Tölvumál - 01.11.2011, Blaðsíða 46
Starfsemi félagsins hefur verið mjög blómleg síðustu misseri. Gífurlegt
framboð er af viðburðum og margir að slást um tíma fólks og því þykir
okkur sá fjöldi sem mætir á viðburði Ský sýna að við erum á réttri leið með
val á efni og formi viðburða.
Stjórn Ský og stjórnir faghópanna ásamt framkvæmdastjóra Ský bera hitann
og þungann af skipulagningu viðburða ásamt sjálfboðaliðum sem taka þátt
í undirbúningsnefndum. Við erum alltaf tilbúin að grípa góðar hugmyndir og
fá fram umræður um þær og því viljum við endilega heyra í félagsmönnum
lumi þeir á góðri hugmynd að viðburði eða til að bæta starfsemi Ský. Einnig
vantar okkur alltaf gott fólk í undirbúningsnefndir. Hafðu endilega samband
í gegnum sky@sky.is ef þú vilt vera með.
Vefsíðan www.sky.is er andlit félagsins útá við og var hún einfölduð
og hresst uppá útliti hennar í vor. Einnig varð vefútgáfa Tölvumála að
veruleika og birtast nú vikulega nýjar greinar á forsíðu Ský um þau mál
sem heitust eru í tölvugeiranum hverju sinni. Þar er hægt að skrifa ummæli
um greinarnar og deila á samskiptamiðla. Ritstjórn félagsins sér um
vefútgáfuna ásamt prentútgáfu Tölvumála og liggur mikil vinna að baki
við að finna áhugaverðar greinar, prófarkalesa og setja upp þannig að vel
fari. Allir sem áhuga hafa á tölvumálum geta sent inn greinar á ritstjóra
Tölvumála á asrun@hr.is.
Til að auka enn breitt viðburða var bætt við nokkrum nýjungum á árinu.
Fyrst má nefna UT messuna en þar var Ský í fararbroddi með nokkrum
aðilum úr UT geiranum og vildum við fyrst og fremst sýna almenningi hve
mikil gróska er í UT málum á Íslandi og í leiðinni hvetja ungt fólk til að
velja tæknigreinar sem framtíðarstarf. Réttur til að vita (International Right
to Know Day), var haldinn þann 28. september og var það mjög fróðleg
ráðstefna um rétt almennings að opinberum gögnum og gegnsærri
stjórnsýslu. Ský mun að ári halda aftur uppá þennan dag með fróðlegum
viðburði. Að lokum er Ský eitt af þeim félagasamtökum sem tekur þátt í
Mannamóti en þar hittast félagsmenn nokkurra félaga á Íslandi og byggja
upp tengslanet undir forystu ÍMARK. Það væri gaman að sjá félagsmenn Ský
mæta á Mannamótin því hér erum við að auka fjölbreytni í félagsstarfinu.
Að lokum hvet ég ykkur til að tengjast Ský á LinkedIn, Facebook og Twitter
og taka þátt í umræðum á samskiptamiðlunum.
Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský
Frá skrifstofu Ský
Arnheiður Guðmundsdóttir.
Öflugt vefumsjónarkerfi fyrir kröfuharðan heim
www.eplica.is | www.hugsmidjan.is