Hagskýrslur um manntöl - 01.01.1926, Blaðsíða 35
Mannlalið 1920
33
G. Fatlaðir.
Anormaux.
Við manntalið 1920 var eins og að undanförnu spurt um hverjir
væru blindir, daufdumbir, fábjánar eða geðveikir. Við 4 síðustu mann-
tölin hefur tala þessara manna verið þessi:
_____1920
1890 1901 1910 Alls Á 1000 manns
Blindir ........ 273 255 305 387 4.1
Daufdumbir . . 67 66 68 81 0.9
Fábjánar........ 91 84 86 101 l.i
Geðveikir .... 126 133 182 183 1.9
Hvar þessir menn voru á landinu við manntalið 1920 sjest á töflu
XVIII (bls. 66), en fyrir skiftingu þeirra eftir aldri, kynferði og hjúskap-
arstjett er gerð nákvæm grein í töflu XIX (bls. 67—68). Samdráttur úr
þeirri töflu er í 12. yfirliti (bls. 34*) og er þar einnig skýrt frá atvinnu
þessara manna.
Blindiv menn töldast alls 387 við manntalið 1920 eða 4.1 af hverju
þúsundi landsmanna. Er það tiltölulega mjög há tala borið saman við
önnur Norðurlönd. Arið 1920 töldust blindir menn í Færeyjum 1.9 af
hverju þús. íbúanna, í Noregi 1.0 og í Danmörk og Svíþjóð aðeins 0.5
af þúsundi. Annars ber þess að gæta, að vafi getur leikið á, hvar setja
skuli takmörkin milli blindra manna og sjáandi. A manntalseyðublaðinu
var gefin sú regla, að telja skyldi þá blinda, sem ekki sæu svo mikið
framundan sjer, að þeir gætu farið ferða sinna á ókunnum stað. Líklegt
er að þeir, sem sjálfir telja sig blinda eða taldir eru það af sínum nán-
ustu, hafi verið skrifaðir blindir á manntalsskýrsluna. Miklu fleiri karlar
eru blindir hjer heldur en konur, 5.0 af þús. karla, en 3.3 af þús. kvenna.
Allur meginþorri blindra manna er yfir sextugsaldur. Um 5°/o af öllum
körlum yfir sextugt og nál. 2V20/0 af öllum konum yfir sextugt voru
blind. Tiltölulega margir blindir menn eru ekkjumenn og ekkjur, enda
er við því að búast, þar sem flestir blindir eru gamalt fólk. Við atvinnu-
störf fengust 27 blindir menn, 24 karlar og 3 konur, þar af 16 við land-
búnað og 6 við iðnað.
Daufdumbir voru 43 karlar og 38 konur eða alis 81. Koma þá 0.9
á hvert þúsund landsmanna. Þeir voru flestallir ógiftir. Þó voru 2 karlar
og 2 konur gift og 2 karlar og 1 kona áður gift. Tiltölulega margir af
þeim fást við atvinnustörf, 37 alls (27 karlar og 10 konur), þar af 16
við landbúnað, 10 við iðnað og 9 innanhúshjú.
Fábjánar eru þeir taldir, sem frá fæðingu eða barnæsku hafa verið