Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Blaðsíða 32
Manntalið 1920
30*
Aðeins 13 813 manns eða tæpl. 15°/o af þeim, sem fæddir voru
innanlands höfðu flust út fyrir nágrannasýslurnar. Nærri helmingurinn af
þeim, sem fluttust til fjarlægra hjeraða (6113), lenti í Reykjavíh.
E. Heitnili.
Ménages.
Tala heimila í hverri sýslu og hrepp á landinu er sýnd í töflu I og
II (bls. 1—8), en í töflu XV og XVI (bls. 62—64) er þeim skift eftir
stærð í bæjum og sveitum.
Á landinu voru alls við manntalið 1920 17 636 heimili. Þar með
eru taldar stofnanir, er hafa sameiginlegt mötuneyti fyrir fólk, sem í þeim
dvelur, svo sem skólar, spítalar o. fl. í flestum slíkum stofnunum er
miklu fleira fólk en alment gerist á heimilum. Þær voru þessar:
Skólar ................... 9 með 396 manns
Spítalar og heilsuhæli ... 4 — 200 —
Veitingahús............ 2 — 34 —
Verksmiðja............. 1 — 31 —
Samtals 16 með 661 manns
Þegar þetta er dregið frá, þá verða eftir eiginleg heimili 17 620 með
94 029 manns.
Einstaklingar voru taldir sem sjerstakt heimili, ef þeir höfðu mat
hjá sjálfum sjer, en annars í heimili með fjölskyldu þeirri, sem þeir
bjuggu hjá. Einstaklingar, er töldust sjerstakt heimili, voru alls 970, þar
af 3/4 konur, en V4 karlar. Flest voru 4 manna heimili, 2 537 eða 14V2°/o
af öllum heimilunum, en litlu færri voru 3 manna og 5 manna heimili
(tæpl, 14°/o). Aðeins 3 heimili á landinu töldust með yfir 20 manns.
Þessum heimilum veittu forstöðu Halldór Jónsson Vík í Mýrdal (23),
Arnbjörg Sigfúsdóttir Skriðuklaustri í Fljótsdal (22) og Ólafur Bergsteins-
son Hvallátrum á Breiðafirði (22).
Svo sem sjá má á 11. yfirliti (bls. 31*) er töluverður munur á
heimilastærðinni í bæjum og sveitum. í bæjunum eru 3 og 4 manna
heimili algengust, en í sveitunum 4—6 manna. Fram undir helmingur
bæjarbúa er í 5 manna heimilum og þaðan af minni, en ekki nema hjer-
umbil fjórði hluti sveitabúa. Vfirleitt eru heimilin miklu mannfærri í bæj-
unum heldur en í sveitunum. Stafar það af því, að landbúnaðurinn er
mjög fólksfrekur, ekki síst eins og hjer til hagar, og að verkafólk í
sveitum er til heimilis hjá húsbændum sínum, en í bæjunum myndar það
sjálfstæð heimili út af fyrir sig.