Bændablaðið - 27.08.2015, Qupperneq 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
„Stefnan er að halda þessu
áfram og reyna að standa í
lappirnar,“ segja þau Bergdís
Hrönn Kristinsdóttir og Tómas
Jóhannesson loðdýrabændur,
en þau hafa rekið félagið sitt,
Rándýr ehf., um árabil.
Loðdýrabú þeirra er á Greni-
víkurhólum, skammt sunnan við
Grenivík í Grýtubakkahreppi.
Það á sér langa samfellda sögu
sem nær allt aftur til ársins 1971
þegar fyrstu loðdýrin voru flutt til
Íslands. Rándýr er annað tveggja
loðdýrabúa við Eyjafjörð, hitt er
handan fjarðar, Dýrholt, sem stend-
ur skammt frá Dalvík.
Bergdís og Tómas, Tommi og
Dísa eins og þau eru iðulega köll-
uð, eru alls með rúmlega 1.800
minkalæður á búi sínu. „Þetta er
rétt svona meðalbú,“ segir Tommi
og kveðst munu halda því áfram í
þeirri stærð á komandi árum. Þrír
100 metra langir skálar eru á búinu
auk tengibyggingar.
Samfelld saga frá árinu 1970
Forsaga Rándýrs nær allt aftur til
ársins 1970, en 21. desember árið
1970 komu 1.717 minkar frá Noregi
til Grávöru, hlutafélags sem stofn-
að hafði verið í Grýtubakkahreppi,
og 65 aðilar, einstaklingar og félög
áttu hlut í. Félagið var rekið um
árabil, en þó fór á endanum fyrir
því líkt og mörgum öðrum loðdýra-
búum að reksturinn varð of þungur
og endaði með gjaldþroti.
Tómas réði sig til starfa hjá
félaginu á fyrsta starfsári þess og
hefur starfað
innan loðdýra-
ræktarinnar alla
tíð upp frá því, eða í rúma fjóra ára-
tugi. Kona hans, Bergdís, hóf störf
hjá Grávöru
fáum árum síðar, eða árið 1974.
Þau þekkja því vel til í greininni.
Þau tóku rekstur búsins á leigu árið
1991, eftir þrot Grávöru og keyptu
hann fimm árum síðar, árið 1995
og stofnuðu félagið Rándýr ásamt
Frímanni Kristjánssyni sem rak
búið með þeim til 2009. Hafa þau
því rekið búið í nær aldarfjórðung.
Til marks um þrjósku bænda
Um skeið bjuggu þau bæði með
mink og ref, en einn skálanna
þriggja á búinu var reistur sérstak-
lega undir refi, á árunum 1979 til
80 og komu fyrstu refirnir á búið
árið 1980.
„Við vorum með þetta hvort
tveggja fram til ársins 2003, þá
gáfumst við endanlega upp á refn-
um, það var afskaplega lítið upp úr
honum að hafa, eða eiginlega ekki
neitt. Þetta var nokkuð stórt refa-
bú á sínum tíma, með þeim stærri
í landinu, um 250 læður. Það fór
svo að reksturinn borgaði sig engan
veginn, svipað verð fékkst fyrir
refa- og minkaskinn, en refurinn
étur á við þrjá minka. Það var bara
glórulaust að reyna að halda þessu
áfram, en það var nú haft á orði
að það væri til marks um þrjósku
bænda hversu lengi þeir héldu
þetta út. Við vorum með þeim síð-
ustu til að hætta, bróðir minn hér
í sveitinni hélt sínum rekstri út ári
lengur en við og síðasta búinu sem
var á Jökuldal var lokað ári síðar,“
segir Tómas.
Bergdís og Tómas reka loðdýrabúið Rándýr við Grenivík:
Stefnan er að halda áfram
og standa í lappirnar
Tómas Jóhannesson, Bergdís Hrönn Kristinsdóttir og sonur þeirra, Sveinn Hlynur, sem starfað hefur með foreldrum sínum á loðdýrabúi þeirra, Rándýri við Grenivík, í sumar. Myndir / MÞÞ
Rúmlega 1.800 minkalæður eru nú á búinu, sem er
nokkurn veginn meðalstærð loðdýrabúa hér á landi
um þessar mundir.
„Ekki gott að hafa öll eggin í sömu
körfunni,“ segir Tómas, en alls eru
minkar af 8 litaafbrigðum á búinu.