Bændablaðið - 27.08.2015, Side 35
35Bændablaðið | Fimmtudagur 27. ágúst 2015
Inniloftsmengun getur orðið
hættuleg í fjósum og haughús-
um eins og bændur hafa feng-
ið að reyna í aldir. Er það fyrst
og fremst hin eitraða lofttegund
brennisteinsvetni sem veldur
mestri hættu.
Sem betur fer er sterk (skíta-) lykt
af brennisteinsvetninu svo menn fá
viðvörun. En ef styrkur er mikill,
yfir 100 ppm (milljónustu), lamast
lyktarskynið og hættan stóreykst.
Við niðurbrot í húsdýraskít myndast
nokkrar fleiri eitraðar lofttegundir,
áberandi úr kúamykju en líka getur
orðið talsvert af þeim í fjárhúsum.
Auk brennisteinsvetnis myndast
ammoníak og jafnvel köfnunarefn-
issýrlingar. Einnig myndast óeitraðar
gastegundir, s.s. metan. Það er líka
varasamt þó að það eitt og sér sé ekki
eitrað, það þynnir loftið og lækkar
súrefnisinnihaldið, eins og reyndar
fleiri gastegundir úr húsdýraskítn-
um, og getur valdið súrefnisskorti og
jafnvel sprengihættu. Koltvísýringur
myndast líka og ryður burt súrefninu,
sé hann í miklu magni veldur hann
örari öndun og súrefnisskorti.
Mengun í útihúsum getur farið
yfir viðmiðunarmörk
Í reglugerðum 1066/2014 og
438/2002 eru mörk á styrk brenni-
steinsvetnis (0,5 ppm) og amm-
oníaks (20 ppm) fyrir kindur og
kýr í fjárhúsa- og fjósalofti. Svo
virðist sem stofnanir hérlendis hafi
ekki gert kerfisbundnar mælingar á
mengunninni, helst hafa áhugamenn
verið að mæla. Til eru mælingar sem
Vinnueftirlitið hefur gert af sérstök-
um tilefnum í fjósalofti. Af þeim má
draga þá ályktun að mengunin fari
stundum yfir mörkin.
Gastegundirnar skaða heilsu bæði
dýra og manna og gera fólk og fé
veikari fyrir öðrum heilsubrestum og
er því ástæða til að fylgjast vel með
menguninni. Ammoníak (stingandi
lykt) veldur ertingu og í framhaldi
ætingu, bólgum og veiklun öndunar-
færa, brennisteinsvetni (skítalykt)
gerir það einnig og veldur höfuð-
verk og svimakennd, og það sem er
alvarlegra, veldur líka bráðalömun
öndunarstöðva í heila og meðvit-
undarleysi við lágan styrk (0,05%
af inniloftinu) og köfnun og skjótum
dauða ef styrkur verður nógu hár.
Köfnunarefnissýrlingarnir (þung
hráalykt,veikur sætur keimur gæti
fundist með) geta valdið vökva í
lungum og köfnun. Fyrir bændur og
aðra þá sem vinna við fjós og fjárhús
gilda mengunarmörk sem eru í reglu-
gerð 390/2009. Bæði eru þar gildin
sem mega vera í inniloftinu við vinnu
í 8 klst. í einu (brennisteinsvetni 5
ppm, ammoníak 20 ppm, köfnunar-
efnistvíildi 3 ppm) og í 15 mínútur en
þau gildi eru oftast tvöfalt hærri en
gildin fyrir 8 tímana. Fari mengunin í
hærra gildið (kallast þakgildi) þarf að
rýma svæðið innan stundarfjórðungs.
Eiturgasið er frekar auðvelt að
mæla
Allar þessar eiturgastegundir er
frekar auðvelt að mæla. Þó að
brennisteinsvetnið í kúamykjunni
sé þekktasta eiturlofttegundin þurfa
bændur líka að vera á varðbergi
gagnvart öðrum gastegundum, súr-
efniseyðingu og súrefnisskorti í bæði
fjósum og fjárhúsum og hafa næga
loftræstingu. Sín vegna en hraustar
kindur og kýr eru gleði bóndans!
Gylfaflöt 32 112 Reykjavík Sími 580 8200 www.velfang.is Frostagata 2a 600 Akureyri www.claas.is
VERKIN TALA
FR
U
M
-
w
w
w
.fr
um
.is
Þetta snýst allt um þig…
Nýja CLAAS – ARION 400 vélin er alveg eins og
þú vilt hafa hana.
Hver dagur færir þér ný verkefni og það ert þú sem þarft að takast á við þau.
Þegar þú kaupir dráttarvél þá þarf hún að vera alveg eins og þú vilt hafa hana.
Þú vilt dráttarvél sem gerir einmitt það sem þú vilt að hún geri og að hún uppfylli allar
þínar kröfur og væntingar. Hvorki meira og örugglega ekki minna.
Þess vegna vilt þú ekki bara næstu dráttarvél sem er til á lager.
Þú færð nýju ARION 400 dráttarvélina nákvæmlega eins og þú vilt hafa hana
ARION 460 / 450 / 440 / 430 / 420 / 410 66–103 kW (90–140 hö). www.arion400.claas.com
Ábending til bænda frá Vinnueftirlitinu − Friðrik Daníelsson efnaverkfræðingur:
Eiturlofttegundir í innilofti fjósa og fjárhúsa
Friðrik Daníelsson.
Framkvæmdir eru að hefjast við
byggingu nýrrar heilsugæslu-
stöðvar í Mývatnssveit, en áætl-
að er að taka stöðina í notkun
í febrúar á næsta ári. Fyrsta
skóflustungan var tekið á dögun-
um.
Núverandi heilsugæsla er rekin
í gömlu íbúðarhúsi sem hent-
ar starfseminni illa. Trésmiðjan
Rein ehf., sem byggir húsnæðið,
átti lægsta tilboð í verkið, tæpar 96
milljónir króna. Frá þessu segir á
vef velferðarráðuneytisins.
Löng saga
Áform um byggingu heilsugæslu-
stöðvar í Mývatnssveit eiga sér
langa sögu, en til þessa hefur
gamla íbúðarhúsið að Helluhrauni
17 í Reykjahlíð verið látið duga
með lítils háttar lagfæringum sem
gerðar hafa verið á síðari árum. Í
apríl 2014 lauk Framkvæmdasýsla
ríkisins frumathugun á mögulegum
kostum til að bæta úr húsnæðismál-
um heilsugæslunnar. Niðurstaðan
var sú að skynsamlegast væri að
byggja, fremur en að ráðst í fram-
kvæmdir við núverandi húsnæði,
þar sem gagngerar endurbætur
myndu ekki nægja til að sníða af
því ýmsa vankanta.
/MÞÞ
Ný heilsugæslustöð
rís í Mývatnssveit
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðaherra tekur fyrstu skóflu-
stunguna að nýrri heilsugæslustöð
í Mývatnssveit.