Morgunblaðið - 15.08.2015, Síða 44
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 227. DAGUR ÁRSINS 2015
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 790 ÁSKRIFT 4995 HELGARÁSKRIFT 3120 PDF Á MBL.IS 4420 I-PAD ÁSKRIFT 4420
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Bjargaði ungri stúlku frá …
2. Sakar ráðherra um heimsku og …
3. Mikið afrek hjá nýútskrifuðum …
4. Deyr klukkan 14 í dag
Danshöfundurinn Sigga Soffía
hannar og stýrir flugeldasýningu
Vodafone á Menningarnótt í Reykja-
vík 22. ágúst nk. í samvinnu við
Hjálparsveit skáta. Sýningin nefnist
Stjörnubrim og í október munu Ís-
lenski dansflokkurinn og Sigga Soffía
endurskapa flugeldasýninguna á
Stóra sviði Borgarleikhússins undir
heitinu Og himinninn kristallast.
Sigga Soffía hefur hannað og stýrt
síðustu tveimur flugeldasýningum
Menningarnætur og lokar nú þríleik
flugeldasýninga sem byggðar eru á
dansi. Að þessu sinni veltir hún feg-
urðinni og mismunandi skynjun
mannsins á henni fyrir sér. Skotið
verður upp frá fimm stöðum í mið-
bænum, m.a. ofan af Tollhúsinu.
Að venju verða tónleikarnir Tóna-
flóð við Arnarhól undir lok Menning-
arnætur og koma fram á þeim rapp-
arinn Gísli Pálmi, rokksveitin Dimma,
reggísveitin AmabAdamA og hljóm-
sveit allra landsmanna, Stuðmenn.
Tónleikarnir hefjast kl. 20 og standa
til kl. 23, fram að flugeldasýningunni.
Stjörnubrim og Tóna-
flóð á Menningarnótt
ASA Tríó, djasstríó skipað gítarleik-
aranum Andrési Þór Gunnlaugssyni,
Agnari Má Magnússyni á orgel og
Scott McLemore á trommur, heldur
tónleika í kvöld kl. 22 á
Jazzhátíð í Reykjavík í
Hörpu. Tríóið mun leika
efnisskrá af nýjum
diski sínum, Craning,
sem kom út í lok
síðasta árs í kjöl-
far Evrópu-
tónleikaferðar
tríósins.
ASA Tríó leikur lög
af Craning í kvöld
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og suðaustanátt, yfirleitt 8-13 m/s og víða skúrir en rign-
ing með köflum SA-til. Suðlæg eða breytileg átt, 3-8 og skúrir á morgun en bjart með
köflum NA-til. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast á NA-landi.
Á sunnudag Suðlæg átt, 3-8 m/s, en 8-13 með A-ströndinni. Rigning með köflum, þurrt
að kalla NA-lands. Hiti 9 til 16 stig, hlýjast á NA-landi.
Á mánudag Suðvestan 5-10 m/s, smá skúrir S- og V-lands en annars bjart með köflum.
Heil umferð fór fram í 1. deild karla í
knattspyrnu í gærkvöldi þar sem
toppliðin Víkingur Ólafsvík og Þrótt-
ur styrktu stöðu sína í baráttunni um
sæti í efstu deild með sterkum sigr-
um. Það vantar heldur ekki baráttuna
í neðri hlutanum, en bæði ferna og
þrenna voru skoruð í leikjunum í gær-
kvöldi þrátt fyrir að tveir hafi endað
með markalausu jafntefli. »4
Bæði ferna og þrenna
skoruð í gærkvöldi
„Það getur haft áhrif að
Valsmenn eru miklu óreynd-
ari í þessum leik,“ segir
Gunnlaugur Jónsson, þjálf-
ari ÍA, sem spáir í spilin í
íþróttablaði Morgun-
blaðsins fyrir bikarúr-
slitaleik Vals og KR á
Laugardalsvellinum í
dag. Gunnlaugur þekk-
ir vel til beggja liða
sem og það að spila til
bikarúrslita. »2-3
Stemningin ólík
fyrir úrslitunum
Íþróttamaður ársins, Jón
Arnór Stefánsson, segist
vera mjög afslappaður yf-
ir stöðu mála, en á dög-
unum varð ljóst að hann
yrði ekki áfram í her-
búðum spænska stór-
liðsins Unicaja
Málaga. Jón segist
sem stendur
eyða kröft-
unum í
undir-
búning
landsliðsins
fyrir EM en skoði að sjálf-
sögðu það sem inn á borð
til hans komi. »4
Jón Arnór með hugann
við landsliðið
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
„Fyrst gufaði þetta vatn upp en í vor
og sumar hefur vatn verið að renna
undan hrauninu og þaðan tekur það
með sér hita. Hitinn á vatninu er
mjög góður, 35-40 gráður og hægt
að vera í 40-50 sentímetra djúpu
vatni með þægilegum straumi og
baða sig. Þetta er einhver albesta
náttúrulaug sem ég hef prófað og
hef ég komið í þær nokkrar,“ segir
Magnús Tumi Guðmundsson, pró-
fessor í jarðeðlisfræði, sem skellti
sér í bað við Holuhraun, ásamt hópi
á vegum Jöklarannsóknafélags Ís-
lands í vikunni.
Við jaðarinn á nýja hrauninu
renna töluvert miklir lækir og jafn-
vel má segja að ár renni undan
hrauninu. Er vatnið baðheitt og
mjög heilnæmt, að sögn þeirra sem
hafa prófað. Þangað hefur verið
töluverður straumur fólks sem vill
reyna eitthvað nýtt í íslenskri bað-
menningu.
Óvíst um framhaldið
Óvíst er hversu lengi varmi
hraunsins viðheldur þessum sælu-
reit á miðju hálendinu.
„Þetta verður ekki svona heitt
lengi, það má búast við að strax
næsta sumar verði þetta orðið tölu-
vert kaldara og þá hentar þessi lind
ekki lengur til að baða sig,“ segir
Magnús Tumi.
Rúmlega 30 manns voru í ferðinni
sem var skipulögð sem skemmtiferð.
„Þetta var ferð sem Jöklarann-
sóknafélagið fór í til að skoða Holu-
hraun. Jöklarannsóknafélagið
lætur sig nú aðallega varða jökla
en við sinnum ýmsu sem finna má
í náttúrunni.
Í félaginu eru áhugamenn og
vísindamenn sem vinna saman
við rannsóknir á jöklum. Við
ákváðum að hafa skemmtiferð
í sumar og skoða þetta meðan
tækifæri gafst og fórum bæði þang-
að og í Öskju. Það voru tæplega 30
manns víðsvegar að af landinu með í
ferðinni, allir í sínu fríi,“ sagði
Magnús Tumi.
Jökulsá þarf nýjan farveg
Hann segir að stóra spurningin sé
hvað Jökulsá á Fjöllum gerir en kalt
hefur verið í veðri og áin því mjög
vatnslítil.
„Það er spurning hvað Jökulsá
gerir, hún er búin að vera mjög
vatnslítil í sumar og þarf væntanlega
að finna sér nýjan farveg meðfram
hrauninu. Þá rennur hún undir það,
kælir hraunið hratt en það hefur
verið sáralítið um jöklaleysingar í
sumar og Jökulsá því verið mjög
vatnslítil.“
Albesta náttúrulaug landsins
Sælureitur með
baðlaug á miðju
hálendinu
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Holuhraunsbað Rúmlega 30 manns frá Jöklarannsóknafélagi Íslands skelltu sér í notalegt bað við jaðar hins nýja
Holuhrauns. Vatnið er um 35-40 gráður og mjög notalegt en allar líkur eru á að vatnið kólni í vetur.
„Það er heilmikið að gerast við
Holuhraun þó að ég sé ekki í því
einmitt núna,“ segir Magnús Tumi.
Hann sinnir nú rannsóknum á
Bárðarbungu en ætlar að mæla
massa hraunsins sem rann í
gosinu í fyrra. „Það er beðið
færis til að kortleggja hraun-
ið mjög nákvæmlega
með flugvél sem
kemur frá Bret-
landi og það eru
hinar og þessar rannsóknir í gangi.
Nú eru ég og mínir helstu sam-
starfsaðilar að vinna að rann-
sóknum á Bárðarbungu og öskju-
siginu þar. Það var merkilegur og
sjaldséður atburður þannig að við
erum með merkileg gögn í hönd-
unum sem er verið að vinna úr. Svo
förum við í Holuhraun að gera mæl-
ingar í september til að mæla
massann á hrauninu með þyngd-
armælingum,“ segir hann.
Kortlagt og massamælt
FJÖRIÐ HELDUR ÁFRAM VIÐ HOLUHRAUN
Magnús Tumi
Guðmundsson