Tölvumál - 01.11.2011, Page 42
persónuupplýsingar og/eða aðrar viðkvæmar upplýsingar og auka vitund
þeirra á öryggisstefnu, tilgangi hennar og ávinning þess að innleiða hana.
Koma þarf af stað kynningarteymi til að fylgja þessu kynningarefni eftir til
dæmis með námskeiðum, hádegisfyrirlestrum og bæklingum.
Fyrirtæki sem eru ekki vottuð en hafa markað öryggisstefnu hafa engan
gæðastimpil til að sýna viðskiptavinum og samstarfsaðilum sem sönnun
þess að þeir séu með stjórnkerfi fyrir upplýsingaöryggi og verndi
upplýsingar sínar. Hugmynd væri að hafa mismunandi stig vottunar
eða gæðastimpla t.d. A, B, C eftir því hvers eðlis áhættur og/eða ógnanir
steðja að tilteknu fyrirtæki og hversu miklar persónuupplýsingar og/
eða viðkvæmar uplýsingar það hefur að geyma. Með þessum hætti geta
fyrirtæki sýnt fram á að þau hugi að upplýsingaöryggi í rekstri sínum.
Formið á viðtölum sem framkvæmd voru í umræddri könnun bauð upp á að
svörin væru fremur huglæg þar sem svör þátttakenda byggðust að mestu á
persónulegum skoðunum þeirra. Áhugavert væri í næstu rannsókn að horfa
meira til hlutlægra gagna á borð við verkferla og verklagsreglur, vinnubrögð
starfsmanna, starf úttektarmanna og vinnuumhverfi fyrirtækja. Hlutlæg
gögn sem aflað væri á vettvangi gætu gefið ítarlegri mynd af raunstöðu
öryggismála innan íslenskra fyrirtækja.
Niðurstaðan er sú að öll þau fyrirtæki sem meðhöndla
persónuupplýsingar og/eða aðrar viðkvæmar upplýsingar ber að
marka öryggisstefnu samkvæmt lögum og geta valið hvort þau vilji
öðlast vottun samkvæmt ISO/IEC 27001.
Lokaorð
Niðurstaðan er sú að öll þau fyrirtæki sem meðhöndla persónuupplýsingar
og/eða aðrar viðkvæmar upplýsingar ber að marka öryggisstefnu
samkvæmt lögum og geta valið hvort þau vilji öðlast vottun samkvæmt
ISO/IEC 27001. Það að sýna fram á að fyrirtæki marki öryggisstefnu eykur
trúverðugleika þess þar sem það sýnir fram á að öryggisatriðum er sinnt í
stjórnkerfi upplýsingaöryggis. Það er hinsvegar í höndum utanaðkomandi
aðila að treysta því að fyrirtæki fari eftir settri öryggisstefnu en hægt er að
auka traustið enn meira sé fyrirtækið vottað samkvæmt ISO/IEC 27001 því
það er staðfesting þess að farið er eftir öllum kröfum sem snúa að öryggi
upplýsinga.
Grein þessi er unnin upp úr meistaraverkefni Maríönnu Magnúsdóttir í
rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík vorið 2011.
Tryggir þú öryggi þitt á Netinu?
Kynntu þér leiðbeiningar á www.netöryggi.is