Morgunblaðið - 03.09.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
Bankastræti 6 – sími 551 8588 – gullbudin.is
14.990
19.900
15.000
Tímaritið Spectator, sem stofn-að var árið 1828, sagði ný-
lega frá því að það hefði nú fleiri
áskrifendur en nokkru sinni áður
og var þá eingöngu átt við prent-
uðu útgáfuna. Í
nýjustu forystu-
grein ritsins (sem
auðvitað er
ómerkt, eins og í
alvöru blöðum)
segir (í lausl. þýð.):
George Osborne heimsótti Sví-þjóð, Finnland og Danmörku
s.l. mánudag og hlutabréfamark-
aður allra landanna þriggja féll
um því sem næst 5%. Um leið og
hann kvaddi rétti markaðurinn
sig af.
Þetta var auðvitað tilviljun.Ferð ráðherrans bar upp á
sama dag og ofsaveður gekk yfir
markaði. En hvað sem því líður
varð skjálftinn til þess að Osborne
horfði ofan í hyldýpið og fór á
taugum. „Bretland,“ sagði hann í
varnaðartón, „er ekki ónæmt fyr-
ir því sem á gengur í veröldinni.“
Og ekki í fyrsta sinn sáum viðvarir hans bærast en heyrð-
um hins vegar rödd Gordons
Brown: „Við erum mun betur
undirbúnir nú gagnvart svona
áföllum en við vorum fyrir fáum
árum.“
Það væri betra að þetta værisatt,“ segir ritstjórinn og
bendir á að árið 2008 voru skuldir
Breta 37% af landsframleiðslu og
Brown gat því bjargað sér með
lántökum út úr kreppunni. Nú sé
hlutfallið hins vegar 80% og slíkt
svigrúm því ekki til.
Sama staða er annars staðar,og að auki vextir víðast í núlli
og peningaprentun fullnýtt úr-
ræði.
George Osborne
Varir Konna en
rödd Baldurs
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 2.9., kl. 18.00
Reykjavík 11 skýjað
Bolungarvík 13 skýjað
Akureyri 12 léttskýjað
Nuuk 10 léttskýjað
Þórshöfn 10 skýjað
Ósló 12 alskýjað
Kaupmannahöfn 17 léttskýjað
Stokkhólmur 16 skýjað
Helsinki 13 skúrir
Lúxemborg 18 léttskýjað
Brussel 17 léttskýjað
Dublin 13 skýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 17 léttskýjað
París 18 skýjað
Amsterdam 17 léttskýjað
Hamborg 17 heiðskírt
Berlín 20 heiðskírt
Vín 22 skýjað
Moskva 12 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Madríd 30 léttskýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 28 léttskýjað
Róm 27 léttskýjað
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 26 heiðskírt
Montreal 22 alskýjað
New York 30 heiðskírt
Chicago 29 léttskýjað
Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
3. september Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 6:16 20:39
ÍSAFJÖRÐUR 6:14 20:51
SIGLUFJÖRÐUR 5:57 20:34
DJÚPIVOGUR 5:44 20:11
Vel hefur gengið
að ráða grunn-
skólakennara í
haust, samkvæmt
upplýsingum frá
nokkrum af
stærstu sveitar-
félögum landsins.
Á vefsíðum sveit-
arfélaganna má
þó enn sjá nokkr-
ar auglýsingar,
þar sem auglýst er eftir kennurum
til starfa, en samkvæmt upplýs-
ingum frá sveitarfélögunum er það
ekkert umfram það sem yfirleitt er á
þessum árstíma.
Frá Hafnarfjarðarbæ fengust t.d.
þær upplýsingar að enn vantaði í sex
stöður kennara og ástæðan væri
stundum sú að fólk hætti við á síð-
ustu stundu. Í Kópavogi vantar
nokkra kennara, að sögn Önnu
Birnu Snæbjörnsdóttur, sviðsstjóra
menntasviðs Kópavogsbæjar.
„Þetta hefur ekki hamlað skóla-
starfi og er yfirleitt leyst innan við-
komandi skóla,“ segir Anna Birna.
Í Reykjavík vantar enn í 3,5
stöðugildi kennara sem er áþekkt
því sem verið hefur á þessum tíma.
Grunnskól-
arnir vel
mannaðir
Sumir hætta við á
síðustu stundu
Í skóla Vel gekk að
ráða kennara.
Viðskiptaverð mjólkurkvóta hækk-
aði um 50 krónur á lítra á tilboðs-
markaði Matvælastofnunar nú um
mánaðamótin. „Þetta kemur mér
svolítið á óvart. Mér þætti fróðlegt
að sjá hvaða efnahagslegu forsendur
eru fyrir þessari hækkun,“ segir
Baldur Helgi Benjamínsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands kúa-
bænda.
Eftirspurn og framboð á greiðslu-
marki var töluvert meira á tilboðs-
markaði Mast nú en var á síðasta
markaði, 1. apríl. Munar þar 100-
150%. Niðurstaðan varð að allur
framboðinn kvóti, 367 þúsund lítrar,
var seldur og verðið varð 200 krónur
á lítra.
Verð á græslumarki hækkaði lítil-
lega á síðasta tilboðsmarkaði, en áð-
ur hafði það lækkað stöðugt um
tíma. Skýringar þess eru augljósar,
eins og Baldur Helgi bendir á.
Bændur fá þessi árin ekki hærra
verð fyrir mjólk sem er framleidd
innan greiðslumarks en utan. Kaup-
endur greiðslumarksins hafa ekki
tryggingu fyrir beingreiðslum út á
greiðslumark nema út samningstíma
búvörusamninga, í lok næsta árs. Þá
hefur Landssamband kúabænda
markað þá stefnu að greitt skuli
staðlað verð fyrir alla mjólk og að
horfið verði frá kvótakerfi í mjólkur-
framleiðslu.
helgi@mbl.is
Mjólkurkvótinn hækkar um 50 kr.
Framkvæmdastjóri LK veltir fyrir sér efnahagslegum forsendum verðsins
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kýr Einhverjir bæta við kvótann.