Bændablaðið - 27.08.2015, Síða 12
12 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Talsverð umræða hefur verið
um að ofnotkun sýklalyfja bæði
á sjúkrahúsum og í landbúnaði
sé stærsta heilbrigðisógn sem
nú steðji að Vesturlandabúum.
Í skýrslu MAST fyrir síðasta ár
kemur fram að lyfjanotkun í mat-
vælaframleiðslu á Íslandi er ekki
vandamál.
Ísland og Noregur eru þau lönd
sem þykja standa sig best hvað litla
notkun sýklalyfja varðar í landbún-
aði. Hér hafa sýklalyf t.d. ekki verið
notuð sem vaxtahvetjandi efni eins
og þekkt er víða um lönd. Hefur
þetta verið staðfest í fjölmörgum
úttektum á vegum Eurostat á undan-
förnum árum.
Læknar hérlendis og víðar hafa
í mörg ár varað við vandanum sem
hefur verið að valda sívaxandi vand-
ræðum við meðhöndlun sýkinga á
sjúkrahúsum. Stöðugt eru að koma
fram nýjar upplýsingar um margvís-
legar afleiðingar ofnotkunar sýkla-
lyfja og má þar t.d. nefna áhugaverða
mynd um ofvirkni sem sem sýnd var
í Sjónvarpinu í síðustu viku.
Unnið samkvæmt
„Aðskotaefnaáætlun“
Hér á landi hefur verið í gangi
svokölluð „Aðskotaefnaáætlun“
sem byggir á reglugerð (IS) númer
30/2012 og er ætlað að upplýsa um
þessi mál. Er sýnatökum dreift á
héruð og sláturhús eftir framleiðslu-
magni og sláturtölum.
Héraðsdýralæknar og eftirlits-
dýralæknar sjá um nær allar sýna-
tökur, en fiskeftirlitsmenn hafa tekið
hluta af sýnum úr fiskeldi. Sýni af
vöðva, fitu, lifur, nýrum eða þvagi
frá dýrum eru tekin í öllum slátur-
húsum við slátrun. Mjólkursýni eru
tekin á kúabúum, en þar eru einnig
tekin þvagsýni til að skima fyrir
ólöglegum lyfjum úr bæði mjólk-
urkúm og ungneytum. Eggjasýni eru
tekin á eggjabúum og eggjapökk-
unarstöðvum eftir því sem við á.
Sýni úr fiskeldi eru flest tekin við
slátrun og vinnslu. Þá voru einnig
tekin á síðasta ári sýni af nýrum
hreindýra.
Ekkert ámælisvert
Skimað var fyrir vaxtarhvetjandi
og óleyfilegum lyfjum, minnst 30
tegundum af sýklalyfjum, hnísla-
og sníklalyfjum og öðrum lyfjum,
en einnig aðskotaefnum eins og
þrávirkum lífrænum efnum, PCB-
efnum, þungmálmum og sveppa-
eitri. Skimað var fyrir sumum
eða öllum efnunum í hverju sýni.
Sýnin voru greind hjá faggiltum
rannsóknastofum bæði hérlendis
og erlendis.
Tvö sýni mældust yfir við-
miðunarmörkum og samkvæmt
verklagi var málið skoðað nánar,
en ekki var ástæða til að bregðast
frekar við þar sem um líffræðilegan
breytileika var að ræða í báðum til-
vikum. Umrædd sýni voru í lýsi og
í þörungamjöli. /HKr.
Fréttir
Lyfjanotkun við matvælaframleiðslu er ekki vandamál á Íslandi:
Sýnataka staðfestir mjög
góða stöðu hér á landi
Á hverju sumri koma saman sóknarbörn
-
-
Mynd / Birna Viðarsdóttir á Hvoli í Mýrdal
Tiltekt við Skeiðflatarkirkju
Hin árlega Kjötsúpuhátíð verður
haldin á Hvolsvelli helgina 28. til
29. ágúst.
Hátíðin byrjar á föstudagskvöldinu
með skemmtilegu súpurölti um
skreyttar götur Hvolsvallar en þá
taka íbúar sig saman um að skreyta
göturnar sínar, bjóða upp á súpu
og búa til skemmtilega stemningu.
Á laugardeginum 29. ágúst verður
Kjötsúpuhátíðin, glæsileg skemmt-
un á miðbæjartúninu og súpa í boði
fyrir alla. Allar nánari upplýsingar má
finna á www.hvolsvollur.is. /MHH
Kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli
helgina 28.–29. ágúst
Mynd / MHH
Árborg:
Selfossbæirnir fallegasta gatan
Framkvæmda- og veitustjórn
Sveitarfélagsins Árborgar hefur
valið götuna við Selfossbæina á
Selfossi fallegustu götuna árið
2015.
Viðurkenning þess efnis var
afhent íbúum í tengslum við Sumar
á Selfossi um síðustu helgi. Við
götuna búa fimmtán íbúar, elsti
íbúinn, Gunnar Gunnarsson, er 86
ára og yngsti íbúinn, Sigrún Drífa
Þorfinnsdóttir, er 18 ára. /MHH
Skráning MAST á stofnstærð sauð-
fjár skiptir miklu máli varðandi
skrá um rétthafa greiðslumarks
og stuðningsgreiðslu ríkisins við
sauðfjárbændur. Sama gildir um
skráningu á fjölda nautgripa og
ýmsar aðrar stærðir í landbúnaði.
Á árinu 2014 voru beingreiðslur
samtals 7.804 milljónir króna, þar
af 5.439 m.kr. (5.298) vegna mjólk-
urframleiðslu og 2.365 m.kr. vegna
sauðfjárframleiðslu. Jukust bein-
greiðslur í mjólkurframleiðslunni í
krónum talið um 141 milljón milli ára
en drógust saman í sauðfjárræktinni
um 39 milljónir króna samkvæmt
skýrslu MAST.
Á árinu 2014 var fjöldi lögbýla
með skráð greiðslumark sauðfjár
samtals 1.769, en voru 1.808 á árinu
2013. Lögbýli skráð með greiðslu-
mark mjólkur voru 664 á árinu og
hafði þá fækkað úr 672 eða um 8
frá árinu áður. Enginn framleiðandi
lagði hins vegar inn greiðslumark til
geymslu sem þýðir væntanlega að
einhverjir hafa verið að bæta við sig.
Handhafar beingreiðslna á árinu
vegna mjólkurframleiðslu 2014 voru
649 á móti 659 á árinu 2013. Í sauð-
fjárframleiðslu voru handhafar bein-
greiðslna 1751 á móti 1738 árið 2013.
Samtals voru staðfestar 69 breytingar
handhafa beingreiðslna, í fyrra en þær
voru 86 árið áður. Þar af 17 vegna
mjólkurframleiðslu, en þær voru 22
árið 2013. Vegna sauðfjárframleiðslu
voru staðfestar 52 breytingar á síðasta
ári en 64 árið áður. /HKr.
Lögbýlum með greiðslumark fækkar
Landskeppni Smalahundafélags
Íslands 2015 í umsjá Austur-
landsdeildar SFÍ verður haldin
í Einholti á Mýrum í Austur-
Skaftafellssýslu helgina 29. til 30.
ágúst.
Þar munu margir af bestu Border
Collie-smalahundum landsins etja
kappi í braut. Keppt verður í eftir-
töldum greinum:
• A-flokki, opinn flokkur
• B-flokki, fyrir hunda sem hafa
náð 3ja ára aldri en ekki náð 50 stig-
um á Landskeppni
• Unghundaflokki, fyrir hunda
yngri en 3 ára.
Dómari verður Ross Gamesy frá
Wales. Keppnin hefst á keppni ung-
hunda á laugardaginn kl. 10.00. Allir
velkomnir.
Smalahundafélags Íslands:
Landskeppni 29.–30. ágúst
Kvenfélagið Sigurvon í Þykkvabæ
stendur fyrir sýningu í skólahúsinu
í Þykkvabæ undir heitinu „Líf og
atvinnuþátttaka kvenna í 100 ár“.
Sýningin var opnuð laugar-
daginn 23. ágúst. Séra Auður Eir
Vilhjálmsdóttir og séra Guðbjörg
Arnardóttir fylgdu verkefninu úr
hlaði í kirkjunni okkar í Þykkvabæ.
Sýningin er sett upp í tilefni af 100
ár kosningaafmæli kvenna, en hún
er mynda- og munasýning. Leitast
er við að sýna konur í Djúpárhreppi
hinum forna við hin ýmsu daglegu
störf.
Um það bil 200 manns sóttu okkur
heim um helgina og var góður rómur
gerður af framtakinu af hálfu gesta.
Sýningin verður opin 30. ágúst nk.
kl.14–17 og einnig um Safnahelgina
í nóvember.
Verkefnið hlaut styrk frá verkefna-
sjóði v/100 ára afmælis kosninga-
réttar kvenna, Uppbyggingarsjóði
Suðurlands-SASS og Rangárþingi
ytra.
Kvenfélagið Sigurvon í Þykkvabæ:
„Líf og atvinnuþátttaka kvenna í 100 ár“