Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Ný
sending
af undirfatnaði frá
• 1.500
• 1.900
• 2.900
• 3.900
• 4.900
• 5.900
LAGERHREINSUN
Skoðið flottu fötin á friendtex.is
Allt á að
seljast
Bonito ehf. • Friendtex • Faxafen 10 • 108 Reykjavík • sími 568 2870 • www.friendtex.is
Opið fimmtudag - föstudag 12:00-18:00, laugardag 11:00-16:00, sunnudag 13:00-16:00
Laugavegi 47, sími 552 9122 Laugavegi 47, sími 551 7575
30% afsláttur
Fimmtudag, föstudag og langan laugardag
Buxna,- úlpu- og
leðurjakkasprengja
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Vetrar-
yfirhafnir
í úrvali
Skoðið laxdal.is/yfirhafnir
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Hagfræðideild Landsbankans spáir
því að útflutningstekjur Íslands af
ferðaþjónustu verði 349 milljarðar
króna á þessu ári. Eru þá lagðar
saman útflutn-
ingstekjur af
ferðalögum og
farþegaflutning-
um með flugi.
Hér fyrir ofan
má sjá línurit þar
sem útflutnings-
tekjur af ferða-
lögum frá árs-
byrjun 2013 eru
sundurliðaðar
eftir innflutningi
og útflutningi. Súlan lengst til hægri
hverju sinni sýnir svo þjónustujöfn-
uðinn. Svo mikill er gangurinn í
ferðalögum að jöfnuðurinn er já-
kvæður um 26.465 milljónir á fyrstu
sex mánuðum ársins, borið saman
við 27.320 milljónir allt árið 2013.
Samtals 45,5 milljarðar í fyrra
Jöfnuðurinn var til samanburðar
45.456 milljónir allt árið í fyrra.
Hagstofan birti í fyrradag tölur
fyrir fyrri hluta þessa árs. Þær eru
hluti gagna um utanríkisverslun.
Gústaf Steingrímsson, sérfræð-
ingur hjá hagfræðideild Landsbank-
ans, útskýrir spá bankans með því að
vísa til veltunnar á fyrri hluta ársins.
„Á fyrri árshelmingi námu út-
flutningstekjur ferðaþjónustunnar
um 147,6 milljörðum króna, sem er
um 15% meira en á sama tímabili í
fyrra. Við höfum kosið að horfa á út-
flutningstekjur ferðaþjónustunnar
sem samtölu liðanna ferðalög og far-
þegaflutningar með flugi eins og þeir
eru skilgreindir hjá Hagstofunni.“
Vöxtur í komum ferðamanna
„Síðari liðurinn snýr að öllum
tekjum íslenskra flugfélaga af er-
lendum ferðamönnum hvort sem
þeir koma hingað til lands eða ekki.
Fyrri liðurinn snýr eingöngu að
ferðamönnum sem koma til Íslands
og hefur verið mun meiri vöxtur á
því sviði en í farþegaflutningum með
flugi á síðustu árum enda hefur verið
mikill vöxtur í komum ferðamanna
hingað til lands.
Ef við gefum okkur að vöxturinn í
tekjum ferðaþjónustunnar á fyrri
árshelmingi hafi forspárgildi fyrir
vöxtinn yfir árið í heild má gera ráð
fyrir að útflutningstekjur ferðaþjón-
ustunnar verði um 349 milljarðar
króna á þessu ári. Til samanburðar
námu tekjurnar um 303 milljörðum í
fyrra og myndi ferðaþjónustan því
skila um 45 milljörðum meira í
gjaldeyristekjur á þessu ári en í
fyrra,“ segir Gústaf Steingrímsson.
Þjónustuviðskipti við útlönd
Ferðalög 2013, 2014 og fyrri hluta árs 2015
Milljónir
2013 2014 2015*
160.000
140.000
120.000
100.000
80.000
60.000
40.000
20.000
0
*Bráðabirgðatölur sem vísa til fyrstu sex mánaða ársins
Útflutningur
Innflutningur
Þjónustujöfnuður
Enn eitt metið
í ferðaútrásinni
Útflutningstekjur fara stigvaxandi
Gústaf
Steingrímsson
Gísli Thoroddsen mat-
reiðslumeistari lést á
líknardeild Landspít-
alans í Kópavogi, 2.
september sl., 65 ára
að aldri.
Gísli fæddist í
Reykjavík 6. desember
1949, sonur hjónanna
Odds Birgis Thorodd-
sen skipstjóra og
Hrefnu Gísladóttur
Thoroddsen, húsfreyju
og félagsmála-
frömuðar.
Gísli ólst upp á Ás-
vallagötunni í Vestur-
bæ Reykjavíkur. Hann lauk námi í
matreiðslu árið 1971 á veitingahús-
inu Brauðbæ og sótti sér síðan
starfsreynslu til Danmerkur í tvö
ár, vann m.a á Balkonen í Tívolí,
Sheraton, Grand Hótel og Hótel
Codan. Er heim kom varð hann
fljótlega yfirmatreiðslumaður á
Brauðbæ sem seinna varð Hótel Óð-
insvé. Árið 1991 hóf hann veitinga-
rekstur í Perlunni ásamt öðrum og
sinnti þeim starfa fram á vor á
þessu ári, eða á meðan heilsan
leyfði.
Á áttunda og níunda áratugnum
fór hann utan í matreiðslukeppnir
og vann til fjölda verðlauna og átti
síðar eftir að þjálfa nemalandslið Ís-
lands. Hann átti eftir að útskrifa og
leiðbeina hundruðum matreiðslu-
nema og var sveins-
prófsdómari á árunum
1984 – 1996.
Gísli sinnti mat-
reiðslustörfum í opin-
berum veislum fyrir frú
Vigdísi Finnbogadóttur
forseta í tólf ár og sem
slíkur eldaði hann ofan
í fjölda þjóðhöfðingja
um allan heim. Hann
var meðlimur í Club
des Chefs des Chefs
(Alþjóðleg samtök mat-
reiðslumanna þjóðhöfð-
ingja), í Klúbbi mat-
reiðslumeistara og í
Félagi matreiðslumanna og sinnti
ýmsum félags- og ábyrgðarstörfum
á þeim vettvangi. Gísli fór sem
gestakokkur hjá Cunard skipafélag-
inu í ferð árið 1996 og kynnti sér
matreiðsluhætti í skólum og á hótel-
um í Grænlandi í þremur ferðum
þangað. Þá hafa uppskriftir eftir
Gísla birst í Gestgjafanum.
Gísli var skáti á yngri árum og
studdi við starf þeirra alla tíð. Hann
var mikill áhugamaður um bridge og
skák og sinnti þeim áhugamálum í
gegnum klúbba sem hann og æsku-
félagar hans stofnuðu til á tvítugs-
aldri.
Eftirlifandi eiginkona Gísla er
Bryndís Þorbjörg Hannah og börn
þeirra eru þau Arnar Eggert, Curv-
er og Eva Engilráð.
Andlát
Gísli Thoroddsen
Persónuvernd hefur staðfest að
stjórnendur DV hafi brotið lög með
meðferð sinni á tölvupósthólfum
þriggja fyrrverandi starfsmanna
sinna; Reynis Traustasonar, fyrr-
verandi ritstjóra, Jóns Trausta
Reynissonar, fv. framkvæmdastjóra,
og Heiðu B. Heiðarsdóttur, fv. aug-
lýsingastjóra blaðsins, eftir að þau
luku störfum hjá blaðinu.
Héldu þremenningarnir því fram
að sér hafi ekki verið gefinn kostur á
að skoða pósthólfin til að aðgreina
einkapósta frá þeim sem vörðuðu
starfsemi DV, pósthólfin hefðu verið
áfram opin eftir að þau hættu og
einkapóstur þeirra áframsendur á
aðra starfsmenn DV.
Í úrskurði sínum fellst Persónu-
vernd á umkvartanir þremenning-
anna og segir að DV ehf. hafi brotið
lög. Lagt er fyrir félagið að staðfesta
með skriflegum hætti að pósthólfum
starfsmannanna fyrrverandi hafi
verið lokað og að þeim hafi verið gef-
inn kostur á að yfirfara póstinn sinn.
Sendu einkapósta á fyrrver-
andi samstarfsfélaga DV
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Deilur DV var til húsa við Tryggva-
götu þegar umrætt mál kom upp.
Eldur kom upp í íbúð í fjölbýlishúsi
við Gvendargeisla í Reykjavík upp
úr hádegi í gær. Í húsinu eru 36
íbúðir en þeir íbúar sem voru heima
yfirgáfu íbúðir sínar meðan á
slökkvistarfinu stóð. Slökkviliðs-
menn í reykkafarabúningum fóru
inn í íbúðina en hún reyndist mann-
laus. Ennfremur kom í ljós að eld-
urinn var minniháttar og gekk
slökkvistarf hratt fyrir sig. Fólki
var tilkynnt skömmu síðar að óhætt
væri að snúa aftur í íbúðirnar.
Eldur í mannlausri
íbúð í fjölbýlishúsi