Morgunblaðið - 03.09.2015, Síða 19
Í Strandabyggð, Súðavíkurhreppi, Árneshreppi og
Kaldrananeshreppi á Vestfjörðum búa um 850 manns,
en samanlögð stærð sveitarfélaganna er um 3.770 ferkíló-
metrar. Atvinnuvegir þar eru fjölbreyttir, m.a. sjávar-
útvegur, ýmiss konar þjónusta og landbúnaður.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 2015
daga og hafrót. Öldurnar náðu fjór-
tán metra hæð og gengu hér langt
inn á land. Fyrr á árunum var hafís
stundum aðgangsharður hér og lagð-
ist að landi. Mikilvægt var að fylgjast
með ferðum hans og ganga þá hér
upp í hlíðar Reykjaneshyrnu og horfa
á haf út. Í síðari tíð, þegar veðráttan
er mildari, er minna um hafís. Raun-
ar eru fimm ár síðan ég sá síðast
staka jaka á reki,“ segir Jón, sem
kveðst á flestan hátt líka vel við starf
veðurathugunarmannsins. Því fylgi
að vísu talsverð binding því að ekki
megi bregðast að Veðurstofunni ber-
ist lýsing á því hvernig vindar blása í
þessari afskekktu byggð. Og af-
skekktri þó. Allt slíkt er afstætt og
ræðst af huglægu mati hvers og eins
– og þeim sem sveitina byggja finnst
Árneshreppur svona á stundum vera
í alfaraleið.
Strandir Litla-Ávík stendur við rekafyllta fjöruna í Norðurfirði og undir hlíðum píramídalaga Reykjaneshyrnu.
Flug Yfir vetrartímann er flugvöllurinn lífhöfn byggðarinnar í Árneshreppi
og þangað er ekki flogið nema veðurlýsing frá Jóni gefi grænt ljós á það.
„Norðaustanáttin byrjaði hjá
okkur seinni part júnímánaðar
og það hætti ekki fyrr en um 20.
ágúst. Það var bara alltaf
norðanátt og hitastigið fór aldrei
upp fyrir tíu gráður í júlí,“ segir
Ásbjörn Magnússon sjómaður á
Drangsnesi og bætir við að hann
muni ekki eftir viðlíka sumri.
„Og það gera elstu menn ekki
heldur. Það var alveg ótrúlega
kalt en við sluppum samt við
þessar óhemjumiklu rigningar
sem voru norðan við okkur.“
Lágur lofthiti virðist þó ekki
hafa haft nein neikvæð áhrif á
æti í sjónum við Drangsnes því
að Ásbjörn segir þar nóg um
vænan og feitan fisk. „Það er nóg
æti og kuldinn hefur engin áhrif
á það. Mest fór sjávarhiti í níu
gráður en í fyrra fór hann í 12
gráður. Ljóst er því að sjórinn er
talsvert kaldari nú en í fyrra,“
segir hann og bendir á að um
yfirborðsmælingar sé að ræða.
Aðspurður segir Ásbjörn
ferðamenn hafa verið nokkuð
iðna við að sækja Drangsnes
heim í sumar þrátt fyrir kulda og
vind. „Útlendingarnir eru líka
ekkert óhressir með veðrið og að
fá á sig smá vind.“ khj@mbl.is
Norðaustanáttin var ríkjandi á Drangsnesi í sumar
Morgunblaðið/Golli
Byggð Drangsnes er lítið þorp við norðanverðan Steingrímsfjörð.
Hiti fór aldrei upp
fyrir tíu gráður
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Grímsey Hún er perla svæðisins.
en bætir við að erfitt sé að átta sig á
því hvenær auka þurfi umsvif fyrir-
tækisins.
„Maður áttar sig ekki alveg á
því um leið. Þegar gestirnir hafa
náð ákveðnum fjölda eykst álag á
starfsfólkið og því fylgir auka-
kostnaður. Maður bætir við starfs-
manni og þá þarf visst marga gesti
til að standa undir því. Þannig
hættir maður eiginlega aldrei að
elta rófuna á sér. Svo veit ég aldrei
hvað er fram undan því að maður
hefur náttúrulega ekki kvóta, þótt
ég sé nú ekki að mæla með honum,“
segir Sigurður og hlær við.
Nábrækurnar vekja athygli
Merkasta muninn á safninu
segir hann vera nábrækurnar sem
eru þar til sýnis, en eðli máls sam-
kvæmt er um eftirlíkingu að ræða
af þessari fornu galdraflík.
„Í samræðum við fólk finnst
mér bera á því að þær þykja mjög
merkilegar. Síðan er það auðvitað
þessi saga sem við eigum, þjóðtrú-
in, galdrarnir og hvaðeina. Þetta er
gríðarlegur fjársjóður sem við Ís-
lendingar gerum okkur stundum
ekki alveg grein fyrir. Þetta eru
okkar pýramídar.“
Ljósmynd/Galdrasafnið
Tilberi Á Galdrasafninu má finna
þessa eftirlíkingu af tilbera.
Eini granítsteininn sem talið er að
sé á Íslandi er í Stóru-Ávík í Árnes-
hreppi á Ströndum. Talið er að
hann hafi borist hingað til lands í
lok ísaldar eða fyrir 10 þúsund ár-
um. Klettur þessi, sem vegur tugi
tonna og er kristöllum hlaðinn, er
oft nefndur Silfursteinn og hafa
margir gaman af því að líta á grip-
inn enda vel þessi virði.
Klettur kristöllum hlaðinn
SILFURSTEINN Í STÓRU-ÁVÍK
Steinn Leyndardómsfullur gripur.
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Frábær
pakkatilboð
til Færeyja 23. september
Bókaðu
núna!Sigling með Norrænu og hótel í Færeyjum í 4 nætur
frá kr. 65.800 á mann miðað við að 2 ferðist saman.
Hægt er að velja um gistingu í Þórshöfn eða í Rúnavík.
Frábært tækifæri til að heimsækja Færeyjar.
Brottför frá Seyðisfirði 23. september og komið til Seyðisfjarðar 29. september.
Sjá nánar á www.smyrilline.is eða hafa samband við Norrænu
Ferðaskrifstofuna í síma 5708600 og Austfar í síma 4721111