Tölvumál - 01.10.2013, Qupperneq 36

Tölvumál - 01.10.2013, Qupperneq 36
36 rekjanleiki í maTVælaVinnSlu Stjórnvöld gera kröfur til matvælaframleiðenda um rekjanleika í framleiðsluferlinu. Í Evrópulöndum og á Íslandi snýr þetta meðal annars að tvennu: • Að framleiðandi geti rakið matvæli sem hann framleiðir eitt skref áfram og eitt skref aftur. Með öðrum orðum að framleiðandi viti hvert hann sendir matvæli og að hann viti hvaða hráefni var notað til framleiðslunnar og hvaðan það kom. Með þessu móti er með öryggi hægt að innkalla matvöru ef í ljós kemur að hún er ekki neysluhæf, t.d. vegna salmónellusmits. • Að uppruni vöru sé þekktur. Um þetta gilda mismunandi reglur eftir tegundum matvæla en sem dæmi má nefna að íslenskir fiskútflytjendur þurfa að láta upprunavottorð fylgja fiskinum. Upprunavottorðið tilgreinir af hvaða veiðisvæði hann kemur. Það getur verið töluvert umstang fyrir framleiðendur að halda utan um þessar upplýsingar. Í fyrsta lagi krefst það skráningar á öllum stigum framleiðslunnar og í öðru lagi verður að haga framleiðslunni þannig að aðskilnaður sé á milli vinnslulotna. Með öflugum, samþættum skráningarhugbúnaði sem nær yfir allt framleiðsluferlið má einfalda skráningarferlið til muna. Hitt er ekki síður mikilvægt að slíkur hugbúnaður getur veitt ýmsar hagnýtar upplýsingar fyrir framleiðendur. Þetta vegur á móti þeim kostnaði sem hlýst af því að reka kerfið. Innova framleiðslu hugbúnaðurinn frá Marel hefur verið notaður með góðum árangri um heim allan til að gera framleiðendum kleift að uppfylla kröfur um rekjanleika á hagkvæman hátt samhliða því að veita hagnýtar upplýsingar sem veita yfirsýn yfir framleiðsluferlið. Hér að neðan verður útskýrt hvernig loturekjanleiki virkar og nefnd verða nokkur dæmi um hvernig framleiðendur geta nýtt sér rekjanleikakerfi. loTurekjanleiki Algengt er að rekjanleikakerfi byggi á svokölluðum loturekjanleika en þá er vinnslunni skipt upp í lotur. Framleiddar einingar eru skráðar á lotu en jafnframt er skráð lotunúmer þeirra hráefniseininga sem notaðar eru í lotuna. Á myndinni hér að neðan er lokaframleiðslan byggð á að taka hráefni og millivörur í gegnum tvö vinnslustig. Ef upp kemur vandamál við einingu I1 þarf mögulega að innkalla allt úr lotum H og I því þau deila hráefni úr lotu C. Hinsvegar deilir lota J ekki hráefni eða millivörum með neinni annarri lotu og því er með öryggi hægt að takmarka innköllun við lotu J. Í sumum tilfellum er ekki hægt að halda lotum algjörlega aðskildum, t.d. vegna þess að það tekur of langan tíma að tæma vinnslulínu, og þá er einnig nauðsynlegt að hafa upplýsingar um hvenær lotan er virk því mögulega þarf að athuga næstu lotu á undan og næstu lotu á eftir. (mynd af því hvernig lotu rekjanleiki virkar) örugg og HraðVirk innköllun Áríðandi er að ef innkalla þarf vöru sé hægt að gera það á hraðvirkan og öruggan hátt. Opinber yfirvöld skilgreina yfirleitt ekki hversu fljótt skuli skila upplýsingum um innköllunarmengið en það sama gildir ekki um kröfuharða viðskiptavini. Verslanakeðja í Bretlandi gerir t.d. kröfu um að birgjar geti á innan við 2 klukkutímum skilað nákvæmum upplýsingum um hvar allt innköllunarmengið er niðurkomið. Slíkt er vart mögulegt nema upplýsingar um hráefnis notkun í vinnslunni og afhendingu afurða séu til í gagnagrunni þar sem hægt er að nálgast þær með fyrirspurn eða skýrslu. Framleiðendur geta einfaldað rekjanleikakerfið með því að hafa stórar lotur. Algengt er að nota framleiðsludag sem lotu en þá þarf að innkalla alla framleiðslu dagsins sem getur verið mjög kostnaðarsamt. Með nákvæmu rekjanleikakerfi er hægt að lágmarka kostnað við innköllun. VoTTaðar Vörur Algengt er að vörur hljóti ákveðna vottun. Þetta getur verið vottun um uppruna, t.d. að kjöt sé frá ákveðnu landi, fiskur frá veiðisvæðum eða stofnum sem eru viðurkennd sem sjálfbær eða að hráefni og millivörur uppfylli ákveðnar kröfur, séu t.d. lífrænt ræktuð eða vottuð til útflutnings. Í slíkri framleiðslu getur öflugt rekjanleikakerfi gert framleiðendum auðveldara að framfylgja þeim reglum sem í gildi eru hverju sinni samhliða því að skrá rekjanleikaupplýsingar. Ef t.d. á að framleiða vöru sem er vottuð lífrænt ræktuð þá er stofnuð lota sem er þannig auðkennd. Við skráningu á hráefnum til lotunnar er hægt að athuga hvort hráefnin eru úr lotum sem eru merkt lífræn og er skráning ekki leyfð ef svo er ekki. HagnýTing rekjanleikakerfa Björn Þorvaldsson, þróunarstjóri Innova hugbúnaðar hjá Marel MÓTTAKA VINNSLUSTIG 1 VINNSLUSTIG 2 LOTA E LOTA A LOTA B LOTA C LOTA D LOTA H LOTA I LOTA J LOTA F LOTA G A1 E1 F1 G1 J1 D1 I1B1 H1 C1 A2 D2 I2B2 H2 C2 C3 A4 D4 A3 E2 F2 G2 J2 D3 I3          LOTUTENGSL Í GEGNUM MÖRG VINNSLUSTIG

x

Tölvumál

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.