Tölvumál - 01.10.2013, Blaðsíða 47
47
stokka upp flæði samskiptanna og breyta innihaldi þeirra skjala sem
fara á milli stofnana. Í EESSI eru rafræn skjöl skilgreind á XML-formi
sem nefnast SED (Structured Electronic Documents). Þau munu taka
við af E-vottorðunum sem nú eru send bréfleiðis á milli stofnana. SED-
skjölin hafa verið hönnuð til að gera gagnasamskipti milli stofnana
auðveldari, skilvirkari og óháð mismunandi tungumálum landa EES. Um
300 SED-skjöl taka við af um 200 E-vottorðum þegar EESSI verður
alfarið komið í gagnið. Skilgreind hafa verið 85 flæði til að halda utan um
ferli samskiptanna. Að auki hafa verið skilgreind PD-skjöl (e. Portable
Documents) sem eru pappírsskjöl eða plastkort sem íbúarnir sjálfir geta
fengið í hendurnar. Dæmi um slíkt PD-skjal er evrópska
sjúkratryggingakortið sem SÍ gefur út.
aðlögunarTími
Aðlögunartími (e. Transitional Period) hefur verið skilgreindur í verkefninu
þar sem ekki er gert ráð fyrir því að öll lönd og stofnanir þeirra sem að
verkefninu koma verði tilbúin fyrir rafræn samskipti á sama tíma. Á
aðlögunartímanum geta stofnanir átt í samskiptum með E-vottorð eða
SED-skjöl á pappírsformi samhliða rafrænum samskiptum með SED-
skjöl. Alögunartíminn á skv. upplýsingum frá ESB að enda í maí 2014.
Þegar þetta er skrifað verður hann líklega framlengdur vegna tafa sem
orðið hafa í miðlæga hluta verkefnisins hjá ESB sem nánar verður vikið
að hér á eftir.
STyrkir frá eSb og SamSTarf Við
norðurlöndin
EESSI verkefnið er viðamikið en með aðild Íslands að EES erum við
skuldbundin til þátttöku. TR sótti um styrk til ESB fyrir verkefnastjórn á
sameiginlegum hluta EESSI á Íslandi, innleiðingu á miðlægum
tölvubúnaði og innleiðingu á sérhluta TR. Styrkumsóknin var samþykkt
og fékkst styrkur árið 2011 til tveggja ára að upphæð 200.000 EUR eða
um 32 milljónir króna. Þessi styrkur tengdist ekki aðildarviðræðum
Íslands við ESB heldur gat stofnunin sótt um styrkinn vegna aðildar
Íslands að EES.
Árið 2012 fékk SÍ styrk fyrir um 100.000 EUR eða um 16 milljónir króna
fyrir innleiðingu á sérhluta SÍ í EESSI verkefninu. Sama ár fékk TR einnig
styrk fyrir um 76.000 EUR eða um 12 milljónir króna fyrir innleiðingu á
Solution 7 og aðlögun á innri kerfum TR til samræmis. Vegna tafa í
miðlæga hluta verkefnisins hjá ESB, og þar sem ekki er útlit fyrir að
Solution 7 verði tilbúið á næstu misserum vegna tafanna, þá þurfa
stofnanirnar hugsanlega að endurskoða verkefnin sem falla undir þessa
tvo styrki í samvinnu við ESB.
Styrkurinn sem TR fékk árið 2011 hefur m.a. gert okkur kleift að eiga í
góðu samstarfi við önnur Norðurlönd í verkefninu. Fulltrúar frá
almannatryggingastofnunum Norðurlandanna hafa hist 1-2 á ári til að
finna samstarfsfleti á verkefninu, skiptast á upplýsingum og til að miðla
reynslu sín á milli. TR stóð á þessu ári fyrir norrænum EESSI fundi
dagana 28. og 29. maí s.l. í Reykjavík og sóttu 43 fulltrúar fundinn frá
öllum Norðurlöndunum. Slíkt samstarf er mjög dýrmætt fyrir Ísland til að
nýta reynslu og þekkingu hinna Norðurlandanna sem auðveldar
innleiðingu og sparar tíma og fjármagn.
áSkoranir í Verkefninu
Vandamál hafa komið upp í miðlæga hluta verkefnisins hjá ESB.
Vandamálin sem komu í ljós eru m.a. þau að miðlæga EESSI kerfið
uppfyllir ekki skilgreindar þarfir, er óstöðugt og viðskiptalíkanið er ekki
að virka sem skyldi. Þessi vandamál hafa tafið verkefnið en ESB vinnur
að lagfæringum í samvinnu við aðildarlöndin sem að verkefninu koma.
Tafir og óvissa í miðlæga hluta verkefnisins hafa reynst áskorun fyrir
aðildarlöndin og mörg hver hafa varið miklum fjármunum til að tengjast
EESSI kerfinu. ESB stefnir þó að því að breytingar og lagfæringarnar
muni hafa eins lítil áhrif og hægt er á þá vinnu sem aðildarlöndin hafa
þegar unnið við innleiðingu EESSI hjá sér. Þessar tafir í verkefninu eru
vissulega óheppilegar en vonandi verður verkefnið fyrirhafnarinnar virði
þegar það er komið í gagnið og íbúar EES byrja að njóta góðs af bættri
og hraðari þjónustu.
Yfirlitsmynd af högun EESSI Myndartexti: EESSI netið á Íslandi