Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 12
12
Sérkennslutorg er starfssamfélag á neti fyrir kennara, þroskaþjálfa og
aðra sem kenna nemendum með sérþarfir. Sérkennslutorg er hluti af
MenntaMiðju sem sett var á stofn síðastliðið haust. Með vaxandi þörf á
góðu aðgengi að kennsluefni, hugmyndum og þekkingu sem hentar í
einstaklingsmiðuðu námi er áhugavert að byggja upp starfssamfélag
þeirra sem kenna nemendum með sérþarfir. Sérkennslutorgið er meðal
annars fjölbreyttur og sjónrænn vefur. Þar er að finna fróðleik og
gagnlegt efni um aðferðir og gögn sem hægt er að nýta við kennslu.
Torgið teygir anga sína einnig inn á samfélagsmiðla og hafa hópar á
Facebook verið einkar gagnlegur vettvangur fyrir samstarf kennara. Það
á meðal annars við í tengslum við þá miklu grósku sem tengist vinnu
með spjaldtölvur í sérkennslu.
opið og aðgengilegT efni á Vef
SérkennSluTorgSinS
Sérkennslutorgið hefur verið í uppbyggingu í um það bil eitt ár. Fyrirmynd
sína sækir Sérkennslutorgið til Tungumálatorgs sem hefur verið starfandi
frá árinu 2010. Tungumálatorgið er í senn brautryðjandi og fyrirmynd
annarra torga sem nú spretta upp eitt af öðru undir hatti MenntaMiðjunnar.
Sérkennslutorg hefur hingað til verið byggt upp fyrir tilstuðlan styrks frá
Sprotasjóði. Torgið er unnið út frá Klettaskóla og er hluti af
ráðgjafahlutverki skólans. Góð samvinna við MenntaMiðju og þau torg
sem henni tilheyra eflir og styrkir uppbyggingu Sérkennslutorgsins.
Á vef Sérkennslutorgsins www.serkennslutorg.is er að finna fjölbreytt
efni tengt sérkennslu. Þar má finna myndir og myndbönd sem eru
lýsandi og gefa mynd af kennsluaðstæðum og hentugu námsumhverfi.
Jafnframt eru þar margvísleg vinnuform, til dæmis að einstaklings-
námskrám, stundatöflum og fleiru. Allt er þetta efni sem hægt er að
nálgast endurgjaldslaust, breyta og aðlaga að sínum þörfum. Nokkru
safni félagshæfnisagna er hægt að hlaða niður af vefnum. Sögurnar er
einnig hægt að betrumbæta að vild, til dæmis með því að setja inn
persónulegar myndir og nöfn sem henta nemendum.
Efni vefsins hentar sérkennslu á öllum skólastigum. Nemendur þroskast
misjafnlega og efni sem kennt er í grunnskóla getur vel átt við í
framhaldsskóla eða leikskóla þegar kemur að einstaklingsmiðuðu námi.
Vefurinn er í stöðugri uppbyggingu og reglulega bætist við nýtt efni
tengt skipulagningu kennslu og námi nemenda með sérþarfir. Efni
vefsins kemur víða að og áhugi og jákvætt viðhorf kennara í garð
Sérkennslutorgs, gerir það að verkum að vefurinn er gæddur fjölbreyttu
og gagnlegu efni. Öll miðlun á vefnum miðast að því veita innsýn í
aðstæður, efni og aðferðir sem styðja við og móta nám nemenda með
velferð þeirra og þroska að leiðarljósi.
noTkun facebook í TengSlum Við
kennSlu
Hinir ýmsu samfélagsmiðlar hafa rutt sér til rúms undanfarin ár og sífellt
fleiri bætast í hópinn. Vinsælasti samfélagsmiðillinn hér á landi er
Facebook. Á þeim hartnær ellefu árum sem liðin eru frá stofnun
Facebook hefur þróunin verið ör og frá því að vera vefur, einkum ætlaður
til afþreyingar, er Facebook nú eitt helsta markaðstæki margra fyrirtækja
sem selja vöru og þjónustu.
Stöðug þróun og nýjar viðbætur hafa aukið notkunarmöguleika
Facebook. Það er til dæmis ótvíræður kostur að hægt er að búa til
hópa, opna, lokaða eða leynilega. Þegar þessi viðbót kom inn á
Facebook má segja að möguleikar hafi vaknað fyrir ótal marga hópa og
starfsgreinar að byggja upp samfélög um ákveðin málefni, tengdu starfi,
námi eða áhugamálum. Tilkoma þessa möguleika gerir kennurum kleift
að ná eyrum og augum nemenda óháð tíma og rúmi og hægt er að
hvetja til umræðna á lokuðum svæðum sem markast af námsgreinum
eða ákveðnu efni sem verið er að vinna með. Einnig skapast vettvangur
fyrir kennara að sameinast, leita ráða og deila gagnlegum upplýsingum
er varðar kennslu.
Sérkennslutorg tengist áhugaverðum og gagnlegum hópum á
Facebook sem vert er að fylgjast með. Þetta eru til dæmis Smáforrit í
sérkennslu, þar sem finna má ábendingar um gagnleg smáforrit sem
henta nemendum með sérþarfir. Þar hafa áhugasamir þátttakendur
tækifæri til að hafa samskipti sín á milli um ýmis smáforrit sem gott er að
nota í sérkennslu. Þeir sem áhuga hafa á spjaldtölvum ættu einnig að
kynna sér hópinn Spjaldtölvur í námi og kennslu því þar er fjölmennur og
virkur hópur áhugafólks um spjaldtölvunotkun í skólastarfi. Oft eru mjög
gagnlegar upplýsingar settar þar inn sem stuðla að uppbyggingu
þekkingar og markvissri notkun búnaðarins. Kennsla nemenda með
sérþarfir er svo aftur annar hópur sem fjallar um fjölbreytt viðfangsefni
sem tengjast sérkennslu.
SérkennSluTorg
Hanna Rún Eiríksdóttir, kennari við Klettaskóla og
verkefnisstjóri Sérkennslutorgsins
SamSTarf um miðlun
þekkingar og Hugmynda
Við kennSlu nemenda með
Sérþarfir