Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Eykon Energy og samstarfsaðilar eru að hefja frekari rannsóknir á Drekasvæðinu. Rannsóknarskipið Oceanic Chall- enger sigldi frá Reyðarfirði áleiðis á svæðið í gær. Skömmu áður, eða um sexleytið, kom annað skip til Reyð- arfjarðarhafnar sem mun þjónusta rannsóknarskipið. Oceanic Challenger er búið búnaði sem sendir hljóðbylgjur niður á hafs- botninn og veitir endurvarpið vís- bendingar um jarðlögin. Verða tveir staðir á íslenska hluta Jan Mayen- svæðisins, eða Drekasvæðinu, rann- sakaðir sérstaklega. Heiðar Guðjónsson, fjárfestir og stjórnarformaður Eykon Energy, segir leiðangurinn taka um mánuð. Með rannsókninni verði fyllt upp í eyður frá fyrri leiðöngrum. Nýju gögnin verði sett í tölvu og þau sam- keyrð með eldri gögnum til að fá gleggri mynd af rannsóknarsvæð- inu. Niðurstöðurnar munu liggja fyr- ir á næsta ári. Kemur ekki aftur til hafnar Kostnaður við þennan hluta olíu- leitarinnar er um milljarður króna. Heiðar segir Oceanic Challenger fljótandi rannsóknarstofu sem sé í eigu CGG, kanadísks/fransks fyrir- tækis sem sé framarlega á þessu sviði í heiminum. Þetta skip kemur ekki aftur til Reyðarfjarðar, heldur fer síðan áfram til annarra verkefna. Að sögn Heiðars eru þrívíðar mælingar næsta skrefið í olíuleitinni. Sá hluti kostar nokkra milljarða. Síðan taki við olíuboranir. Heiðar segir hafa verið ákveðið að fjölga borunum úr einni í þrjár og eru þær fyrirhugaðar á árunum 2020, 2022 og 2023. Hver hola kostar nú minnst um 100 milljón bandaríkjadali. „Hin mikla lækkun olíuverðs að undanförnu er það besta sem gat komið fyrir okkur, enda þýddi það að leitarkostnaður lækkaði gríðarlega. Eftir að olíuverðið hrundi er leitar- kostnaður í sumum tilfellum búinn að lækka um 80%. Það er meira en olíuverðslækkunin sjálf,“ segir hann. Halda til olíuleitar á Drekasvæðinu  Eykon Energy og samstarfsaðilar gera út rannsóknarskip og þjónustuskip í eins mánaðar leiðangri  Næst taka við þrívíðar mælingar  Ákveðið hefur verið að gera þrjár tilraunaboranir á næsta áratug Ljósmynd/Helga Guðrún Jónasdóttir Við bryggju Rannsóknarskipið Oceanic Challenger í Reyðarfjarðarhöfn. Benedikt Bóas benedikt@mbl.is „Íslendingar eru að koma hingað með allskonar ferðamáta; lestum, bílum, flugvélum, nefndu það bara. Evrópskir Íslendingar eru hingað komnir og svo bætast um tvö þúsund við þegar ís- lensku flugvélarnar lenda,“ segir Benjamín Hallbjörnsson, varaformaður Tólfunnar, en mikil stemning var á Dam-torginu í Amsterdam í gær þar sem þeir Íslendingar, sem eru komnir til Hollands, drukku í sig stemninguna. Íslenska landsliðið í knattspyrnu mun fá áður óþekktan stuðning þegar það gengur út á Amsterdam Arena völlinn í dag gegn Hollendingum í undankeppni EM í fótbolta. Erfitt er að segja með vissu hversu margir Íslendingar verða þarna, en ekki færri en fjögur þúsund. Dagskráin á þessari stærstu Íslend- ingaveislu á erlendri grundu er ekki sérlega flókin. Sungið og trallað á Dam-torginu bæði fyr- ir leik og eftir. Þar var partýið í gær. „Hér er varla spjallfriður enda fáir að spjalla. Hér eru allir að syngja og gleðjast,“ segir Benjamín en hann gengur undir nafninu Benni bongó enda auðþekktur á bongótrommunni sem hann ber. „Ég er reyndar kom- inn í bongófrí núna. Löggan kom og bað mig að spara kraftana fram að leikdegi,“ segir hann og hlær. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Stemning Benjamín með bongótrommuna að kyrja söng um Gylfa Þór Sigurðsson. Og viðbrögðin létu ekki á sér standa. Treyja Kristinn Hallur Jónsson, gjaldkeri Tólfunnar, með hendurnar á treyjunum sem seldust eins og heitar lummur. Tvö efstu liðin í riðlinum komast beint á Evrópumótið í Frakklandi. All- ar líkur eru á að sex stig í viðbót dugi Íslandi til að komast til Frakk- lands og dugar þannig að vinna heimaleikina gegn Kasakstan og Lettlandi og kæmist það þá í fyrsta skipti í lokakeppni Evrópumótsins. Þá yrði liðið með 21 stig. Tékkar geta mest náð 25 stig- um og Hollendingar 22, en þessi lið eiga eftir að mæt- ast innbyrðis. „Ég er hrikalega spenntur fyrir þessum leik og þessum degi. Ég ætla að hlusta á Styrmi Gíslason, guðföður Tólfunnar, og spá jafntefli 1:1,“ segir Benjamín. EVRÓPUMÓTIÐ Í FRAKKLANDI Stuð Það var mikið fjör þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði á Europub. Ekta Tólfugleði, söngur og söngvatn. Skjalfest Alla gleðina verður að senda yfir veraldarvefinn og var þessi frú með græjurnar á hreinu. Aðrir syngja með. Fjögur frækin Þessi létu sig ekki vanta til Amsterdam og tóku undir í öllum lögunum sem Tólfan hefur samið um landsliðið. Blá hátíð í Amsterdam  Dam-torgið málað í íslensku fánalitunum  Allt fór vel fram og vakti framganga Íslendinganna töluverða athygli heimamanna sínum vinnustað. Hér eru allir glaðir og allir stefna að sama markmiði, að hvetja liðið til dáða. Þegar ég lít yfir torgið myndi ég giska að hér væru 700 manns í bláu og einhverjir í borgarlegum klæðnaði. Það er líka fullt af Hollendingum hér sem vilja vera með í gleðinni. Ég myndi segja að hér væri landsliðs- stemning eins og hún gerist best. Stuðið í kringum landsliðið hefur á undan- förnum misserum farið fram úr björt- ustu vonum og þjóðhátíð er bara klink þegar Tólfan er í stuði og í fullu fjöri,“ sagði Benni að endingu. Allt fór vel fram í gær og vakti fram- ganga Íslendinganna töluverða athygli heimamanna sem margir kíktu í heim- sókn en fleiri fylgdust með úr fjarska. Allir með sama markmið Um 2.800 manns, hið minnsta, eru að koma í dag með Gaman-ferðum í það sem Benjamín kallar Tólfupartí ársins. „Tólfan er orðin svo stór að hún rúmast ekki í einni flugvél,“ segir hann. „Það er verið að flétta allskonar ferðum saman hingað. Vinir eru að koma saman, fjöl- skyldur og vinnustaðir. Ég hitti mann hér áðan sem var í árshátíðarferð með Arjen Robben Gylfi Þór Sigurðsson Sex stig ættu að duga til Frakklands

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.