Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.08.2015, Síða 14
Heilsa og
hreyfing
Slæmt að borða á ferðinni
AFP
*Skyndibiti á ferðinni er ekki góður fyrir magaummálið, samkvæmtnýrri rannsókn. Hún leiðir í ljós að það að borða á meðan maðurer á ferð verði til þess að meira sé borðað síðar um daginn. „Þettagetur verið vegna þess að það að ganga truflar einbeitinguna oghæfileika okkar til að meta hversu mikið maturinn seður hungrið,“segir sálfræðiprófessorinn Jane Ogden.Rannsóknin náði til þriggja hópa sem hver var með 20 konum og
var hún gerð við Háskólann í Surrey á Englandi. Niðurstöðurnar
voru birtar í Journal of Health Psychology.
B
ogfimisetrið flutti úr gamla húsnæðinu
í Kópavoginum í Dugguvog 2 í
Reykjavík eftir páska en þörfin fyrir
stærra og betra húsnæði var knýj-
andi því bogfimi er ört vaxandi íþrótt. „Það
voru tíu skráðir iðkendur í bogfimi á landsvísu
þegar við byrjuðum en þeir eru orðnir 500 á
tæplega tveimur og hálfu ári og íþróttin held-
ur bara áfram að vaxa,“ segir Margrét Ein-
arsdóttir, rekstrarstjóri Bogfimisetursins.
En hvað veldur? Hetjur á borð við Katniss
Everdeen úr Hungurleikunum? „Myndirnar
gera sitt, Hungurleikarnir, Brave og Legolas í
Hringadróttinssögu, bogfimi er í mörgum
myndum. Rambó var meira að segja með
trissuboga,“ segir Margrét.
Hún segir bogfimi hafa verið stundaða í yfir
40 ár á Íslandi og þá mest hjá Íþróttafélagi
fatlaðra í Reykjavík, ÍFR, en ekki hafa verið í
boði fyrir almenning. Hún segir fólk frá öllum
félögum sameinast í Bogfimisetrinu.
„Við erum ekki félag, við erum fyrirtæki.
Okkar markmið er að auka bogfimi,“ segir
hún en ástríðan fyrir bogfimi skín í gegnum
allt tal hennar. Fyrirtækið var stofnað í kring-
um bogfimi útfrá áhuga eigendanna sem vildu
fá fleiri tækifæri til að æfa sig.
Opið er í Bogfimisetrinu alla daga og kem-
ur stöðugt nýtt fólk inn til að prófa. „Almenn-
ingur þarf að fá að komast í þetta til að
smakka, það er ekki hægt að byrja öðruvísi.
Hingað kemur oft fólk sem vill prófa eitthvað
nýtt, þar á meðal margir útlendingar. Vinnu-
staðahópar eru líka algengir. Við pössum bara
upp á það að áfengi sé ekki haft um hönd,“
segir Margrét og útskýrir að öryggið sé sett á
oddinn í bogfimi.
„Slysahætta í bogfimi er nánast engin. Það
eru álíka mörg slys í bogfimi og í borðtennis
og í keilu,“ segir hún.
Hún segir alla geta stundað bogfimi. „Það
er handalaus maður sem er mjög klár. Það er
líka til blindrabogfimi og keppt í henni á
heimsvísu.“
12 manna hópur fór á heimsmeistaramót í
Kaupmannahöfn í sumar og var Margrét
þeirra á meðal. „Það var þvílík upplifun, gam-
an að hitta allar stóru stjörnurnar í bogfimi-
heiminum.“
Vantar aðstöðu utandyra
Stærstu keppnirnar eru utandyra en í
Reykjavík er skortur á aðstöðu til að keppa
eða skjóta utandyra. „Af því að boginn er
flokkaður sem vopn þurfum við að láta lög-
reglu taka út svæðið og Reykjavíkurborg vill
að við setjum upp girðingar sem er óþarfi. Við
ættum að geta verið með svæði án þess að
vera með blikkandi ljós,“ segir Margrét sem
útskýrir að svæði sem hún hafi heimsótt er-
lendis séu í þéttbýli án vandræða.
Auk þess að vera rekstrarstjóri Bogfimi-
setursins er Margrét bogfimiþjálfari, formað-
ur bogfiminefndar ÍSÍ, formaður Íþrótta-
félagsins Freyju, meðstjórnandi í
bogfimifélaginu Boganum og skýtur af öllum
tegundum af bogum.
En hvað heillaði hana við bogfimi?
„Þetta ert þú á móti þínu, þú, boginn þinn
og skotmarkið þitt,“ segir Margrét en hún lof-
samar líka félagsskapinn í kringum íþróttina.
Jaðaríþrótt sem er líka fyrir jaðarfólk
Það verður enginn að keppa í bogfimi en ein-
beitingin þarf að vera til staðar.
„Þetta er gott fyrir þá sem eru með
ADHD. Einhverfir hafa líka komið hingað, við
höfum fengið krakka til okkar sem hafa ekki
funkerað í öðrum íþróttum en gengur vel
hérna. Þetta er jaðaríþrótt fyrir jaðarfólk líka.
Við erum mjög mismunandi í þessu sporti,“
segir hún.
Krakkar frá þriggja ára geta komið í bog-
fimi og elsti iðkandinn, sem nýverið minnkaði
þó þátttöku sína, er 95 ára.
Ennfremur var íslenskur keppandi á Evr-
ópuleikunum í Baku og gekk vel og er að
reyna að ná takmarkinu inn á Ólympíuleikana.
Íslenskt afreksfólk er því að spretta fram í
greininni, að sögn Margrétar. „Það er enda-
laust verið að slá Íslandsmet.“
Morgunblaðið/Eggert
* Slysahætta í bogfimi ernánast engin. Það eruálíka mörg slys í bogfimi og
í borðtennis og í keilu.
BOGFIMI ER VAXANDI ÍÞRÓTT,
SEGIR MARGRÉT EINARSDÓTTIR
HJÁ BOGFIMISETRINU. SKRÁÐUM
IÐKENDUM Í BOGFIMI HEFUR
FJÖLGAÐ ÚR TÍU Í MEIRA EN 500
Á TVEIMUR OG HÁLFU ÁRI.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Margrét Einarsdóttir hefur ástríðu fyrir bogfimi og vill efla veg íþróttarinnar.
Lena Katrín Guðjónsdóttir, 9 að verða 10 ára, með trissuboga í hönd.
Hún stefnir á heimsbikarmótið innandyra í Marrakesh í nóvember 2016.
STÆRRA OG BETRA BOGFIMISETUR Í DUGGUVOGI
Endalaust verið að slá Íslandsmet