Morgunblaðið - 15.08.2015, Page 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015
Hæ sæti,
hvað ert þú að borða?
– fyrir dýrin þín
Bragðgott, hollt
og næringarríkt
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022
AMH – Akranesi – sími 431-2019 | www.dyrabaer.is
STANGVEIÐI
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Þetta er æðislegt. Hér er alveg
hörkuveiði og verður það áfram
þangað til stíflan fer á yfirfall,“
sagði Aðalsteinn Hallbjörnsson þar
sem hann var að veiða í Blöndu.
Blaðamaður hitti hann við Breiðuna
að sunnan, á neðsta veiðisvæðinu.
Aðalsteinn var nýbúinn að landa
einum. „Nú er hér himnaríki á jörð,
fiskur alls staðar þó að það þurfi að-
eins að hafa fyrir honum,“ sagði
hann brosandi.
Laxveiðin heldur áfram að vera
góð víða um land og er veiði sumars-
ins rúmlega helmingi meiri nú en á
sama tíma í fyrra. Og veiðin heldur
áfram að vera afar góð í húnvetnsku
ánum þar sem Blanda trónir enn á
toppnum; vikan gaf 564 fiska.
Að vanda er neðsta svæðið gjöf-
ulast. Við Damminn glampar víða á
hreistur á steinum og þar eru laxar í
pokum, litlir og stórir; kvótinn, sex
á vakt, í einni laxaslöngunni. Þar
veiða menn á maðk og flugu en bara
á flugu á Breiðunni þar fyrir neðan.
„Áin er blá af fiski,“ segir Krist-
inn Pétursson sem er að kasta
Sunray shadow-túpu á Damminn.
„Við fengum þrjá áðan á Breið-
unni,“ segir Máni Gestsson, félagi
hans. „Strákarnir á móti okkur eru
komnir með að minnsta kosti átta.“
Fyrir ofan okkur í brekkunni
stendur veiðivörðurinn og lítur yfir
sviðið. Hann kemur síðan og spjall-
ar við veiðimennina. Við sjáum þá
hvar veiðimaðurinn sem hefur verið
að kasta á Breiðuna að norðan hefur
sett í einn.
„Það er líka gríðargóð veiði á efri
svæðunum,“ segir veiðivörðurinn.
Og bætir við að hollin þar séu að fá
þrjátíu til fimmtíu laxa. „Mörg þús-
und laxar hafa farið upp laxastigann
og svo ganga aðrir upp flúðina,“
segir hann. Spurningin er bara hve-
nær stíflan við Blöndulón fer á yf-
irfall og áin skolast. Þangað til held-
ur veislan þar áfram.
Bítillinn virkar vel
Veiðin í Laxá á Ásum er frábær,
dagsstöngin í liðinni viku gaf 18
laxa. Hún er ljómandi góð í Víðidal
og Vatnsdal og einstaklega fín í
Miðfjarðará. Þegar blaðamaður
hittir þau Þorra Hringsson mynd-
listarmann og Sigrúnu Halldórs-
dóttur neðst við Vesturá, eina af
fjórum ám sem mynda fjölbreytilegt
vatnasviðið, sýnir Þorri honum
flugu sem reyndist þeim vel á kvöld-
vaktinni daginn áður. Þau fengu þá
fjóra laxa í efri hluta Vesturár og
þrír komu á þessa heimagerðu flugu
listamannsins sem hann kallar Bít-
ilinn.
„Hún virðist virka vel á nýgeng-
inn fisk,“ segir Þorri. Bítilinn er
blár með silfurþráðum og brúnu
skotti, mjög veiðilegur. Þau Sigrún
segja mikið af laxi af öllum stöðum –
„það er vandræðalega mikið af fiski
þarna upp frá,“ segir Sigrún.
Þorri fékk strax tvo laxa þar fyrr
um morguninn og nú eru þau komin
að Hlíðarfossi. Við Hlíðarfossbreið-
una byrjar Þorri með aðra heima-
gerða flugu, rauðleita sem enn hefur
ekki fengið nafn. Listamaðurinn
dregur fluguna yfir viðkvæmn-
islegan strenginn og skyndilega
bendir hann Sigrúnu á laxa; „það
eru örugglega einir tíu þarna,“ segir
hann, stoppar og þrákastar á
strenginn. Skyndilega rennir einn
laxinn sér á fluguna, Þorri lyftir
stönginni og tekur að glíma við
sprækan smálax.
Á sama tíma í fyrra, þegar Þorri
og Sigrún komu til veiða, voru
komnir tæplega þúsund laxar í
veiðibók Miðfjarðarár. Þeim fannst
þá talsvert af laxi í ánni og veiðin fín
en nú fór veiðitalan yfir þrjú þúsund
laxa daginn sem þau mættu og þau
segja ána greinilega fulla af fiski.
Jaðrar við of mikla veiði
„Veiðin hér í Miðfjarðará fór yfir
3.000 laxa í gær,“ segir Rafn Valur
Alfreðsson, leigutaki árinnar. Þetta
er sjöunda sumar Rafns með ána og
hann segir tökugleði laxins nú, og
magn fisksins í ánni, helst minna
hann á fyrsta sumarið hans þarna,
2009. Þá var sett met í ánni, 4004
veiddir.
„Annars er ég lítið upptekinn af
þessum tölum. Fáir útlendingar
spyrja hvað veiðst hafi í sumar en
Íslendingar eru hins vegar alltaf að
velta sér upp úr þeim. En hér eru
allir veiðimenn kátir og það er aðal-
atriðið. Mér finnst að þetta jaðri við
að vera of mikil veiði á stöng! Ef þú
ert að fá meira en fjóra til fimm
fiska á stöng á dag í laxveiði, þá ertu
kominn í hálfgerða vitleysu. Og nú
er það þannig hér á köflum …“
Rafn segir öll svæði árinnar vera
góð þessa dagana. „Og ég held að
það sé fiskur á nánast hverjum ein-
asta veiðistað í ánni.“ Hann segir að
laxinn gangi enn af ágætum krafti
og telur að allt að níutíu prósent
veiðinnar séu smálax.
Legið hefur í norðanátt í allt sum-
ar í Miðfirði og hitinn 6 til 10 gráður
Takan hefur samt haldist jöfn og
góð. „Það er túpu-bann í ánni og
bannað að veiða á sökkenda. Menn
nota nánast aldrei þyngdar flugur.
Fiskurinn er að koma upp í yf-
irborðið að taka, þó að það sé kalt.“
Rafn flettir í veiðibókinni. „Þetta er
mest tekið á flugur í stærðum 14 og
16 og iðulega annar hver fiskur á
hits. Fiskurinn er ótrúlega tökugl-
aður hérna og nú er bara gaman.“
„Vandræðalega mikið af fiski“
Áfram hörkuveiði í húnvetnsku ánum Veiðimaður segir Blöndu vera bláa af fiski Leigutakinn
í Miðfirði segir laxinn ótrúlega tökuglaðan Telur níutíu prósent veiðinnar vera smálax
Einn til Veiðimaður landar sprækum smálaxi við Breiðuna í Blöndu.
Aflahæstu árnar
Heimild: www.angling.is* Tölur liggja ekki fyrir
Blanda (14)
Ytri-Rangá & Hólsá (20)
Miðfjarðará (10)
Norðurá (15)
Langá (12)
Þverá-Kjarrá (14)
Eystri-Rangá (18)
Haffjarðará (6)
Laxá á Ásum (2)
Hítará (6)
Grímsá og Tunguá (8)
Víðidalsá (8)
Laxá í Aðaldal (18)
Selá í Vopnafirði (8)
Vatnsdalsá (7)
Veiðivatn (Stangafjöldi) Veiði
Á sama
tíma í
fyrra
Á sama
tíma
2013
Staðan 12. ágúst 2015
1681
1146
1035
780
253
941
1608
620
718
312
324
370
617
677
425
2229
2501
2226
2683
1659
2467
2386
1615
753
890
1083
519
697
1052
743
3561
3248
3092
2263
1581
1577
1458
1221
1122
855
855
854
811
746
730
Morgunblaðið/Einar Falur
Takan Laxinn tekur flugu Þorra Hringssonar á Hlíðarfossbreiðu í Vesturá, einni af ánum sem mynda Miðfjarðará.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ónefnd Laxinn hrífst af heimagerð-
um flugum myndlistarmannsins.