Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 15.08.2015, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 ingarmálinu hefði ekki borið árang- ur. Þegar þau mættu á lögreglustöð- ina hafi þau verið hneppt í varðhald og látin bíða í níu klukkustundir í fangaklefa þar til þau voru send burt. Það sem af er ári hafa tólf fé- lagsmenn Sea Shepard verið hand- teknir í Færeyjum. Þau Susan Lar- sen og Tom Sterath voru handtekin hinn 20. júlí sl. vegna sömu saka og Kunneke og félagar. Þá var fimm manna hópur handtekinn sl. mið- vikudag en þau eru Rudy de Kieviet frá Hollandi, Lawrie Thomson frá Bretlandi, Tobias Boehm frá Þýska- landi, Alice Bodin frá Ítalíu og Fran- ces Holtman frá Bandaríkjunum. Sea Shepard-samtökin hafa barist gegn grindhvalaveiðum Færeyinga frá 1980. Hluti af þeirri viðleitni er skipulögð mótmæli við sendiráð og ræðismannaskrifstofur Dana víðs- vegar um Bandaríkin sem áttu sér stað í gær. Grindhvalaveiðar fara þannig fram að hvölunum er smalað upp í fjöru þar sem veiðimenn keppast við að drepa þá með skutlum. Veiðarnar eiga sér nokkurra alda sögu og Fær- eyingar líta á þær sem hluta af arf- leifð sinni. Sea Shepard-liðar sendir úr landi  Dæmd fyrir að trufla grindhvalaveiðar Færeyinga Ljósmynd/Mayk Wendt/Facebook Grindhvalir Talið er að 490 hvalir hafi verið drepnir í Færeyjum í ár. FRÉTTASKÝRING Brynja B. Halldórsdóttir brynja@mbl.is Fjórum félagsmönnum samtakanna Sea Shepard var vísað frá Færeyjum snemma í gærmorgun, eftir að hafa fengið dóm fyrir að reyna að koma í veg fyrir veiðar á grindhvölum. Um þetta er fjallað í færeyskum miðlum og á heimasíðu Sea Shepard. Þau Rosie Kunneke frá Suður- Afríku, Cristophe Bondue frá Belg- íu, Marianna Baldo frá Ítalíu og Ke- vin Sciltz frá Lúxemborg reyndu, hinn 23. júlí sl. að trufla veiðar á grindhvölum við strendur Bøur og Þórshafnar. Þau voru handtekin á staðnum og fundin sek af innlendum dómstól hinn 6. ágúst sl. fyrir brot á færeysku grindhvalalögunum og óspektir á almannafæri. Var þeim gert að greiða sektir á bilinu 5-35.000 danskar krónur eða dvelja ella í fangelsi í 8-14 daga. Þá var þeim gert að yfirgefa landið. Þau voru svo send út landi í gærmorgun, með Norrænu til Hirtshals í Danmörku og voru þau í fylgd þriggja lögregluþjóna. Að sögn fólksins hafði færeyska lögreglan gert því að mæta upp á lögreglustöð í Þórshöfn á fimmtu- daginn var, til þess að fá frekari upp- lýsingar um hvenær þau yrðu send úr landi. Þá hefði þeim verið tjáð, að áfrýjun verjanda þeirra í endursend- Fjármálaráðherrar evruríkjanna samþykktu í gærkvöldi að veita Grikkjum 86 milljarða evra neyðar- lán. Um er að ræða þriðja lánapakk- ann sem evruríkin samþykkja að veita Grikkjum á sex árum. Gildir hann til þriggja ára. Fjármálaráðherrarnir funduðu í gær um þau ströngu skilyrði sem þeir setja grískum stjórnvöldum fyr- ir lánveitingunni. Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam- bandsins, sagði eftir fundinn að samningaviðræðurnar á undanförn- um sex mánuðum við ríkisstjórn Alexis Tsipras, forsætisráðherra Grikklands, hefðu verið erfiðar. Gríska þingið samþykkti í gær uppkast að samningi um þriðja björgunarpakkann eftir sólarhrings umræður. Tillagan var samþykkt rétt áður en fjármálaráðherrann Euclid Tsakalotos hélt til Brussel til að leggja samninginn fyrir starfs- bræður sína frá evruríkjunum. Af 300 þingmönnum gríska þingsins kusu 222 með samningnum, 64 voru á móti, 11 sátu hjá og þrír voru ekki á staðnum. Þriðji lánapakk- inn samþykktur John Kerry, utanríkisráðherra Bandaríkjanna varð í gær fyrsti bandaríski utanríkisráðherrann í 70 ár til að sækja Kúbu heim þegar hann var viðstaddur athöfn í höfuðborginni Havana. Sá síðasti á undan honum var Edward Stettinius, utan- ríkisráðherra Franklins D. Roosevelt, en sá heimsótti Kúbu í mars 1945. Athöfnin sem Kerry tók þátt í er sögð til marks um betri samskipti þjóðanna. Sjóliðarnir þrír sem drógu nið- ur bandaríska fánann þann 4. janúar 1961 drógu hann að húni í athöfninni, en þeir eru allir á áttræðisaldri og á eftirlaunum. Kúba opnaði að nýju sendiráð sitt í Washington í síðasta mánuði, sem lof- ar góðu um framhaldið. brynja@mbl.is Kerry tekur þátt í athöfn á Kúbu John Kerry Indverjar fögnuðu í gær 67. þjóðhátíðardegi landsins en Indland fékk sjálfstæði frá Bretum árið 1947. Hér má sjá fólk kaupa indverska fánann af smásala á götu í Allahabad. Mikið var um hátíðarhöld og fjölmargir máluðu sig í framan í indversku fánalitunum í tilefni dagsins. brynja@mbl.is AFP Þjóðhátíðardagur Indlands Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 H N O T S K Ó G U R g ra fí s k h ö n n u n atvinnuleikhópa Umsóknarfrestur til 30.september Styrkir til Leiklistarráð auglýsir eftir umsóknum um styrki til starfsemi atvinnuleikhópa á árinu 2016. Veittir eru styrkir til einstakra verkefna eða gerðir starfssamningar til lengri tíma. Umsóknarfrestur er til 30. september 2015 kl. 17:00. Umsóknum skal skilað rafrænt á www.rannis.is. Leiklistarráð gerir tillögu til mennta- og menningarmála- ráðuneytisins um úthlutun fjár sem veitt er í fjárlögum til stuðnings atvinnuleikhópum, sbr. leiklistarlög nr. 138/1998. Áherslusvið sem njóta forgangs við þessa úthlutun, sbr. 4.gr. reglugerðar nr. 1299/2013, eru ný sviðsverk ætluð fyrir óhefðbundin leikrými og nýja áhorfendahópa. Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Zoëga, sími 515 5800, netfang ragnhildur.zoega@rannis.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.