Tölvumál - 01.10.2013, Side 36
36
rekjanleiki í maTVælaVinnSlu
Stjórnvöld gera kröfur til matvælaframleiðenda um rekjanleika í
framleiðsluferlinu. Í Evrópulöndum og á Íslandi snýr þetta meðal annars
að tvennu:
• Að framleiðandi geti rakið matvæli sem hann framleiðir eitt skref
áfram og eitt skref aftur. Með öðrum orðum að framleiðandi viti
hvert hann sendir matvæli og að hann viti hvaða hráefni var
notað til framleiðslunnar og hvaðan það kom. Með þessu móti
er með öryggi hægt að innkalla matvöru ef í ljós kemur að hún er
ekki neysluhæf, t.d. vegna salmónellusmits.
• Að uppruni vöru sé þekktur. Um þetta gilda mismunandi reglur
eftir tegundum matvæla en sem dæmi má nefna að íslenskir
fiskútflytjendur þurfa að láta upprunavottorð fylgja fiskinum.
Upprunavottorðið tilgreinir af hvaða veiðisvæði hann kemur.
Það getur verið töluvert umstang fyrir framleiðendur að halda utan um
þessar upplýsingar. Í fyrsta lagi krefst það skráningar á öllum stigum
framleiðslunnar og í öðru lagi verður að haga framleiðslunni þannig að
aðskilnaður sé á milli vinnslulotna.
Með öflugum, samþættum skráningarhugbúnaði sem nær yfir allt
framleiðsluferlið má einfalda skráningarferlið til muna. Hitt er ekki síður
mikilvægt að slíkur hugbúnaður getur veitt ýmsar hagnýtar upplýsingar
fyrir framleiðendur. Þetta vegur á móti þeim kostnaði sem hlýst af því að
reka kerfið. Innova framleiðslu hugbúnaðurinn frá Marel hefur verið
notaður með góðum árangri um heim allan til að gera framleiðendum
kleift að uppfylla kröfur um rekjanleika á hagkvæman hátt samhliða því
að veita hagnýtar upplýsingar sem veita yfirsýn yfir framleiðsluferlið.
Hér að neðan verður útskýrt hvernig loturekjanleiki virkar og nefnd verða
nokkur dæmi um hvernig framleiðendur geta nýtt sér rekjanleikakerfi.
loTurekjanleiki
Algengt er að rekjanleikakerfi byggi á svokölluðum loturekjanleika en þá
er vinnslunni skipt upp í lotur. Framleiddar einingar eru skráðar á lotu en
jafnframt er skráð lotunúmer þeirra hráefniseininga sem notaðar eru í
lotuna.
Á myndinni hér að neðan er lokaframleiðslan byggð á að taka hráefni og
millivörur í gegnum tvö vinnslustig. Ef upp kemur vandamál við einingu
I1 þarf mögulega að innkalla allt úr lotum H og I því þau deila hráefni úr
lotu C. Hinsvegar deilir lota J ekki hráefni eða millivörum með neinni
annarri lotu og því er með öryggi hægt að takmarka innköllun við lotu J.
Í sumum tilfellum er ekki hægt að halda lotum algjörlega aðskildum, t.d.
vegna þess að það tekur of langan tíma að tæma vinnslulínu, og þá er
einnig nauðsynlegt að hafa upplýsingar um hvenær lotan er virk því
mögulega þarf að athuga næstu lotu á undan og næstu lotu á eftir.
(mynd af því hvernig lotu rekjanleiki virkar)
örugg og HraðVirk innköllun
Áríðandi er að ef innkalla þarf vöru sé hægt að gera það á hraðvirkan og
öruggan hátt. Opinber yfirvöld skilgreina yfirleitt ekki hversu fljótt skuli
skila upplýsingum um innköllunarmengið en það sama gildir ekki um
kröfuharða viðskiptavini. Verslanakeðja í Bretlandi gerir t.d. kröfu um að
birgjar geti á innan við 2 klukkutímum skilað nákvæmum upplýsingum
um hvar allt innköllunarmengið er niðurkomið. Slíkt er vart mögulegt
nema upplýsingar um hráefnis notkun í vinnslunni og afhendingu afurða
séu til í gagnagrunni þar sem hægt er að nálgast þær með fyrirspurn
eða skýrslu.
Framleiðendur geta einfaldað rekjanleikakerfið með því að hafa stórar
lotur. Algengt er að nota framleiðsludag sem lotu en þá þarf að innkalla
alla framleiðslu dagsins sem getur verið mjög kostnaðarsamt. Með
nákvæmu rekjanleikakerfi er hægt að lágmarka kostnað við innköllun.
VoTTaðar Vörur
Algengt er að vörur hljóti ákveðna vottun. Þetta getur verið vottun um
uppruna, t.d. að kjöt sé frá ákveðnu landi, fiskur frá veiðisvæðum eða
stofnum sem eru viðurkennd sem sjálfbær eða að hráefni og millivörur
uppfylli ákveðnar kröfur, séu t.d. lífrænt ræktuð eða vottuð til útflutnings.
Í slíkri framleiðslu getur öflugt rekjanleikakerfi gert framleiðendum
auðveldara að framfylgja þeim reglum sem í gildi eru hverju sinni
samhliða því að skrá rekjanleikaupplýsingar. Ef t.d. á að framleiða vöru
sem er vottuð lífrænt ræktuð þá er stofnuð lota sem er þannig
auðkennd. Við skráningu á hráefnum til lotunnar er hægt að athuga
hvort hráefnin eru úr lotum sem eru merkt lífræn og er skráning ekki
leyfð ef svo er ekki.
HagnýTing
rekjanleikakerfa
Björn Þorvaldsson, þróunarstjóri Innova hugbúnaðar hjá Marel
MÓTTAKA VINNSLUSTIG 1 VINNSLUSTIG 2
LOTA E
LOTA A
LOTA B
LOTA C
LOTA D
LOTA H
LOTA I
LOTA J
LOTA F
LOTA G
A1
E1
F1
G1
J1
D1
I1B1
H1
C1
A2
D2
I2B2
H2
C2 C3
A4
D4
A3
E2
F2
G2
J2
D3
I3
LOTUTENGSL Í GEGNUM MÖRG VINNSLUSTIG