Morgunblaðið - 15.08.2015, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015
!
"
#$
!
$!"
$$%
!
%$"
"#"
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
$
"!
!
! %
$$$#
"%
$!
%""
"!$
!
$#
#$
!!
! #$
$!
$
!
%"!
"#
$!
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Greiningardeildir viðskiptabankanna
þriggja spá allar 0,5 prósentustiga
hækkun stýrivaxta á næsta vaxta-
ákvörðunarfundi peningastefnunefndar
Seðlabanka Íslands sem verður í næstu
viku. Rökstyðja greiningardeildirnar
helst spár sínar með að harður tónn hafi
verið í yfirlýsingu nefndarinnar í júní síð-
astliðnum þegar vextir voru hækkaðir
um 50 punkta. Sagði nefndin þá: „Enn
fremur virðist einsýnt að hækka þurfi
vexti umtalsvert í ágúst og frekar á kom-
andi misserum eigi að tryggja stöðugt
verðlag til lengri tíma litið.“
Bankarnir spá allir
sömu stýrivaxtahækkun
● Eftir 2,64% lækkun á bréfum HB
Granda í fyrradag sótti verðlagning á
bréfum í útgerðarfélaginu í fyrra horf í
Kauphöllinni í gær. Þannig hækkuðu
bréf þess um 3,1% í tæplega 400 millj-
óna viðskiptum. Lækkunin í fyrradag
hafði hins vegar orðið í rúmlega 600
milljóna viðskiptum.
Ekkert félag hækkaði jafn mikið í
Kauphöllinni í gær og HB Grandi. Næst
á eftir kom Icelandair Group með 1,1%
hækkun í mjög takmörkuðum við-
skiptum sem námu réttum 18 millj-
ónum króna.
HB Grandi hækkar aftur
eftir lækkun í gær
STUTTAR FRÉTTIR ...
viðbótar við eftirgjöf vörugjaldsins
vegna undanþágunnar.
Lækka gjöldin á almenning
„Við erum að velta því fyrir okk-
ur hvort ekki er óeðlilegt að um sé
að ræða niðurgreiðslu af hálfu hins
opinbera á kostnað hins almenna
skattgreiðanda nú þegar virðist
sem vöxtur og viðgangur bílaleiga
sé góður og atvinnugreinin að
verða æ sjálfbærari,“ segir Run-
ólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri
FÍB, Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda. Hann segir að hægt væri að
lækka vörugjöldin á bifreiðum al-
mennings ef samræming væri gerð
á undanþáguflokkunum, án þess að
skatttekjur ríkissjóðs væru lækk-
aðar þannig að tekjur vegna vöru-
gjalda af fólksbifreiðum væru svip-
aðar og áður. „Það væri ekki um að
ræða skattalækkun heldur skatta-
aðlögun og gæti haft jákvæð áhrif
á neysluverðsvísitöluna.“
Fjölgun í beiðnum
um eftirgjöf
Við innflutning ökutækis er sótt
um eftirgjöf vörugjalds vegna bíla-
leigubíla og það sem af er þessu ári
hefur verið óskað eftir slíku í 5.837
tilvikum en til samanburðar var sá
fjöldi 1.940 á árinu 2010, sam-
kvæmt tollstjóraembættinu.
Runólfur segir að réttlætingin á
því að bílaleigubílar væru undan-
þegnir eða greiddu lægri vörugjöld
hafi verið að atvinnugreinin byggi
við ákveðna erfiðleika því við-
skiptatímabilið væri stutt og að hér
væru á boðstólum ný og örugg
tæki á hverjum tíma. „En við vitum
að vegna mikils vaxtar ferðaþjón-
ustunnar undanfarið standast þau
rök ekki lengur,“ segir Runólfur.
Ríkissjóður verður af 9
milljörðum í vörugjöldum
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Vörugjöld Bílaleigubílum hefur fjölgað mikið undanfarin ár.
Um 150 bílaleigur fá eftirgjöf á vörugjöldum Draga á úr ívilnunum bílaleiga
Eftirgjöf á vörugjöldum bílaleigubíla
Heimild: Tollstjóri*1. janúar-7. ágúst.
í milljónum kr.
2010 2011 2012 2013 2014 2015*
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
BAKSVIÐ
Margrét Kr. Sigurðardóttir
margret@mbl.is
Það sem af er þessu ári hefur rík-
issjóður orðið af rúmum 2 millj-
örðum króna vegna eftirgjafar á
vörugjöldum bílaleigubíla sam-
kvæmt upplýsingum tollstjóraemb-
ættisins. Frá árinu 2010 hafa vöru-
gjöldin sem gefin hefur verið
undanþága á rúmlega þrefaldast og
hefur því ríkissjóður á sex ára
tímabili orðið af rúmlega 9 millj-
örðum króna samtals.
Mikil aukning hefur orðið á
fjölda bílaleiga síðustu ár en um
150 bílaleigur eru með starfsleyfi í
landinu, líkt og kom fram í Við-
skiptaMogganum í vikunni. Að
sama skapi hefur fjöldi bílaleigu-
bíla þrefaldast á síðustu fimm ár-
um og eru nú rúmlega 18.000 bíla-
leigubílar skráðir. Bílaleigubílar fá
afslátt af vörugjöldum en almennt
er skylt að greiða í ríkissjóð vöru-
gjald af skráningarskyldum öku-
tækjum. Það er töluverður munur
á því sem almenningi ber að greiða
í vörugjöld og því sem bílaleigur
greiða.
Samkvæmt upplýsingum úr fjár-
málaráðuneytinu er fyrirhugað að
endurskoða vörugjöldin á bifreiðar
með það í huga að einfalda kerfið
og draga úr ívilnunum. Ráðuneytið
upplýsir að ívilnanirnar nemi rúm-
um 2 milljörðum króna.
Þá má nefna að virðisaukaskatt-
ur leggst ofan á upphæðina sem
verður til þegar vörugjaldi hefur
verið bætt við. Í útreikningum toll-
stjóraembættisins er um að ræða
2,3 milljarða króna. Ríkissjóður
verður því af töluverðum tekjum til
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is
SUZUKI SWIFT GL
12/2007, ekinn 117 þ.km, bensín,
5 gíra, aukadekk.Verð 1.290.000.
TILBOÐ 990.000. Raðnr.253983
FORD FOCUS TREND
04/2005, ekinn 159 þ.km, 5 gíra.
Verð 1.090.000. TILBOÐ 890.000.
Raðnr.253984
BMW 325I CABRIO
03/2001, ekinn 161 þ.km, beinskiptur.
Verð 2.290.000. Verulega gott og
glæsilegt eintak! Raðnr.253935
MMC PAJERO DID
09/2001, ekinn 239 þ.km, diesel, sjálfskiptur, leður,
lúga o.fl. Mjög fallegt eintak í góðu standi!
Verð 1.880.000. Raðnr.253847
OPEL ASTRA GTC OPC
01/2007, ekinn 76 þ.km, 6 gíra.
Verð 1.790.000. TILBOÐ 1.590.000
(lán 835 þ.kr.) Raðnr.251473
Þú finnur bílinn á bilo.is Auglýstir bílar eru á staðnum Skráðu bílinn á bilo.is
● Heildarútgjöld ríkissjóðs á fyrstu sex
mánuðum ársins námu 319,7 millj-
örðum króna og voru því 104 milljónir
króna innan fjárheimilda. Sé tillit tekið
til fjárheimildastöðu ársins 2014 nemur
afgangurinn 2,8 milljörðum króna.
Meirihluti fjárlagaliða reynist innan
fjárheimilda á fyrri hluta ársins. 123
fjárlagaliðir eru með útgjöld umfram
heimildir en hjá meirihluta þeirra er
hallinn innan við 10 milljónir króna. Gert
er ráð fyrir að flestir þessara liða verði
innan heimilda í árslok samkvæmt til-
kynningu frá fjármála- og efnahags-
ráðuneytinu.
Ríkið innan fjárheimilda
fyrstu 6 mánuði ársins
Greiningardeildir Arion banka, Ís-
landsbanka og Landsbankans spá
allar hækkun neysluverðs í ágúst en
greinir á um hversu mikil hún verði.
Allar eru þær sammála um að árs-
verðbólga muni fara yfir 2,5% verð-
bólgumarkmið Seðlabankans fyrir
árslok.
Landsbankinn spáir 0,1% hækkun
neysluverðs í ágúst og Arion banki
spáir 0,2% hækkun. Spá Íslands-
banka er hins vegar heldur róttæk-
ari og spáir bankinn 0,5% hækkun
neysluverðs. Hann spáir því að áhrif
húsnæðisliðarins til hækkunar verði
þrefalt meiri en hinir bankarnir eða
0,24%. Fyrir utan húsnæðisliðinn
eru bankarnir sammála um meg-
inhreyfingar helstu áhrifaliða vísi-
tölunnar. sigurdurt@mbl.is
Spá því að verðbólga verði
komin yfir markmið í haust
Verðbólga Bankana greinir á um hversu mikið verðlag mun hækka.