Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 Faxafeni 14, 108 Reykjavík | Sími 551 6646 | Laura Ashley á Íslandi | Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15 Haust 2015 Valgerður Þ. Jónsdóttir vjon@mbl.is Læknar, hjúkrunarfólk,sjúklingar og aðstand-endur þeirra fara meðhelstu hlutverk í um tutt- ugu fræðslu- og heimildarmyndum sem Páll Kristinn Pálsson, rithöf- undur og kvikmyndagerðarmaður, hefur gert fyrir ýmis félaga- og styrktarsamtök. Sjúkdómar eru ævinlega í aðalhlutverki. Í nýjustu myndinni, Líf með flogaveiki, er sjón- um beint að flogaveiki, sem sam- kvæmt Laufi – Félagi flogaveikra hrjáir fjóra til tíu af hverjum eitt þús- und landsmanna, eða 1.080 til 2.700 manns. Myndin er langt á veg komin og verður sýnd á RÚV áður en langt um líður, eins og allar hinar í áranna rás. Páll Kristinn er fyrir löngu kom- inn með formúluna að myndum af þessu tagi. Vanur maður. Stundum er hann með margar í takinu í einu. „Hugmyndafræðin að baki myndunum gengur í stórum dráttum út á að upplýsa og auka skilning al- mennings á eðli sjúkdómsins, út- skýra vandann sem sjúklingarnir eiga við að glíma og hvernig þeir tak- ast á við veikindin. Greiningu, með- ferð og meðferðarúrræðum er gerð skil auk þess sem fjallað er um rann- sóknir og það sem er handan við hornið á þeim vettvangi. Í öllum myndunum legg ég áherslu á mann- lega þáttinn, sem speglast best í reynslusögum sjúklinga – yfirleitt tveggja eða þriggja á ólíkum aldri og með sjúkdóminn á mismunandi stig- um, sem og aðstandenda,“ segir Páll Kristinn. Fordómar gagnvart flogaveiki Fræðslumyndin Líf með floga- veiki, sem Lauf – Félag flogaveikra stendur að, er af sama meiði. Finn- bogi Jakobsson taugasérfræðingur og Pétur Lúðvígsson, taugasérfræð- ingur barna, fjalla um orsakir og birtingarmyndir sjúkdómsins og meðferðarúrræði. Brynhildur Arthúrsdóttir, formaður Laufs, segir frá glímu dóttur sinnar, Kristínar Hrefnu Halldórsdóttur, við floga- veikina frá barnæsku og Hilmir Snær Guðnason leikari og Elín Emilía Jónmundsdóttir framhalds- skólanemi ræða um hvernig líf þeirra er með flogaveiki. „Enn eimir eftir af fordómum gagnvart flogaveiki, sem sjúklingar skynja margir hverjir, sem og van- þekkingu fólks á sjúkdómnum. Sum- ir halda jafnvel að hann sé smitandi. Um 80% flogaveikra lifa nánast eðli- legu lífi með lyfjum og eru annað- hvort hættir að fá flogaköst eða fá þau afar sjaldan. Þótt slík köst séu erfið og komi fyrirvaralaust eru þau sjaldnast eins alvarleg og þau líta út fyrir að vera. Sú bábilja var lengi við lýði að nærstaddir ættu að flýta sér að stinga skeið í munn þess floga- veika. Slíkt ætti alls ekki að gera, heldur einfaldlega skorða eða koma hinum flogaveika eins þægilega fyrir og unnt er á hliðinni ef hann skyldi kasta upp. Yfirleitt líður kastið hjá á innan við þremur mínútum og því er óþarfi að hringja á sjúkrabíl, nema flogið standi lengur, en flogaveikum er yfirleitt mikil raun að slíku rétt eins og að fá kast á almannafæri.“ Oftast segir hann fólk verða svo- lítið vankað eftir flogakast, geti jafn- vel verið tvo til þrjá daga að jafna sig og fái yfirleitt harðsperrur í kjölfarið. „Flogaveiki á sér ýmsar skýringar. Annars vegar getur hún verið sjálf- vakin, en þá eru orsakir óþekktar eða erfðafræðilegar. Hins vegar er talað um að hún sé sjúkdómavakin og er þá átt við að sjúkdómurinn sé af völdum til dæmis áverka eða heilablæð- ingar,“ útskýrir Páll Kristinn. Í tengslum við heimildarmynda- gerð í tvo áratugi hefur hann óneitanlega orðið margs vísari um alls konar sjúkdóma. Flest einkenni flogaveiki þekkti hann þó áður hjá fjölfötluðum og flogaveikum syni sín- um. „Fyrst þegar ég fór að gera þessar myndir fékk ég annað slagið snert af svokölluðu læknanemasynd- rómi, sem lýsti sér í því að ég ímynd- aði mér að ég væri með einkenni sem bentu til þess að ég væri haldinn þeim sjúkdómi sem ég var að fjalla um hverju sinni. Þetta hefur rjátlast af mér en ég hef líka komist að raun um að ólíkir sjúkdómar hafa svipuð einkenni, sem lýsa sér oft í þreytu, verkjum og höfuðverk.“ Vatt upp á sig Tildrög þess að Páll Kristinn hóf að vinna að gerð fræðslu- og heimild- armynda má rekja til þess að þegar hann kom heim frá námi í kvik- myndafræði við Kaupmannahafnar- háskóla árið 1993 starfaði hann sem blaðamaður og textasmiður og var beðinn um að ritstýra MeginStoð, tímariti MS-félagsins. „Nokkrum árum áður hafði ég meðal annars gert heimildarmyndina Almannatryggingar í hálfa öld fyrir Tryggingastofnun ríkisins. Sama ár og ég byrjaði að ritstýra Megin- Stoðum ákvað MS-félagið að gera heimildamynd um MS-sjúkdóminn og þá var handhægast að fá mig til að skrifa handritið, sem ég vann síðan með leikstjóranum Jóni Gústafssyni, sem var jafnframt upptökustjóri. Níu árum eftir sýningu myndarinnar fannst stjórn MS-félagsins tímabært að gera aðra heimildamynd um sjúk- dóminn, enda hafði læknavísindunum fleygt fram og margt hafði breyst til hins betra varðandi meðferðar- úrræði, lyf og þvíumlíkt. Ég var feng- inn til verksins og sama var uppi á teningnum árið 2013 þegar aftur var afráðið að ráðast í gerð heimildar- myndar, þeirrar þriðju, MS: Tauga- sjúkdómur unga fólksins.“ Í millitíðinni hafði Páll Kristinn gert tólf myndir, þar af fimm árið 2013, sem tengdust sjúkdómum með einum eða öðrum hætti, m.a. um langvinna lungnateppu, kæfisvefn, sykursýki, nýrnasjúkdóma, krabba- mein í ristli og endaþarmi, meðfædda hjartagalla og gigt. Á sama tíma skrifaði hann líka skáldsögur, smá- Mannlegi þátturinn speglast í reynslusögum sjúklinga Páll Kristinn Pálsson, rithöfundur, blaðamaður og kvikmyndagerðarmaður, hefur síðastliðna tvo áratugi meðal annars haft lifibrauð sitt af gerð fræðslu- og heimildarmynda um sjúkdóma. Fyrstu árin fékk hann af og til snert af svokölluðu læknanemasyndrómi og ímyndaði sér einkenni sjúkdómanna hjá sjálfum sér. Sá tími er liðinn. Nýjasta myndin úr smiðju hans er um flogaveiki. Margs vísari Í tengslum við fræðslu- og heimildamynda- gerði í tvo áratugi hefur Páll Kristinn orðið margs vísari um sjúkdóma. Líf með flogaveiki Hilmir Snær Guðnason, Elín Emilía Jónmundsdóttir og mæðgurnar Brynhildur Arthúrsdóttir og Kristín Hrefna Halldórsdóttir tala um reynslu sína af sjúkdómnum í myndinni Líf með flogaveiki. Ragna Sigurðar- dóttir, rithöfundur og myndlistar- maður, leiðir nám- skeiðið Spjöllum saman um mynd- list, sem hefst 9. september hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur Í námskeiðslýs- ingu segir m.a..: „Við höfum öll lent í því að fara á myndlistarsýningar en vita ekki alveg hvernig við eigum að koma upplifun okkar í orð. Námskeiðið Spjöllum saman samanstendur af heimsókn- um á myndlistarsýningar með spjalli þátttakenda og fræðsluerindum um myndlist og listasögu.“ Leitast verð- ur við að kafa dýpra í myndlistarsýn- ingar og bæta við þekkingu í lista- sögu og samtímamyndlist. Nánar á vefnum myndlistaskolinn.is. Námskeið hjá Myndlista- skóla Reykjavíkur Spjöllum sam- an um myndlist Ragna Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.