Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 11

Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 11
fjármagn til að þýða notendaviðmótið yfir á íslensku til þess að það sé yfir höfuð nothæft. punkTaleTur Punktaletursskjár er mjög góð lausn fyrir albindan tölvunotanda. Skjárinn gefur frelsi til að lesa og skrifa á tölvuna án þess að þurfa alltaf að hlusta og vera bundinn við talgervil. Þá er til að mynda hægt að hlusta á eitthvað annað á meðan unnið er við tölvuna, eða jafnvel notast við hvoru tveggja, t.d. yfirlestri eða öðru slíku. Skjárinn er á stærð við lítið lyklaborð með punktaletursrönd yfir hann þveran, á henni er hægt að lesa það svæði sem virkt er á tölvunni. Þar að auki er einfalt lyklaborð og stýritakkar sem gera notanda kleift að fara um forritin. Þessi tækni er í mikilli þróun, hún er dýr í framleiðslu vegna þess hversu vandaðar punkta leturs sellurnar þurfa að vera til þess að standast álag frá daglegri notkun en tæknin er það vönduð að fyrir vanan punktaleturs notanda gefur hún algjört aðgengi að vélinni og eykur ekki álagið á vélina á sama hátt og t.d. stækkunarforrit. Þessi tækni þarf líka umbúnað og þar eru notuð forrit eins og SuperNova, JAWS og NVDA. Mjög spennandi er að fylgjast með allri þróun varðandi snjallsíma og litla punktaleturskjái, sem gera notanda kleift að senda smáskilaboð og fara á netið í símanum án þess að hann sé síblaðrandi og er óháð tungumáli. Þar að auki er mikil þróun í Notetakers, sem eru í raun skjálausar fartölvur sem hafa punktaleturskjá í stað venjulegs skjás, þannig þarf blindur notandi ekki að burðast með tækni sem hann notar ekki og allt viðmótið er hugsað út frá punktaletursskjám. epli og appelSínur Eins og áður sagði tók aðgengismál blindra og sjónskertra stökkbreytingu eftir að félagarnir í Epli komu til. Ákvörðun þeirra um aðgengi sem innbyggðan hluta af öllum vörum frá Apple hefur haft ótrúleg áhrif á allan aðgengismarkaðinn og æ fleiri almennir framleiðendur sjá nú sóma sinn í því að bjóða upp á aðgengi sem sjálfsagðan hluta af stýrikerfum. Bæði nýja Android kerfið og Windows 8 eru kynnt með loforðum um gott aðgengi. Sú loforð standast hinsvegar ekki við nánari athugun, eru bæði flókin og sein í notkun eins og Windows Narrator og hjá Android vantar enn möguleikann á að nota stækkun á heimaskjá, svo eitthvað sé nefnt. Þrátt fyrir virðingarverðar tilraunir virðast þessar lausnir enn flækjast fyrir fyrirtækjunum. Hins vegar eru íslenskir notendur ekki nógu vel settir með Apple sem hafa ekki ennþá sett íslenska rödd inn í talgervilinn sinn þrátt fyrir að státa af nánast öllum öðrum tungumálum í veröldinni. Einnig er óvíst með íslenskar viðmótsþýðingar og það er deginum ljósara að markaðurinn getur ekki sjálfur staðið undir því verkefni að tryggja framtíð íslenskrar tungu í rafrænum heimi. Það er því löngu tímabært að mennta- og menningarmálaráðuneytið komi að þessum málum með styrkjum, stöðlum og íð-orðavinnu. Þetta snýst bæði um aðgengi og verndun íslenskrar tungu, en bæði verkefnin eru á ábyrgð ráðuneytisins. SérTæk eða almenn úrræði Það er metnaður og draumur fatlaðra að aðgengislausnir verði eðlilegur hluti af almennu vöruúrvali. Það er miklu skemmtilegra að geta keypt sömu flottu græjur og allir aðrir og þurfa ekki endalaust að burðast með sérhannað dót sem oft er hannað eftir þeirri stefnu sem Wolfgang Baum kallar „FischerPrice-isme“. Það er hinsvegar augljóst eins og þróunin er í dag að það er betra að hafa líka aðgengi að framleiðendum. Þegar upp koma samhæfingarvandamál og allt fer i klessu er nauðsynlegt að geta snúið sér að framleið andanum, sérstaklega fyrir fatlaða sem hafa takmarkaða möguleika til þess að vinna án tölvu. Reynslan sýnir hinsvegar að stóru fyrirtækin, jafnvel þau sem eru þekkt fyrir gott notendaviðmót í vörum sínum, hafa lítil samskipti við notendur í veruleikanum. Það eru endalausar herferðir á netinu þar sem menn eru að reyna að fá Microsoft til að breyta þessu eða Apple til að breyta hinu. Svoleiðis herferðir eru upp á von og óvon, eins og sést með ítrekaðar tilraunir til þess að fá íslenska rödd í Apple vörurnar. Þegar kemur að sértækum lausnum eru framleiðendur allt öðruvísi í viðmóti og þar geta notendur fengið úrlausn og ábendingar sem geta skipt sköpum varðandi atvinnuþátttöku og lífsgæði almennt. Þetta er því ekki eins einfalt og það virðist og þó að það beri að fagna almennum lausnum þá fylgir einnig kvíði fyrir þeirri framtíð þar sem aðgengisþarfir einstaklingaeru jafn mikilvægar og óskir þeirra sem vilja fá gamla Solitare kapalinn inn í Windows 8, eða eitthvað álíka. ólíkindaTól Með tölvu við hönd geta blindri og sjónskertir leyst úr flestu sem snertir vinnu þeirra og tómstundalíf. Þeir geta náð sér í afþreyingu og jafnvel pantað mat, það er í raun bara buddan og ímyndunaraflið sem setja mörkin. Hins vegar er stærsti hluti þeirra sem missa sjón eldri en 67 og þau vandamál sem sá hópur stríðir við er almennt tölvulæsi. Það er vandamál langt út fyrir raðir blindra og sjónskertra. Tæknin er orðin svo fáguð og væntingarnar svo miklar en á sama tíma er stór hluti fólksins í landinu sem á í erfiðleikum með einföldustu aðgerðir. Fólk upplifir að það verði erfiðara að lifa án tölvu en það á einnig erfitt með að kynna sér tæknina. Þannig verður það kunnátta einstaklingsins sem takmarkar aðgengi miklu frekar en tæknin sjálf.

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.