Bændablaðið - 27.08.2015, Page 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Verkefninu Matjurtarækt á
Austurlandi er ætlað að stuðla að
því að sem flestar matjurtir, sem
matsölustaði á Austurlandi, eink-
um veitingastaði og mötuneyti,
vanhagar um, verði ræktaðar í
heimahéraði. Auk þess að stuðla
að aukinni heimaræktun matjurta
almennt á svæðinu.
Markmiðinu verði náð með sam-
stilltu átaki umsækjanda og hlut-
aðeigandi samstarfsaðila (gjarna í
kasasamstarfi) um matjurtaræktina,
auk þess, sem stefnt er að stofnun
samsölu- eða samvinnufyrirtækis
(sala, pökkun og dreifing).
Samstarfsaðilar umsækjenda:
Gróðrarstöðin Barri ehf. í Fellabæ,
Búnaðarsamband Austurlands,
Sólskógar á Kaldá á Völlum og
Hitaveita Egilsstaða og Fella, auk
þess sem fleiri aðilar á Austurlandi
gætu bæst við síðar og gjarna fjár-
festar einnig.
Verkefnið byggist að veru-
legu leyti á nýtingu náttúrugæða
í landsfjórðungnum með ræktun,
fullvinnslu og markaðssetningu
afurða úr héraði í samkeppni við
hliðstæð aðflutt aðföng. Verkefnið
hlaut þakkarverðan styrk úr
Uppbyggingarsjóði Austurbrúar.
Mikilvægt er að undirbyggja vel
slíkt frumkvöðlaverkefni, meðal
annars í ljósi vaxandi fjölda erlendra
ferðamanna. Í því sambandi má
nefna að sjóleiðin (Norræna) er
opin, auk þess sem beint flug í
Egilsstaði erlendis frá, gæti einnig
styrkt samkeppnisaðstöðu á þessu
sviði hér eystra.
Verkefni þetta útheimtir góðan
undirbúning, þar sem eftirtalin atriði
eru meðal þeirra, sem einna mestu
máli skipta:
1. Gera þarf a.m.k. grófa áætlun
yfir matjurtaþörf matsölustaða
í fjórðungnum, til að átta sig á
tegundum og magni matjurta,
sem þá vanhagar helst um.
Segja má að þessi forvinna
liggi að miklu leyti fyrir nú
þegar, sem staðfestir mikla
vöntun á frumkvæði í héraði
á þessu sviði, þrátt fyrir veru-
legan flutningskostnað af höf-
uðborgarsvæðinu, þaðan, sem
helftin af vörum þessum er
fengin. Einnig má búast við að
meiri ferskleiki jurta, beint úr
héraði, styrki samkeppnisstöðu
heimaræktunar.
2. Ráða þarf reynsluríkan
kunnáttumann um þessa rækt-
un, til að leiðbeina væntanleg-
um framleiðendum um sem
flestar hliðar ræktunarinnar
og, eftir atvikum, meðferð og
markaðssetningu framleiðsl-
unnar.
3. Öflug kynning þarf að fara
fram á verkefninu í fjórðungn-
um, bæði meðal væntanlegra
kaupenda og framleiðenda, til
að kanna áhuga fólks á þátttöku
í því og til að gera sér sem best
grein fyrir þeim áherslum, sem
mestu máli skipta fyrir farsæl-
um framgangi verkefnisins.
4. Nauðsynlegt er að efla áhuga
væntanlegra ræktenda með
heimsóknum, fundum og nám-
skeiðahaldi, m. a. í lífrænni
ræktun. Í leiðinni mætti vekja
áhuga manna á stofnun sérstaks
samsölu- eða samvinnufélags,
sem væri miðstöð fyrir sölu,
vinnslu, pökkun og dreifingu
á framleiðslunni til viðskipta-
vina, sem og félagi framleið-
enda matjurta. Einnig mætti
skoða landshlutabundið sam-
starf við hliðstæð félagasamtök.
5. Miðað við að undirbúnings-
verkefni þetta stefni í jákvæða
átt, þarf tímanlega að huga að
allnákvæmri verk áætlun fram-
leiðslu- og söluárið 2016–17,
þannig að ræktunin sé í takt við
vel áætlaða markaðsþörf, enda
hafi fyrrnefnt samsölufyrirtæki
þá vonandi séð dagsins ljós.
Í viðræðu við væntanlega kaupendur
heimaræktaðra matjurta er óhætt að
segja að verkefninu var undantekn-
ingarlaust afar vel tekið. Sömu sögu
er að segja af forstöðufólki á þess-
um vettvangi í Landbúnaðarháskóla
Íslands og umbeðin fagleg liðveisla
auðsótt. Í samræmi við forgangs-
atriði hér að framan er ákveðið að
efna til tveggja kynningarfunda um
verkefnið, þriðjudaginn 15. septem-
ber, nánar þannig:
Hótel Tærgesen á Reyðarfirði,
kl. 16 og á Hótel Valaskjálf á
Egilsstöðum kl. 20.
Eftirfarandi dagskrá fundanna er
áætluð á þessa leið:
1. Inngangsorð verkefnisstjóra
Matjurtaverkefnisins.
2. Kynning á verkefninu út frá
eigin hugmyndum og fagþekk-
ingu og kortlagning á fyrirhug-
uðum námskeiðum í matjurta-
rækt á Austurlandi. Guðríður
Helgadóttir, forstöðumaður
starfs-og endurmenntunardeild-
ar LBHÍ, Garðyrkjuskólanum á
Reykjum í Ölfusi.
3. Viðhorf fulltrúa úr hópi
veitingastaða á Austurlandi og
væntingar þeirra til verkefnis-
ins.
4. Umræður
Nánari dagskrá verður kynnt þegar
nær dregur.
Fundurinn er opinn öllu áhuga-
fólki á Austurlandi, sem er hvatt til
að taka daginn frá.
Framfarafélag Fljótsdalshéraðs
og samstarfsaðilar
„Matjurtarækt á Austurlandi“− verkefni um eflingu ræktunar í heimahéraði
Eigum hina vinsælu vagna frá þessum
þekkta framleiðanda til afgreiðslu Strax
BÚFJÁRFLUTNINGAVAGNAR
frá Ifor Williams
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfða 8. - 110 Reykjavík
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is