhorfandanum. Við þessar tæknibreytingar verða þessir
aðilar að bregðast við til að mæta nýjum þörfum.
Þróun þjónustuveita í sjónvarp
Sjónvarpsframleiðendur hafa svarað þessu með því að nettengja sjónvarpið
og gera þar með þennan stóra miðpunkt margra heimila að glugga inn
á netið. Sony hefur leitt þessa vinnu og auk hefðbundinna atriða eins og
bíómyndir og sjónvarpsþætti gegn greiðslu bjóða þeirra tæki nú upp á hluti
eins og td:
• Facebook
• YouToube
• Twitter
• Skype
• BBC iPlayer
Þessi efnisþjónusta er ekki í boði á Íslandi en í mörgum löndum í Evrópu
og Skandínavíu. Aðrir framleiðendur hafa síðan einnig tekið þessa stefnu
eins og Panasonic en hafa aukið við og bjóða gagnvirka spilun tölvuleikja,
fréttaveitur, heilsuefnisveitur og fleira. Það sem hefur háð þessari tækni er
að flestir vilja hafa gott lyklaborð til að vafra um netið en ein lausn á því er
að setja slíka lausn í spjaldatölvuna eða snjallsímann sem er algengt í dag.
Frá sjónarmiði upplýsingatækninnar er þetta jákvæð þróun að mörgu leiti
en helsti dragbítur í þessari þróunarvinnu tækjaframleiðanda er að þeir eru
ekki að vinna eftir sameiginlegum stöðlum, þannig að þeir sem vilja bjóða
sitt efni í gegnum þessa IP tengingu sjónvarpstækja þurfa annaðhvort að
velja sér samstarfsaðila eða að þróa fyrir mörg stýrikerfi. Þetta er mjög
einkennandi fyrir unga tækni sem hefur ekki náð það almennri útbreiðslu
að staðall hafi myndast, en slíkt mun líklega þróast á komandi árum.
Dreifiveitur hafa síðan einnig tekið við sér og hugtakið HBBTv hefur rutt sér
til rúms. En sú tækni byggir á að samtengja hefðbundin sjónvörp (sem nota
venjuleg loftnet til að ná sjónvarpsmerki) við Netið með notkun svonefndra
„hybrid“ myndlykla. En slíkir myndlyklar nota hefðbundin loftnet en eru líka
nettengdir og með því má bjóða notandanum upp á ákveðna gagnvirkni í
sjónvarpi og líka að nota hefðbundið sjónvarp sem nettengt tæki og skoða
þar Facebook, YouTube og annað sem er aðgengilegt á Netinu. Þessi tækni
á vel við þar sem nettengingar eru ekki nægilega öflugar til að bjóða IPTV
en til staðar er hefðbundið dreifikerfi sem notar loftnet.
Síðasti valkosturinn sem hefur einnig rutt sér víða til rúms er OTT, eða „Over
the Top Television“ en það er að senda út sjónvarpsefni yfir almennt Net
sem notendur geti horft á í nettengdum búnaði eins og tölvu, spjaldatölvu
eða snjallsíma. Þessi tækni er að mörgu leiti sú sem höfðar mest til yngstu
notendanna því þeir eru aldir upp við að nota tölvuna og netið til að ná
sér í afþreyingu. Ókosturinn við OTT er að almennt net er frekar óstjórnað
umhverfi og því erfitt að tryggja gæði alla leið til allra notenda. Augljóslega
mun OTT kalla á að dreifiveitur byggi upp öflugra dreifikerfi og umræðan
verður sem fyrr um það hvar kostnaður vegna þessa lendir.
Hvort sem við endum í sófanum fyrir framan stóra sjónvarpið okkar eða
með spjaldatölvuna eða snjallsímann þá er ljóst að sjónvarpsdreifing yfir IP
net er komið til að vera og valkvíði neytenda mun enn sem fyrr aukast með
auknu framboði af valkostum í móttöku á sjónvarpsefni.
Hvar er sjónvarpið mitt og
hvert er það að fara?
Ágúst Valgeirsson, framkvæmdastjóri
tæknisviðs 365 miðla
Þróun í miðlun lifandi efnis yfir ip net hefur verið hröð og
vinsældir á lifandi efni á vefnum vex hratt.
Augljóslega eru miklir hagsmunir í húfi þegar sjónvarp er
annarsvegar, má þar nefna sem dæmi höfundarétthafa,
tækjaframleiðendur, efnisveitur og dreifiveitur sem hafa lagt
mikla fjármuni í að framleiða, gera umgjörð um og svo að
lokum að byggja upp dreifikerfi sem tryggja afhendingu í
góðum gæðum hjá sjálfum áhorfandanum.