Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
bh kr. 8.650
Navy blue pattern
Stærðir 41-46
Verð 3.990
Black grey checker
Stærðir 41-46
Black checker
Stærðir 41-46
Verð 4.990
Grey checker
Stærðir 41-46
Verð 4.685
Grey pattern
Stærðir 41-46
Black
Stærðir 41-46
Verð 6.990
Póstsendum hvert á land sem er | Laugavegi 178 | Opið mán-fös 10-18, lau. 10-14 | S. 551-2070/551-3366 | www.misty.is
á góðu verði, til dæmis:
Úrval af góðum inniskómSaumlaus og
meiriháttar
Verð 3.990
Verð 4.685
Borgartúni 27
Hæð til leigu í
BYGG býður til leigu glæsilegt skrifstofuhúsnæði á 4. hæð á
einum besta stað í bænum, Borgartúni 27.
Hæðin sem er 853 fermetra leigist í einu lagi eða hlutum, allt
eftir þörfum.
Upplýsingar hjá Fjárfestingu fasteignasölu í síma 562 4250
og hjá Gunnari í sími 693 7310.
Sigurjón J. Sigurðsson
Ísafirði
Náttúrugripasafnið í Bolungarvík,
sem formlega var opnað í maí 1998,
er það fyrsta sinnar tegundar á Vest-
fjörðum. Safnið er tileinkað Steini
Emilssyni jarðfræðingi, sem lengi
var skólastjóri í Bolungarvík og er
steinasafn hans uppistaðan í steina-
sýningu safnsins. Spendýrum og
fuglum eru einnig gerð góð skil en
þar eru um 250 fuglar af 171 tegund.
Flestar fuglategundirnar sem finna
má á safninu, dvelja einhvern hluta
ársins á landinu en innan um eru
fuglar sem hafa af einhverjum ástæð-
um flækst til landsins. Þá er á safninu
stórt og gott eggjasafn og hreiður til
sýnis.
Safnið hefur að geyma úrval spen-
dýra, m.a. hvítabjörn og blöðrusel
sem báðir eru flækingar frá Græn-
landi. Hvítabjörninn fannst á sundi
norður af Horni sumarið 1993. Skip-
verjar á Guðnýju ÍS-266 frá Bolung-
arvík komu að dýrinu, hífðu það um
borð og hengdu. Drápið olli harðvít-
ugum deilum sem enduðu með því að
dýrið var gert upptækt, stoppað upp
og er nú til sýnis á safninu. Á safninu
má einnig sjá hvalbeinin í hvalbeins-
hliðinu að Skrúði í Dýrafirði, sem eru
líklega best þekktu bein hérlendis
enda hafa mörg þúsund manns heim-
sótt garðinn undanfarin 100 ár.
Vel sótt af ferðafólki
Að sögn Huldu Birnu Alberts-
dóttur, forstöðumanns safnsins, er
safnið vel sótt af ferðafólki og eru Ís-
lendingar þar í meirihluta. Fram til
15. ágúst síðastliðinn höfðu 1.640
manns sótt safnið heim í sumar, þar
af 894 Íslendingar.
Náttúrustofa Vestfjarða sér um
rekstur náttúrugripasafnsins sem og
um rekstur sjóminjasafnsins í Ósvör
sem nýtur sívaxandi vinsælda meðal
ferðamanna. Bæði söfnin eru í eigu
Bolungarvíkurkaupstaðar.
Tæplega átta þúsund manns hafa
sótt sjóminjasafnið í sumar, flestir
erlendir gestir með skemmti-
ferðaskipum sem koma til Ísafjarðar,
eða 5.295 manns. Aðrir erlendir gest-
ir teljast vera 1.930 í sumar og Ís-
lendingar 633 talsins.
Morgunblaðið/Sigurjón J. Sigurðsson
Hvalur Hvalbeinin frá Skrúði í Dýrafirði, skipa heiðurssess á Náttúruminjasafninu í Bolungarvík.
Í safninu Hulda Birna Albertsdóttir, forstöðumaður náttúrugripasafnsins,
við hlið ísbjarnarins fræga, sem var drepinn norður af Horni árið 1993.
Perlan í víkinni
Þúsundir ferðamanna hafa skoðað
söfnin í Bolungarvík í sumar
Fuglasafnið Hluti fuglasafnsins. Þar eru um 250 fuglar af 171 tegund.