Morgunblaðið - 15.08.2015, Síða 38

Morgunblaðið - 15.08.2015, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015 Söfn • Setur • Sýningar Sunnudagur 16. ágúst: Tveir fyrir einn af aðgangseyri Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Hvað er svona merkilegt við það? Störf kvenna í 100 ár í Bogasal Bláklædda konan - Ný rannsókn á fornu kumli í Horni I Ein/Einn-Ljósmyndir Valdimars Thorlaciusar í Myndasal Fólkið í bænum á Veggnum Weaving DNA á Torginu Fjölbreyttir ratleikir fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð og kaffihús Sýningin Nesstofa-Hús og saga í Nesstofu við Seltjörn, opið þriðjudaga til sunnudaga frá 13-17 Húsasafn Þjóðminjasafnsins opið víða um land nánar á http://www.thjodminjasafn.is/minjar-og-rannsoknir/husasafn/ ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS LISTASAFN ÍSLANDS SAGA - ÞEGAR MYNDIR TALA 22.5. - 6.9. 2015 SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar. Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is Opið daglega kl. 10-17, lokað mánudaga. LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSPIL Sigurjón Ólafsson og Finn Juhl Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar 25. apríl - 30. ágúst 2015 Opið alla daga kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR Í BIRTU DAGANNA Málverk og teikningar Ásgríms Jónssonar, 1.2.-15.9. 2015 Opið þriðjudaga, fimmtudaga og sunnudaga kl. 14-17. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Enginn staður – íslenskt landslag Íslensk náttúra séð með augum átta samtímaljósmyndara. Keramik – úr safneign Opið 12-17, fimmtudaga 12-21, lokað þriðjudaga. www.hafnarborg.is, sími 585 5790 Aðgangur ókeypis Sunnudagur 16. ágúst: Tveir fyrir einn af aðgangseyri Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Geirfuglinn, Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort og vaxmynd Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Veitingahúsi Kapers Hádegismatur, kaffi og meðlæti Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið daglega frá kl. 10-17. SAFNAHÚSIÐ Hverfisgötu 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is Opið daglega frá 10-17 GEYMILEGIR HLUTIR Að safna í söguna Verið velkomin Opið kl. 12-17. Lokað mánud. Verslunin Kraum í anddyri Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Meg Baird er líkast til sæmi-lega óþekkt nafn í eyrumdægurtónlistarunnenda en hljómsveitin Espers hringir mögu- lega einhverjum bjöllum, hvar hún er meðlimur. Sú sveit hefur verið með fremstu ný-þjóðlagasveitum, á uppruna sinn í Philadelphiu en hef- ur reyndar verið á ís í sex ár. Síðasta plata hennar, III (2009), var sérdeilis góð, „hlýjar og fallegar raddanir sitja þægilega með hárnákvæmum skammti af framsækni og tilrauna- mennsku,“ eins og ég sagði víst í dómi á sínum tíma og andi sígildra sveita eins og Fairport Convention, Incredible String Band o.fl. sveif þar fagurlega yfir vötnum (og jafn- vel skógarrjóðri líka). Samhliða Meg Baird hefur keyrt sólóferil samhliða störfum í Espers en fyrsta platan kom út 2007. Mektarfyrir- tækið Drag City, sem trónir nokkuð hátt yfir neðanjarðarheimum, gaf út og segir okkur sitthvað um rætur og tengsl Baird og félaga. Tónlist Espers er stundum kölluð nýbylgju- Þokutónlist Sönn Tónlistin flæðir óheft úr hinni hæfileikaríku Meg Baird. þjóðlagatónlist („indie-folk“) enda var senan sem umlukti þau skipuð fólki sem var að hlusta jöfnum hönd- um á Sonic Youth og Pentangle. Sem sólólistamaður hefur Baird hins vegar sniðið nýbylgjupartinn nokkuð ríflega af, tónlistin er meira og minna hrein þjóðlagatónlist, á köflum eins og henni hafi verið skot- ið hingað frá árinu 1972 með tíma- vél. Baird hefur jafnt og þétt verið að finna blómum skreyttum fótum sínum forráð á plötum sínum. Sú nýjasta, Don’t Weigh Down the Light, var tekin upp eftir að Baird fluttist þvert yfir Bandaríkin, frá Philadelphiu til San Francisco, borg sem hæfir sköpun hennar einkar vel. Nýjasta platan er hiklaust öruggasta verk hennar til þessa, hún leikur á fleiri hljóðfæri, öll lögin eru frumsamin og tónmálið er alger- lega hennar. Ræturnar þó kirfilega í nefndri þjóðlagatónlist, þó að úr- vinnslan sé persónuleg, og heyra má í Judee Sill, Trees og Mellow Candle (þið verðið að tékka á einu plötu síð- astnefndu hljómsveitarinnar. Flettið henni upp!). Járn í eldi Eins og sjá má er þjóðlaga- tónlist af öllum gerðum og frá öllum tímum miðlæg í list Baird og hún rekur m.a. ættir til Isaac Garfield Greer, sagnfræðings og appalasíu- tónlistarmanns frá þarsíðustu öld en hann hafði nokkur áhrif á hina ungu Baird er hún lá yfir safnplötum Smithsonian-safnsins. Baird er með ansi mörg járn í eldinum og hefur verið dugleg við að ljá öðrum tón- listarmönnum krafta sína, meist- urum eins og Bonnie Prince Billy, Kurt Vile og Sharon Van Etten. Hún og systir hennar hafa þá gefið út efni sem The Baird Sisters en innblást- urinn þar kemur frá fyrri tíma Ap- palísutónlist. Baird er ein af þeim sem er eitthvað svo dásamlega hand- an við þann tíma sem hún lifir og hrærist í, líkt og mistök hafi verið gerð á skrifstofu almættisins er fæð- ing hennar var ákveðin. Eða eins og Sandy Denny, andans systir hennar söng: „Who knows where the time goes?“ » Sem sólólistamaður hefur Baird hins vegarsniðið nýbylgjupartinn nokkuð ríflega af, tón- listin er meira og minna hrein þjóðlagatónlist, á köflum eins og henni hafi verið skotið hingað frá árinu 1972 með tímavél.  Meg Baird gefur út þriðju sólóplötu sína  Tímalaus þjóðlagatónlist Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Titill sýningarinnar vísar í það að myndefni okkar beggja er spunnið upp úr alls kyns sögum. Lulu er með fígúratíva skúlptúra úr ker- amiki sem tengja má við álfa og huldufólk, meðan mínar myndir eru sögur af landi og þjóð – þetta tengist íslenskri náttúru, sögu og menningu,“ segir myndlistarkonan Gunnella, sem ásamt Lulu Yee opnar sýninguna Sögur í Galleríi Fold við Rauðarárstíg í dag kl. 15. Á sýningunni getur að líta ker- amikskúlptúra eftir Lulu Yee og um þrjátíu málverk eftir Gunnellu sem hún hefur unnið á sl. tveimur árum. Listakonurnar tvær hafa áð- ur sýnt saman, en það var á sam- sýningu sem nefndist Auga Óðins og sett var upp í Nordic Heritage Museum í Seattle í Bandaríkj- unum í september á síðasta ári. „Þema þeirrar sýningar var Óð- inn og goðafræðin,“ segir Gunnella og viðurkennir að hún hafi þurft að rifja upp gömlu goðafræðina til að undirbúa sig fyrir sýninguna. „Það myndefni sem ég fann úr goðafræðinni og hentaði mér til að mála var Óðinn með hrafnana sína tvo Hugin og Munin, Óðinn og hesturinn hans Sleipnir og loks Auðhumla,“ segir Gunnella, en samkvæmt sögunni streymdu fjór- ar ár frá Auðhumlu sem nærðu jötuninn Ými en í myndheimi Gunnellu geta þær allt eins verið prýðisgóðar sportveiðiár. „Þessar myndir eru á sýningunni núna,“ segir Gunnella og tekur fram að að öðru leyti hafi hún ekki verið að nýta sér goðafræðina til inn- blásturs. „Svo skemmtilega vill til að Auðhumlu-myndin mín mun rata víða með haustinu, því Mjólk- ursamsalan ætlar að birta mynd- ina á sérstakar styrktarmjólk- urfernur sem koma á markað í október, en fernunum er ætlað að styrkja tækjakaup á Landspít- alanum. Það er gott og gaman að geta lagt lið með þessum hætti,“ segir Gunnella og rifjar upp að bæði 2010 og 2011 hafi alls átta myndir hennar prýtt konfektkassa Nóa Síríusar fyrir jólin þau árin. Litríkar furðuverur Að sögn Gunnellu eru nokkur verka Luluar Yee á sýningunni einnig innblásin úr goðafræðinni. „En auk þess gefur að líta ýmsar furðuverur sem sprottnar eru úr hugarheimi hennar en tengjast á skemmtilegan hátt álfum og hulduverum,“ segir Gunnella og tekur fram að verk þeirra Yee spili ágætlega saman. „Hún er með litríka skúlptúra og mynd- irnar mínar eru einnig litríkar og að því leyti spilast verkin okkar mjög vel saman. Það er því spenn- andi að setja upp sýningu hér- lendis. Því miður stoppar Lulu stutt við og getur aðeins verið við- stödd þessa fyrstu opnunarhelgi og fer aftur út eftir helgina,“ segir Gunnella. Í tilkynningu frá Fold kemur fram að Gunnella hafi stundað nám við Myndlista- og hand- íðaskóla Íslands 1974-76 og 1983- 86. „Þá naut hún leiðsagnar Hrings Jóhannessonar og Ásgeirs Bjarnþórssonar. Verk eftir hana var valið til þátttöku í myndlist- arsamkeppni Winsor og Newton árið 2000 og í kjölfarið var haldin sýning á verkunum í London, Brussel, Stokkhólmi og í byggingu Sameinuðu þjóðanna í New York. Árið 1997 fékk hún menning- arverðlaun Garðabæjar. Gunnella hefur haldið margar einkasýningar Huldufólk og goðafræði  Listakonurnar Gunnella og Lulu Yee opna sýningu í Galleríi Fold í dag

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.