Morgunblaðið - 03.09.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Stórmyndin Everest í leikstjórn
Baltasars Kormáks hlaut mikið
lófatak að frumsýningu lokinni á
kvikmyndahátíðinni í Feneyjum í
gær. Myndin var opnunarmynd
hátíðarinnar og var Baltasar hæst-
ánægður með viðbrögð gestanna
þegar Morgunblaðið náði tali af
honum í gærkvöldi.
„Það hreyfðist varla sála, það
fór enginn á klósettið. Þá veit
maður að fólk er að fylgjast með,“
sagði Baltasar, „sérstaklega þegar
fólk er að fá sér,“ sagði hann og
hló. Aðdragandi frumsýningar-
innar gekk þó ekki áfallalaust fyr-
ir sig. Röng filma var flutt til Fen-
eyja vegna sýningarinnar og þurfti
Baltasar að fá mann með flugi frá
London með aðra filmu. Aðfara-
nótt frumsýningardagsins var
Baltasar á fótum til klukkan þrjú
þar sem hann þurfti að taka á
móti filmunni og ganga úr skugga
um að rétt filma væri með í för í
þetta skiptið.
Hollywood-kvikmyndastjörn-
ur og forseti Ítalíu, Sergio Matta-
rella, voru á meðal þeirra sem
gengu rauða dregilinn endilangan
við mikla ánægju viðstaddra sem
höfðu gert sér ferð til þess að
berja stjörnurnar augum, en einn-
ig voru margir með tengingu við
kvikmyndabransann í Hollywood.
Þá var Lilja Pálmadóttir, eigin-
kona Baltasars, honum til halds
og trausts á stóru stundinni, en
Baltasar var með hjartað í bux-
unum í allan gærdag að eigin
sögn. Frumsýningardeginum var
varið í fjöldann allan af viðtölum
vegna myndarinnar.
Átta í einkunn á IMDB
Kvikmyndagagnrýni var tekin
að hrannast upp þegar Morgun-
blaðið fór í prentun í gærkvöldi. Á
síðunni Rotten Tomatoes stóð ein-
kunn myndarinnar í 75 prósent-
um, en einkunnin byggist á gagn-
rýni 12 kvikmyndagagnrýnenda.
Níu þeirra hrósuðu myndinni í há-
stert en þrír voru ekki eins hrifn-
ir. Á kvikmyndavefnum IMDB var
kvikmyndin með 8 í einkunn eftir
einkunnagjöf 106 notenda.
Scott Mendelson hjá Forbes
segir nálgun Baltasars að sögunni
frískandi. „Leikstjórinn Baltasar
Kormákur mjólkar ekki efnið fyrir
æsing þar sem hann er mjög með-
vitaður um að saga sem er eins
hrífandi og þessi þarf engan auka-
safa.“ Segir hann Everest skila
nákvæmlega því sem lofað var,
grípandi og tilfinningalega hríf-
andi persónudrama skýjum ofar.
Baltasar hafði séð hluta gagn-
rýninnar í gærkvöldi og var hann
nokkuð ánægður með viðbrögðin.
Sagði hann þá ánægðu vera mjög
ánægða, og að meira hefði verið
um jákvæða gagnrýni heldur en
neikvæða.
„Auðvitað er maður spenntur
að sjá hvernig viðbrögðin eru. En
þetta er langt ferðalag, það getur
verið misjafnt hvernig þetta
leggst í þjóðir, og oft er gagn-
rýnin mjög hörð á svona hátíð-
um,“ sagði Baltasar að endingu,
áður en hann fór í næsta frum-
sýningarteiti.
Everest hlaut mikið lófa-
tak eftir frumsýninguna
AFP
Frumsýning Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir á rauða dreglinum með Jason Clarke, leikara, og konu hans.
Baltasar með hjartað í buxunum á frumsýningardegi
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Aðilar vinnumarkaðarins og stjórn-
völd eiga erfitt verk fyrir höndum í
vetur að sögn Ólafíu Bjarkar Rafns-
dóttur, formanns VR. Óvissa ríkir um
kjarasamninga en í febrúar mun
nefnd fjalla um hvort forsendur
samninga sem gerðir voru á almenna
markaðinum í byrjun sumars hafi
brostið, m.a. sú forsenda að launa-
hækkanir í samningum aðildarfélaga
ASÍ og SA hafi verið stefnumarkandi
fyrir aðra kjarasamningagerð.
Miðstjórn ASÍ fundaði í gær og var
greining á launahækkunum gerðar-
dóms til umfjöll-
unar á fundinum.
Að sögn Ólafíu
var velt upp þeim
leiðum sem færar
væru í þeirri stöðu
sem nú er komin
upp. Hún bendir á
að í endurskoðun-
arákvæðinu, sem
tekið verður til at-
hugunar í febrúar,
sé sérstaklega fjallað um að aðrir
hópar megi ekki fara fram úr samn-
ingnum sem gerður var á almenna
markaðinum. Með úrskurði gerðar-
dóms hafi hjúkrunarfræðingar og fé-
lagar í BHM hins vegar fengið tölu-
vert meiri launahækkun en
starfsmenn á almenna markaðinum.
„Þær forsendur eru brostnar, en
samningnum verður ekki sagt upp
fyrr en í febrúar,“ segir Ólafía.
Lausnin ógni ekki stöðugleika
Auk endurskoðunarákvæðisins um
að samningurinn á almenna markað-
inum eigi að vera stefnumarkandi fyr-
ir aðra samningagerð hvílir samning-
urinn á þeim forsendum að
kaupmáttur launa aukist á tímabilinu
og að fullar efndir verði á yfirlýsing-
um ríkisstjórnarinnar við gerð samn-
ingsins. „Í mínum huga má lausnin
fyrst og síðast ekki ógna stöðugleik-
anum,“ segir Ólafía. Leitað verður
lausnar þar sem sanngirni er höfð að
leiðarljósi og kaupmáttaraukning
höfð í fyrirrúmi.
Ólafía bendir á að hækkanir í samn-
ingi félaga BHM feli í sér jafnmiklar
launahækkanir á tveimur árum og
hækkanir á almenna markaðinum
gera á fjórum árum. Hún segir það
mjög sérstakt að gerðardómur hafi
metið launahækkanir á almenna
markaðinum um 24%, þegar meðal-
tals kostnaðarmat á samningum 70
þúsund félagsmanna feli í sér rúm-
lega 18% hækkun. „Ég átta mig ekki
á því hvernig þeir reiknuðu það út.“
Erfiður vetur í vændum
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, segir forsendur samninga á almenna mark-
aðinum brostnar Miðstjórn ASÍ fundaði Kaupmáttaraukning höfð í fyrirrúmi
Ólafía Björk
Rafnsdóttir
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Meirihluti borgarstjórnar Reykja-
víkurborgar felldi á borgarstjórnar-
fundi á þriðjudag tillögu Sjálfstæðis-
flokksins um aukið gagnsæi vegna
ferðakostnaðar starfsmanna Reykja-
víkurborgar, með níu atkvæðum
gegn sex.
Tillagan gekk út á að ákvarðanir
um ferðir starfsmanna og ráðgjafa á
vegum borgarráðs eða borgar-
stjórnar ætti að kynna í borgarráði
áður en haldið yrði í ferðina, og aðrar
ferðir starfsmanna og ráðgjafa
skyldu kynntar á fundum í þeim
nefndum eða ráðum sem viðkomandi
svið heyrðu undir.
Gert upp ársfjórðungslega
Dagur B. Eggertsson, borgar-
stjóri, segir að aðrar reglur eigi að
gilda um starfsfólk borgarinnar en
kjörna fulltrúa. Hann segir að ferða-
lög starfsmanna og ráðgjafa á vegum
borgarinnar verði gerð upp ársfjórð-
ungslega, sem samþykkt hafi verið
fyrr í sumar.
„Þetta er endurflutningur á máli
sem var búið að ákveða,“ segir Dagur
en hann segir starfshóp hafa uppfært
reglur um ferðaheimildir og ferða-
kostnað á vegum Reykjavíkur-
borgar.
„Það var sérstakur starfshópur
sem uppfærði reglur yfir þessa hluti
og lagði til að yfirlit yrði lagt fyrir
ársfjórðungslega. Tillagan gengur
lengra, en hitt var í raun nægilegt,“
segir Dagur sem tekur þó fram að
honum finnist sjálfsagt að kjörnir
fulltrúar leggi fram upplýsingar um
ferðalög áður en í þau er haldið.
Eftirlit yrði meira og betra
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að
tillagan hefði aukið gagnsæi til muna,
bæði fyrir kjörna fulltrúa og eins alla
þá sem hafa aðgang að fundar-
gerðum borgarinnar. Með auknu
gagnsæi yrði hægt að sinna eftirlits-
hlutverkinu betur, enda upplýsingar
um utanlandsferðir birtar fyrirfram í
fundargerðum nefnda og ráða en
ekki eftir að farið er í ferðirnar.
Birta kostnað
eftir ferðalög
Dagur B.
Eggertsson
Tillaga um aukið gagnsæi var felld
Kjartan
Magnússon
Moggabíllinn svonefndi, fjórði bíll-
inn í áskriftarleik Morgunblaðsins,
hefur verið á ferðinni víðsvegar um
höfuðborgarsvæðið síðustu vikur,
nú síðast í gær við Miklubraut á
móts við Kringluna. Ekki er búið að
afhjúpa bílinn að öðru leyti en því
að um glæsilegan og hreinrækt-
aðan sportjeppa er að ræða. Dregið
verður í leiknum 22. október nk.
þegar einn heppinn áskrifandi mun
fá jeppann að gjöf.
Morgunblaðið/Júlíus
Moggabíllinn á ferðinni
„Miðstjórn Alþýðusambandsins
hvetur ríkisstjórnina til að nálg-
ast vandamál flóttafólks í Evr-
ópu af festu og ábyrgð. Ísland
getur svo sannarlega tekið við
fleiri flóttamönnum en þeim 50
sem þegar hefur verið ákveðið
að veita hér hæli,“ segir m.a. í
ályktun sem miðstjórn ASÍ
sendi frá sér í gær um málefni
flóttamanna. Telur miðstjórnin
mikilvægt að stjórnvöld standi
vel að komu flóttamanna með
því að tryggja að þeir sem hing-
að koma fái gott húsnæði og
nauðsynlegan samfélagslegan
stuðning.
Standi vel að
komu þeirra
ASÍ UM FLÓTTAMENN