Morgunblaðið - 15.08.2015, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 2015
Áskrifendur Morgunblaðsins eru sjálfkrafa meðlimir í Moggaklúbbnum og njóta ýmissa fríðinda og tilboða.
Hægt er að fylgjast með hvað er í boði hverju sinni á moggaklubburinn.is og fá tilboðin send í tölvupósti með því að skrá sig á póstlistann.
Hafðu samband í síma 569 1100 eða askrift@mbl.is hafi Moggaklúbbskortið ekki borist þér.
LOUIS ARMSTRONG
HEIÐURSTÓNLEIKAR
Í HÖRPU 16. ÁGÚST
Í ár eru 50 ár liðin frá því að Louis Armstrong
heimsótti Ísland og hélt tónleika í Háskólabíói.
Þess verður minnst með tónleikum, Armstrong
til heiðurs, sunnudaginn 16. ágúst kl. 16.00
í Norðurljósasal Hörpu.
Á tónleikunum verða flutt mörg af þekktustu
verkunum frá ferli Louis Armstrong með All-Stars
hljómsveitinni og efni frá fyrstu árum Armstrong
þegar hann spilaði með Hot Five og Hot Seven.
Hægt er að kaupa miða með því að fara inná:
bit.ly/moggaklubbur-jazz
og í síma 528 5050 eða framvísa
Moggaklúbbskorti í miðasölu Hörpu.
Fullt verð 3.900 kr.
MOGGAKLÚBBSVERÐ 2.900 kr.
MOGGAKLÚBBUR
FÁÐU ÞÉR ÁSKRIFT Á
EÐA Í SÍMA
12.–16. ÁGÚST 2015
REYKJAVÍKJAZZ.IS
Sigtryggur Baldursson
Ragnheiður Gröndal
Ólöf K. Sigurðardóttir tók í gær
formlega við sem safnstjóri Lista-
safns Reykjavíkur af Hafþóri
Yngvasyni sem gegnt hefur stöðunni
sl. tíu ár. Ólöf hefur frá árinu 2008
gegnt stöðu forstöðumanns Hafn-
arborgar þar sem hún var listrænn
stjórnandi og bar ábyrgð á sýninga-
dagskrá og annarri faglegri starf-
semi safnsins. Hún var um árabil
deildarstjóri fræðsludeildar Lista-
safns Reykjavíkur. Ólöf útskrifaðist
frá School of the Art Institute of
Chicago árið 2003 með meistara-
gráðu í stjórnun listasafna og sýn-
ingargerð. Samhliða stjórnunar-
störfum á sviði myndlistar og menn-
ingar hefur Ólöf sinnt kennslu og
ýmsum trúnaðarstörfum innan
myndlistarheimsins, háskólasamfé-
lagsins og fyrir safnamenn. Ráðning
hennar er til fimm ára.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Gleðistund Glatt var á hjalla í gær þegar Ólöf K. Sigurðardóttir tók form-
lega við sem safnstjóri Listasafns Reykjavíkur af Hafþóri Yngvasyni.
Lyklaskipti í Lista-
safni Reykjavíkur
Hárkollubúnir herramenn og krínólínuklæddar konur
stigu menúett við undirleik barokkhljóðfæra þegar
Kirkjulistahátíð var sett í Hallgrímskirkju í gær í 14. Í
tilefni af henni koma hingað til lands um 100 erlendir
gestir, en alls taka um 400 flytjendur þátt í hátíðinni.
Á næstu átta dögum verður boðið upp á fjölbreytta
dagskrá í kirkjunni. Í dag kl. 19 og á morgun, sunnu-
dag, kl. 16 verður óratórían Salómon eftir G.F. Händel
frumflutt hérlendis undir stjórn Harðar Áskelssonar,
sem er listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Verkið flytja
Mótettukórinn og Alþjóðlega barokksveitin í Haag, en
einsöngvarar eru Robin Blaze kontratenór, Þóra Ein-
arsdóttir sópran, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir messó-
sópran, Benedikt Kristjánsson tenór og Oddur Arnþór
Jónsson bassi.
Á mánudaginn kemur verður stóra Klais-orgelið í
Hallgrímskirkju notað á nýjan og tilraunakenndan hátt
þegar listafólkið Sveinbjörn Thorarensen (Hermi-
gervill), Kristín Björk Kristjánsdóttir (Kira Kira),
Bergrún Snæbjörnsdóttir og Páll Ívan frá Eiðum
spinna tilraunagaldra á orgelið. Þau munu ekki setjast
við hljómborðið heldur tengja sig inn á tölvukerfi org-
elsins og nýta sér þannig nýjan tæknibúnað Klais-
orgelsins og bjóða upp á tónlistarupplifun í hljóðheimi
hljóðfærisins með sínum 5.273 pípum.
Tónleikarnir hefjast kl. 21.
Morgunblaðið/Golli
Tignarleg Hárkollubúnir herramenn og krínólínuklæddar konur stigu menúett við setningu Kirkjulistahátíðar.
Dansinn dunar á Kirkjulistahátíð
og tekið þátt í fjölda samsýninga.
Gunnella var heiðruð af New York
Times og valin á lista tíu bestu
myndskreyta árið 2005 í Banda-
ríkjunum fyrir bókina Hænur eru
hermikrákur eftir Bruce McMillan.
Lulu Yee býr í New York en er
fædd og uppalin í Kaliforníu þar
sem hún nam við San Fransisco
Art Institute. Hún bjó á Íslandi
um fjögurra ára skeið og heillaðist
af íbúum landsins, náttúrunni og
menningararfinum. Hún vinnur
myndlist sína með fjölbreytilegum
hætti; málar með olíu, vinnur með
textíl og keramík. Verk hennar
eru innblásin flakki hennar um
heiminn, gömlum leikföngum og
ljósmyndum.“
Sýningin stendur til 30. ágúst.
Morgunblaðið/Golli
Sögur Listakonurnar Gunnella og Lulu Yee opna sýningu í Galleríi Fold.
Litadýrð Verk Yee eru innblásin flakki hennar um heiminn, gömlum leik-
föngum og ljósmyndum. Hér má sjá skúlptúra hennar í íslenskri náttúru.