Tölvumál - 01.10.2013, Page 21

Tölvumál - 01.10.2013, Page 21
21 greiðSlur með biTcoin Þegar greiðsla er framkvæmd er hún undirrituð með einkalykli auðkennisins. Forrit greiðandans sendir þá upplýsingar um greiðsluna til jafningjanetsins sem allir notendur Bitcoin deila. Á jafningjanetinu safna síðan ákveðnir þjónar mörgum greiðslum í blokkir. Greiðslur í hverri blokk eru yfirfarnar, athugað hvort þær séu fullgildar og síðan staðfestar. Þegar nógu margir þjónar (yfirleitt 6) hafa staðfest greiðsluna getur móttakandinn litið svo á að greiðslan hafi átt sér stað. Til að staðfesta blokk þarf tölva að eyða umtalsverðu reikniafli í að leysa „erfitt„ stærðfræðilegt vandamál . Sem hvati til að eyða tölvuafli í þessa staðfestingu er hver lausn á blokk verðlaunuð með 25 BTC. Til viðbótar getur greiðandinn einnig tilgreint hversu mikið hann vill borga í færslugjöld. Þannig fær tölvan sem leysir stærðfræði vandamál blokkir með tilteknum greiðslum einnig færslugjöld þessara greiðslna. Þessi færslugjöld virka því sem hvati til að innihalda greiðsluna í blokk og þannig greiðslur verða staðfestar fyrr en aðrar. Eitt atriði sem aðgreinir Bitcoin greiðslur frá t.d. greiðslum með hefðbundnum greiðslukortum er endanleiki greiðslnanna. Ef korthafi hefðbundins greiðslukorts greiðir fyrir einhverja vöru eða þjónustu sem síðar kemur í ljós að var gölluð eða um svik að ræða er oft hægt að afturkalla greiðsluna með atbeina kortafyrirtækisins. Þar sem Bitcoin er ekki með neitt miðlægt yfirvald er ekki um neitt slíkt að ræða. Þegar greiðsla hefur verið gerð frá einu auðkenni til annars er ekkert sem getur afturkallað hana. Að sjálfsögðu getur viðtakandi greiðslunnar endurgreitt greiðandanum en það gerist bara með fullu samþykki. Þannig líkist Bitcoin sem greiðslumáti frekar reiðufé heldur en greiðslukortum. Sambærilegir dulmiðlar Í kjölfar Bitcoin hafa nokkrar aðrar tegundir rafrænna gjaldmiðla komið fram byggðar á sömu hugmyndum og Bitcoin. Þessi tegund gjaldmiðla hefur verið kölluð „cryptocurrency„ á ensku þar sem dulkóðun er lykiltæknin þar á bakvið (e.t.v. mætti þýða þetta með smá orðaendurvinnslu og kalla „dulmiðill„). Litecoin er staðall sem þróaðist frá Bitcoin staðlinum þar sem ákveðin tæknileg atriði voru endurskoðuð. Annar slíkur staðall er Namecoin sem ekki var beinlínis ætlað að vera gjaldmiðill heldur að koma á lénanafna-skipulagi án miðstýrðs yfirvalds. Í þeim tilgangi hefur verkefnið yfir að ráða grunnléninu .bit og hafa tæplega 80.000 þannig lén verið skráð. Einnig má nefna PPCoin (Peer- to-peer Coin) sem hefur þá sérstöðu að inn í gjaldmiðilinn er af ásettu ráði innbyggð u.þ.b. 1% verðbólga á ári. markaður með biTcoin Í dag eru þó nokkrir opnir markaðir þar sem hægt er að kaupa og selja BTC fyrir hefðbundna gjaldmiðla. Þegar þetta er skrifað er gengi BTC á þessum mörkuðum u.þ.b. 1 BTC = 140 USD. Gengið hefur sveiflast mikið, í upphafi þ.e. byrjun árs 2009 var það 1 BTC = u.þ.b. 10 USD. Hæst hefur það farið í 1 BTC = 230 USD í apríl á þessu ári. Verðin eru eðli málsins samkvæmt fljótandi og raunar mismunandi milli markaða. Í dag hafa 11,6 milljón BTC verið búin til sem m.v. ofangreint gengi gerir 1,6 milljarð USD eða rétt tæplega 200 milljarða króna. Fyrir þá sem hafa misst trú á fjármálakerfi byggðu á hefðbundnum gjaldmiðlum hljómar BTC sem himnasending. Gengisfellingar, gjaldeyrishöft eða önnur inngrip stjórnvalda í hagkerfið eru ekki möguleg í því kerfi. Seðlabankar, bankar og fjármálastofnanir hafa í þannig kerfi ekki einkarétt á að búa til nýtt fjármagn. Þá er stjórn fjármagnsflutninga yfir landamæri illmöguleg og eftirlit frekar erfitt í framkvæmd. Það er síðan allt önnur spurning hvort þannig kerfi sé jákvætt eða neikvætt samfélagslega, hagfræðilega eða pólitískt séð. Þegar upp er staðið hlýtur framtíð gjaldmiðils eins og Bitcoin að snúast um traust. Þ.e. um það hvort einhverjir treysti gjaldmiðlinum nógu mikið til að taka við honum sem greiðslu og nota áfram. Hinir virku markaðir með BTC benda til þess að töluverður hópur fólks ber þannig traust til hans í dag. Hins vegar verður tíminn að leiða í ljós hvort um er að ræða bólu eða bjarta framtíð. 1 Vandamálið sem um ræðir felst í því að í gefinni 80 bæta blokk þarf að finna gildi á 4 þeirra bæta þannig að SHA-256 hakk gildi blokkarinnar sé undir ákveðnu markgildi. Þetta tekur yfirleitt dágóða stund. Til þess að stýra erfiðleika þessa verkefnis er markgildinu reglulega breytt þannig að það taki að meðaltali 10 mínútur fyrir jafningjanetið í heild að búa til nýja blokk. Breytingin er byggð á fyrirfram skilgreindri reglu í BTC staðlinum, ekki er um neina miðstýringu að ræða. Þetta fer þannig fram að eftir 2016 blokkir er reiknað út hvert markgildið þyrfti að vera til að hver blokk taki að meðaltali 10 mínútur.

x

Tölvumál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.